Listin að lifa - 01.09.2000, Blaðsíða 42

Listin að lifa - 01.09.2000, Blaðsíða 42
Rætt við Maríu Jónsdóttur formann Félags Alzheimerssjúkra Alþjóðlegi Alzheimersdagurinn, 21. september, sýnir að aðstandendur sjúkra um allan 'neim hafa sameinast til að minna á fjöldann sem þjáist og til að knýja á aukna umönnun og meiri rannsóknir - en um 5% fólks yfir 65 ára fær sjúkdóminn. Félag áhugafólks og aðstandenda Alz- heimerssjúkra, FAAS, hefur nú starf- að í fimmtán ár með sömu markmið að leiðarljósi. Á íslandi eru um 2000 manns minnisskertir, margar fjöl- skyldur tengjast þeim fjölda. Yfirleitt er hljótt um Alzheimerssjúk- dóminn, fullorðið fólk með heilabilun og vangefin börn er eitthvað sem menn hafa ekki hátt um, en gömul viðhorf eru að breytast í upplýstu samfélagi. Tvær forsíðufréttir tengdust Alz- heimerssjúkum í ágúst sl. Nokkurra daga leit var gerð að sjúklingi, 80 ára konu sem týndist frá heimili sínu. Á sama tíma kom frétt frá íslenskri erfðagreiningu um áfangasigur í rannsóknum á Alzheimers. Undarlegt að þessi tvö atvik skyldu koma upp samtímis, engu líkara en forsjónin vilji draga erfiðleika Alzheimerssjúkra og fjölskyldna fram í dagsljósið. Ég er stödd í einbýlishúsinu að Austurbrún 1, þar sem FAAS er nýbú- ið að opna skrifstofu, en iðnaðarmenn að leggja síðustu hönd á annað rými. Hér eiga minnissjúkir að fá dagvistun, setustofa og borðstofa á annarri hæð með útsýni yfir til Esjunnar, hvfldar- og þjálfunarherbergi á fyrstu hæð, í garðinum geta hinir sjúku notið úti- vistar. Þetta hlýlega hús í skjóli há- vaxinna trjáa er gjöf frá Pétri Símon- arssyni til minningar um eiginkonu sína, Fríðu Jónsdóttur ljósmyndara sem var Alzheimerssjúk. „Þessi frábæra minningargjöf gerir félaginu kleift að flytjast í nýtt hús- næði á afmælisárinu,“ segir María. Margt þurfti að endurnýja í húsinu, skipta um þak, raf- og pípulagnir og fleira, en sjálfboðaliðar komu að störf- um, aðrir styrktu verkefnið, húsið er að verða fullbúið til móttöku fyrstu skjólstæðinganna. Þörfm er brýn að sögn Maríu. „Það er gæfa félagsins, hvað það mætir miklum velvilja og fær góðan stuðning hjá þeim sem leitað er til. Allir sem hafa kornið að uppbyggingu hússins hafa lagt alúð sína í verkið - haft að leiðarljósi hvað væri best og hagkvæmast fyrir félagið og þá starf- semi sem á að vera hér.“ María hefur kynnst sjúkdómnum eins og flestir í FAAS, móðir hennar var minnissjúk. Leitin að æskunni: „Fólk hættir að rata heim til sín - er stöðugt að leita að æskustöðvunum og því sem er ekki lengur til. Mamma var alin upp í sveit og kannski fannst henni að sveitin sín væri utan við dymar. Ég var svo hepp- in að hafa smekklás á hurðinni, annars hefði hún gengið út í umferðina án þess að horfa í kringum sig.“ Minnissýki vegna öldrunar hefur gengið undir mörgum nöfnum. Orðið demens er komið úr tveimur latnesk- um orðum de og mens sem á mynd- rænan hátt þýða úr huga. Aðaleinkenni Alzheimers er skortur á skammtímaminni sem veldur miklu öryggisleysi hjá sjúklingum. Fólk reynir að fela þetta og vill ekki horfast í augu við sjúkleika sinn. Minnisleys- ið eykst eftir því sem sjúkdómurinn á- gerist, einstaklingurinn gleymir nöfn- Danski læknirinn Karen lenti í viðj- um Alzheimers og leyfði Helje Sol- berg að skrásetja sögu sína, sem kom út hjá FAAS 1997. um, endurtekur sömu spurningar, þekkir oft ekki vini og ættingja, á erfitt með daglegar athafnir og þarfn- ast eftirlits og aðstoðar. Alzheimers- sjúklingur getur verið mjög truflandi fyrir umhverfið með eirðarleysi sínu og dægurvillum. „Þetta læðist að fólki,“ segir María, „þótt einstaklingur sé greindur með Alzheimers er svo langt ferli framund- an, sorgarferli, afneitun og reiði, það er erfitt að takast á við sjúkdóminn 42

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.