Reykjavík - 10.01.2015, Qupperneq 6

Reykjavík - 10.01.2015, Qupperneq 6
FJARNÁM Skráning á vorönn stendur til 14. janúar á slóðinni www.fa.is/fjarnam 6 10. Janúar 2015REYKJAVÍK VIKUBLA Ð menningin Hildur BjörgvinsdóttirAuðvelt að eignast listaverk „Listaverkin eru eftir félagsmenn í Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Það er breytilegt hvaða listamenn eru með verk í Artótekinu en oftast eru inni listaverk eftir um 80-90 manns. Fjölbreytni verkanna er því mjög mikil og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.“ segir Katrín Guðmunds- dóttir verkefnastjóri Artóteks sem staðsett er á 1. hæð Borgarbókasafnsins í Tryggvagötu. Á Artótekinu getur fólk tekið á leigu listaverk til lengri eða skemmri tíma eða keypt þau á mánaðarlegum greiðslum. „Listaverkin eru af ýmsum stærðum og gerðum en langflest eru þau tvívíð svo sem málverk, teikningar og grafík. En þó eru við líka með leirlist og skúlptúra.“ Hægt að eignast gott safn Katrín segir þjónustuna, sem hefur verið fyrir hendi í rúman áratug, vera vel nýtta. Oft vefjist fyrir fólki að velja listaverk fyrir heimilið eða fyrirtækið og þá sé gott að geta skilað verkinu ef það passar ekki í rýmið þegar á hólm- inn er komið. „Það er líka mjög auðvelt að kaupa listaverkin hér þar sem um kaupleigu er að ræða. Viðkomandi þarf því ekki að reiða fram fúlgur fjár á staðnum, það er hægt að eignast listaverk smátt og smátt, nú eða skila þeim ef honum snýst hugur. Og svo hafa sumir komist upp á lagið og koma strax aftur þegar þeir eru búnir að borga upp eitt listaverk og fá annað. Þannig er hægt á nokkrum árum eignast gott safn listaverka á tiltölulega auðveldan máta.“ Flestir kjósa að kaupa Að sögn Katrínar eru málverkin vin- sælustu verkin, vel yfir helmingur þeirra verka sem tekin eru á leigu en grafíkverk koma næst á eftir, um það bil 25% útleigðra verka. Afar misjafnt sé þó hverju fólk leitar að eins og gengur. „Sumir eru jafnvel búnir að velja áður en komið er á staðinn og hafa þá verið búnir að skoða vefsíðu Artóteksins en þar eru myndir og upplýsingar um öll listaverkin. Slóðin er artotek.is og svo eru líka myndir á facebook síðunni okkar.“ Katrín segir aðeins um 20% verka sem tekin eru á leigu vera skilað aftur, aðrir kjósi að kaupa þau með mánaðarlegum, vaxta- lausum greiðslum. Flestir ætli sér að eignast verkin alveg frá upphafi en þó sé alltaf einn og einn sem vill hafa þau tímabundið. Hún segir það geta verið góðan kost, til dæmis hjá fyrirtækjum sem vilji breyta hjá sér reglulega. Auðvelt í framkvæmd Þegar listaverk eru tekin á leigu er gerður samningur milli leigjandans og Artóteksins fyrir hönd listamannsins. Það er gert á staðnum og er einfalt í framkvæmd. Leigjandinn þarf að greiða eins mánaðar leigu við afhendingu og fær eftir það reikning í heimabank- ann mánaðarlega þar til listaverkið er uppgreitt. „Leigan er frá 1.000 upp í 10.000 kr. á mánuði og fer upphæðin eftir kaupverði listaverksins. Og svo er auðvitað líka hægt að kaupa strax án þess að leigja þau. “ Ekki missa af ... Öðruvísi Händel. Í kvöld mun Barokksveitin C a m e r a t a Øresund og 12 manna kamm- erkór skipaður íslenskum og skandin- avískum einsöngvurum flytja Messias eftir Hände í dramatískri og dansandi útgáfu. Eins og tíðkaðist á barokk- tímanum mun hver og einn flytjandi taka virkan þátt í að móta tónlistina í hita augnabliksins, líkt og í góðu jazz- bandi. Meðal einsöngvara kvöldsins eru: Hallveig Rúnarsdóttir, Marta Guðrún Halldórsdóttir, Eyjólfur Eyjólfsson, Hrólfur Sæmundsson, Hafsteinn Þórólfsson, Eline Soel- mark. Nana Bugge Rasmussen, Leif Aruhn-Solén. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósasal Hörpu og hefjast kl.20. Miðasala á midi.is. MP5. Annað kvöld verður sýnd allra síðasta sýning á verkinu MP5 sem hlotið hefur afar góðar dóma. Verkið er ný íslensk lo-fi sci-fi satíra unnin af meðlimum leik- hópsins Sóma þjóðar. Það gerist um borð í alþjóðlegri geimstöð í nálægri framtíð. Geimsamfélagið er friðsamt og umburðarlynt þar til slys á sér stað um borð og MP5 byssa er dregin upp. Vakna þá ýmsar spurningar um hvort og hvernig best sé að nota byssuna. Sýnt er í Tjarnarbíói kl.20 og er miða- sala á tjarnarbio.is og somithjodar.is. Miðaverð 2.000kr. Yvonne Larsson. Á morgun lýkur sýningu á málverkum sænsku lista- konunnar Yvonne Larsson í Nor- rænahúsinu. Þemu sýningarinnar eru „heimilið“ og „skógurinn“. Opið 12-17. 45 verkum stolið Ég held enn í vonina um að myndirnar finnist,“ segir Rúna K. Tetzschner myndlistarkona. Bifreið hennar stolið frá Baldursgötu aðfararnótt gamlársdags, en í bílnum voru töskur með 45 listaverkum. Bíll- inn, sem er af Subaru gerð fannst aftur við Strandasel í Breiðholti, en allt hafði verið tekið úr honum. Þar á meðal tvær gamlar ferðatöskur sem geymdu myndirnar. „Tjónið er óbæt- anlegt fyrir mig þar sem um eigin sköpunarverk er að ræða,“ segir Rúna. Hún segir að myndirnar séu sér- stæðar. Þær hafi verið unnar með vatnstússlitum á pappír og glitrandi duftlitir hafi verið bræddir á hann með hitatæki. Þetta sé tækni sem hún hafi sjálf þróað og enginn annar noti hana. Ferðatöskurnar sem geymdu myndirnar séu einnig gamlar og hafi tilfinningalegt gildi fyrir sig. Aðra hafi hún erft frá afa sínum, sem hafi á sínum tíma geymt í henni aleigu sína. Hina hafi hún erft frá manni sínum heitnum, Þorgeiri Rúnari Kjartans- syni, tónlistarmanni og rithöfundi, sem hafi þar geymt ljóð og skrif. Sjálf hafi hún haft list sína í töskunum síð- ustu sextán árin. Töskurnar séu nú merktar henni. Þjófnaðinn hefur Rúna kært til lögreglu en hún óskar þess að hafi einhver orðið var bílþjófinn, töskur eða myndir, að hafa samband við sig eða lögreglu. „Sumir eru jafnvel búnir að velja áður en komið er á staðinn,“ segir Katrín Guðmundsdóttir, sem hér sést innan um hluta verkanna á artótekinu. Verkin eru af öllum stærðum og gerðum, bæði málverk, teikningar og grafík, en einnig er hægt að nálgast skúlptúra og leirlist. rúna K. Tetzshner með aðra töskiuna. nokkur verkanna má sjá uppi á vegg.

x

Reykjavík

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.