Víkurfréttir - 24.05.2012, Side 6
6 FIMMTUDAGURINN 24. MAí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
Leiðari Víkurfrétta
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is.
Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem
er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram
á vef Víkurfrétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á
þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á
miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um
einn sólarhring.
Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is.
Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat
ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu
blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir,
hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000
Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is
Víkurfréttir ehf.
Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011
Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Landsprent
9000 eintök.
Íslandspóstur
www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
Útgefandi:
Afgreiðsla og ritstjórn:
Ritstjóri og ábm.:
Fréttastjóri:
Blaðamaður:
Auglýsingadeild:
Umbrot og hönnun:
Auglýsingagerð:
Afgreiðsla:
Prentvinnsla:
Upplag:
Dreifing:
Dagleg stafræn útgáfa:
Páll Ketilsson, ritstjóri
vf.is
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 31. maí 2012. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is
Sameining er málið
Uppákoman í Garðinum í síðustu viku þegar meirihluti bæjar-
stjórnar féll var óneitanlega sérstök. Eins og fram hefur komið
kostar þessi gjörningur þetta litla sveitarfélag mikla peninga.
Uppákoman varð til út af deilum sem tengjast grunnskólanum
og um síðustu áramót var skólastjóra sagt upp störfum og það
kostaði líka mikla peninga. Deilur um skólann munu kosta þegar
upp verður staðið á annað hundrað milljónir þegar allt er tekið til.
Það eru miklir peningar.
Nýr meirihluti ætlar að tryggja lýðræði, nokkuð sem gamli meiri-
hlutinn var gagnrýndur fyrir að gera ekki, með bæjarstjóra í
stefninu sem þótti fara mikinn í stjórn bæjarfélagsins og varð til
þess að meirihlutinn sprakk. Er ekki lag fyrir nýjan meirihluta að
taka stórt skref og skoða alvarlega sameiningu við Reykjanesbæ?
Þó það sé svolítið harðneskjulegt að segja það þá virðist sú alvar-
lega staða vera komin upp í Garðinum að bæjarfélagið er betur
sett ef aðrir koma að stjórnun þess. Undirliggjandi ólga virðist því
miður vera of mikil á milli aðila til að sátt náist. Þegar sá þáttur er
lagður við hagræðinguna við sameiningu þá ætti dæmið að vera
nokkuð skýrt.
Bæjarráð Reykjanesbæjar gaf tóninn á fundi í síðustu viku í kjöl-
far sprengingarinnar í Garðinum og sagði að nú væri lag að fara í
sameiningu og taka Sandgerði með í pakkann. Þegar fyrsta alvöru
sameining sveitarfélaga á Íslandi varð að veruleika árið 1994
sameinuðust Keflavík, Njarðvík og Hafnir. Reynsla hefur sýnt að
það var rétt skref. Þeir sem voru á móti því á þeim tíma sem var
verulegur minnihluti en kosið var um sameininguna meðal bæjar-
búa, sjá í dag að þetta var það eina rétta. Á þessum tíma var skoðað
alvarlega að sameina öll sveitarfélögin á Suðurnesjum og haldnir
fundir um málin í þeim öllum. Þá var mikil andstaða í Garði og
í Sandgerði og enn meiri í Grindavík. Í dag, eftir kreppu er hins
vegar allt önnur staða og frá sameiningu Keflavíkur, Njarðvíkur
og Hafna hafa orðið miklar breytingar í rekstri sveitarfélaga. Þetta
ætti því ekki að vera nein spurning núna. Öll þessi sveitarfélög eiga
við rekstrarvanda að stríða um þessar mundir þó eignastaðan sé
betri í Garði og í Reykjanesbæ. Krafa á öll sveitarfélög í dag, hvort
sem þau eru stór eða smá, er að halda uppi góðri þjónustu á öllum
sviðum og sú krafa bara eykst. Til þess að mæta þessari þjónustu-
þörf, minnka rekstrarkostnað og nýta sameiginleg atvinnusvæði
er hægt að búa til 17 þúsund manna sveitarfélag ef Garður og
Sandgerði sameinast Reykjanesbæ en í Garði búa 1500 manns og
1700 í Sandgerði. Allir sjá að svona smáar rekstrareiningar eins og
Garður og Sandgerði eru, ganga ekki upp. Það þarf enga rekstrar-
hagfræðinga til að segja það. Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ skrifar
grein í Víkurfréttir í dag og tekur saman góðan pistil um þetta
mál. Hann býður þessi sveitarfélög velkomin í eina sæng.
Þegar lega þessara sveitarfélaga er skoðuð sést að aðeins er 10
mínútna akstur á milli ráðhúsa þeirra. Það er deginum ljósara að
hægt er að spara peninga sem hægt er að nýta í að gera þjónustu
sveitarfélaganna betri og hagræða í rekstri til framtíðar litið.
Í Garði og í Sandgerði kostar yfirstjórn árlega um 60-80 millj-
ónir króna á hvorum stað. Í dag nýta þessi sveitarfélög þjónustu
Reykjanesbæjar í skólamálum. Húsakynni eru vegleg á báðum
stöðum sem kosta verulegar fjárhæðir. Að undanförnu hafa Sand-
gerði og Garður sameinast um nokkra þjónustuþætti til að ná
fram sparnaði og það hefur gefist vel. Nú er bara að stíga skrefið til
fulls. Fara alla leið. Það er ekki eftir neinu að bíða. Sveitarstjórnar-
kosningar eru eftir tvö ár og þann tíma er tilvalið að nota til að
undirbúa sameininguna sem hægt væri að kjósa um þá.
ELDEY
KÓRAMÓT
TÓNLEIKAR FIMM KÓRA ELDRI BORGARA
fara fram í Fjölbrautaskóla Suðurnesja
laugardaginn 26. maí nk. kl. 16:00.
Úðum gegn:
Roðamaur, kóngulóm, lirfum og lús í
trjágróðri, illgresi í grasflötum (fíflum) og fl.
Fullgild réttindi og mikil reynsla!
Garðaúðun Suðurnesja efh.
822-3577 · 699-5571 · 421-5571
netfang: bvikingur@visir.is
GARÐAÚÐUN
co/ Björn Víkingur og Elín
„Dagskrá Sjóarans síkáta hefur
aldrei verið fjölbreyttari og öfl-
ugri að mínu mati. Hún hefst
með skemmtilegum tónleikum
á fimmtudagskvöldinu með sjó-
mannalagafjöri Ragga Bjarna á
Salthúsinu og lýkur á sunnudags-
kvöldinu með stórtónleikum
Valdimars í íþróttahúsinu. Sem fyrr
leggjum við upp úr fjölbreyttri fjöl-
skyldudagskrá alla helgina sem nær
hámarki á sunnudeginum, sjálfum
sjómannadeginum. Það besta við
þessa bæjarhátíð okkar Grindvík-
inga að mínu mati er hversu margir
koma að henni og bjóða upp á fjöl-
›› Sjóarinn síkáti haldinn um sjómannadagshelgina 1.-3. júní með pompi og pragt í Grindavík:
Sjóarinn síkáti
aldrei verið hressari
breytta og skemmtilega viðburði til
heiðurs íslenska sjómanninum og
fjölskyldu hans," segir Þorsteinn
Gunnarsson, upplýsingafulltrúi
Grindavíkurbæjar.
Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur
fest sig í sessi sem öflugasta sjó-
mannadagshátíð landsins. Á sama
tíma og hefðbundin hátíðarhöld
sjómannadagsins hafa víða verið
lögð niður undanfarin ár hafa
Grindvíkingar tekið þá stefnu af
efla Sjóarann síkáta enn frekar
enda Grindavík einn öflugasti
sjávarútvegsbær landsins. Mikið er
lagt upp úr því að Sjóarinn síkáti er
fyrst og fremst fjölskylduhátíð þar
sem fjölbreytnin er í fyrirrúmi.
En tónlistin skipar stóran sess á
hátíðinni. Margir af fremstu lista-
mönnum þjóðarinnar koma fram
á Sjóaranum síkáta að þessu sinni.
Auk Ragga Bjarna og Valdimar má
nefna Hjálma, Pál Óskar, Helga
Björns, Hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar, Andreu Gylfadóttur,
Ingó Veðurguð, Hreim, Skítamóral
o.fl.
„Við reynum að bæta umgjörð há-
tíðarinnar á hverju ári í samvinnu
við þá fjölmörgu aðila sem koma
að undirbúningi hennar á hverju
ári. Að þessu sinni verðum við með
stórt og mikið svið á hátíðarsvæð-
inu við Kvikuna alla helgina í stað
vörubílspalls til að bæta aðstöðuna
fyrir listafólkið og atriðin komast
mun betur til skila fyrir áhorf-
endur. Sjómanna- og vélstjórafélag
Grindavíkur kemur myndarlega að
hátíðinni, sérstaklega á sjómanna-
deginum sjálfum þar sem Guðni
Ágústsson verður ræðumaður
dagsins og heiðursviðurkenningar
og kappróður verður á sínum stað.
Fjórða árið í röð er svo bænum
skipt upp í fjögur litahverfi og síðan
verður litaskrúðganga á föstudags-
kvöldinu úr hverfunum fjórum
að hátíðarsvæðinu við Kvikuna.
Grindvíkingar hafa skreytt bæinn
sinn hátt og lágt og tekið virkan þátt
í hátíðarhöldunum. Við bjóðum
alla landsmenn velkomna á Sjóar-
ann síkáta," segir Þorsteinn.
Fyrir yngri kynslóðina verða ýmis
skemmtileg dagskráratriði eins og
dorgveiðikeppni sem nýtur mikilla
vinsælda, Brúðubíllinn sívinsæli,
dans frá Danssmiðjunni í Reykja-
nesbæ og einnig hópur frá Grinda-
vík, Skoppa og Skrítla, skemmti-
sigling fyrir alla fjölskylduna, sjó-
pulsan vinsæla verður í höfninni,
hægt að fá reiðtúr með mótorhjóli,
fara á hestbak, Gókart, sprellleik-
tæki, hoppikastalar og trúðar verða
á svæðinu og margt fleira.
Margt fleira er á boðstólum í
Grindavík alla sjómannadagshelg-
ina og dagskrána er hægt að nálgast
í heild sinni á www.sjoarinnsikati.
is.