Reykjavík - 10.01.2015, Page 16
ÁL-SUÐA
Ryðfrí stál - ál - og járnsmíði
Nýsmíði og viðhald fyrir fiskvinnslur og fiskiskip.
Áratuga reynsla.
MANNBERG
Vélsmiðja sími 564 2002
Akralind 1 - 201 Kópavogi - mannberg@mannberg.isAuglýsingar: 578 1190 & auglysingar@fotspor.is | Ritstjórn: 659-3442 & ingimarkarlhelgason@gmail.com
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
10. Janúar 2015 • 1. tölublað 6. árgangur
BaksÍðan
Björk Þorleifsdóttir
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK
Auglýsingasíminn
er 578 1190
O
pi
ð
al
la
n
só
la
rh
rin
gi
nn
í E
ng
ih
ja
lla
, V
es
tu
rb
er
gi
og
A
rn
ar
ba
kk
a
Jólaþynnkan...
Ég skellti mér á jólasmell í bíó um helgina og lét íbúa Mið-garðs halda uppi fjörinu þriðju
jólin í röð. Mér leið pinkulítið eins sís-
vöngu hobbitunum þar sem ég sökk
ofan í dúnmjúkt bíósætið, greip fast um
poppið og kókið og byrjaði að úða ljúf-
metinu í mig. Ég var nokkuð snemma
á ferð enda vildi ég fá gott sæti og þar
af leiðandi voru matvælin sykurskatts-
lausu uppurin löngu áður en myndin
byrjaði. Ég velti því fyrir mér hvort ég
ætti að skjótast í sjoppuna og kaupa
nýjan skammt en ákvað um síðir að
vera stapil aðallega vegna þess að ég
nennti ekki í sjoppuröðina.
Jólahaldið með sínu salta og reykta
kjöti, rjómalöguðum sósum, sykur-
brúnuðu kartöflum, gosi, konfekti og
smákökum hefur verið alveg hreint
dásamlegt, það er alveg ljóst . En nú
þegar þrettándinn er liðinn og nærri
ár í að jólagleðin hefjist að nýju er nýtt
landslag í auglýsingum sem beint er að
landanum. Nú er sko nauðsynlegt að
missa öll jólakílóin, hamast í ræktinni
og komast í kjólinn fyrir næstu jólin.
Nú eiga menn að vera með samvisku-
bit yfir öllu sukkinu og síðustu leifar
jólaþynnkunnar hellast yfir í byrjun
febrúar þegar jólareikningurinn hjá
kreditkortafyrirtækinu laumar sér inn í
heimabankann. Þungbúinn janúar tekur
völdin og allt fína jólaskrautið og marg-
litu útiljósin fara ofan í kassa. Á maður
að láta jólaþynnkuna taka völdin? Ég
segi nei! Birtan eykst með hverjum
deginum sem líður og þorrinn með
sínum súru pungum og þorrablótum
er rétt handan við hornið. Upp úr kass-
anum aftur með jólaseríurnar. Þræðum
kjamma upp á þær, stingum í samband
og bjóðum jólaþynnkunni birginn!