Víkurfréttir - 24.05.2012, Page 21
21VÍKURFRÉTTIR • FIMMTUDAGURINN 24. MAí 2012
SUMARSUND
Boðið er upp á 2 vikna námskeið, 5 skipti í viku, samtals 10 skipti í senn.
Námskeiðin eru fyrir 2 ára og upp úr.
Í hverri laug er leiðbeinandi og 3-4 aðstoðarmenn ofan í lauginni sem eru sundmenn ÍRB.
Leiðbeinendur verða Hjördís Ólafsdóttir sundþjálfari hjá ÍRB, Jóna Helena Bjarnadóttir afrekssundkona og þjálfari
hjá ÍRB og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson afrekssundmaður.
Leitast er við að kenna yngstu börnunum vatnsöryggi og grunnhreyfingar sundtakanna með og án hjálpartækja.
Markmið með kennslu eldri barnanna er að kenna þeim rétt sundtök án allra hjálpartækja.
Hægt er að skrá sig á heimasíðum félaganna www.umfn.is/sund og www.keflavik.is/sund frá 24. maí
Námskeið 1 er frá 11. til 22. júní. Skráningarfrestur til 8. júní.
Námskeið 2 er frá 25. júní til 6. júlí. Skráningarfrestur er til 22. júní.
Boðið verður upp á námskeið í sundlaugum Akurskóla í Innri Njarðvík og Heiðarskóla í Keflavík en við áskiljum
okkur rétt til að sameina hópa vegna fjölda ef nauðsyn er á því þegar skráning liggur fyrir.
Hægt er að velja um tíma á morgnana kl. 8:30, 9:30, 10:30, 11:30 og 12:30
Verð á hverju námskeiði er kr. 6.000. Athugið að hægt er að skrá barn á fleiri en eitt námskeið.
Námskeiðin eru einnig fyrir þá sem hafa verið að æfa með ÍRB í vetur.
Geymið auglýsinguna!
Bifvélavirki á þjónustuverkstæði
Bílabúðar Benna í Reykjanesbæ
Umsóknir berist til Bílabúðar Benna, Vagnhöfða 23,
110 Reykjavík eða á tölvupóstfangið atvinna@benni.is
fyrir mánudaginn 4. júni. Nánari upplýsingar um starfi ð
veitir Björn Ragnarsson.
Sérfræðingar í bílum
Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 110 Reykjavík - 590 2000
www.benni.is - benni@benni.is
Starfssvið:
• Alhliða viðgerðir á bílum
• Þjónustueftirlit á bílum
• Ástandsskoðun notaðra bíla
Hæfniskröfur:
• Menntun í bifvélavirkjun
• Reynsla í bílaviðgerðum
• Frumkvæði, eldmóður og vinnusemi
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
Hefur þú gaman af bílum?
Bílabúð Benna óskar eftir drífandi starfsfólki
Heyrn, Hlíðasmára 11, Kópavogur, heyrn@heyrn.is
Tímapantanir - 534 9600
Ellisif Katrín Björnsdóttir
Heyrnarfræðingur
veitir faglega ráðgjöf
Nánari upplýsingar
www.heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Kæru Suðurnesjamenn
Verið velkomin
Verðum á Nesvöllum í Reykjanesbæ
mmtudaginn 7. júní
Eftir Björgvin G. Sigurðsson, for-
mann allsherjar- og menntamála-
nefndar.
Markmið fjárfestingaráætl-unar sem stjórnarflokk-
a r n i r k y n n t u
fyrir nokkru er
fyrst og fremst
að styðja við hag-
vöxt, ef la inn-
viði samfélagsins
og fjölbreytni í
atvinnulífi. Áætl-
unin er liður í fjölbreytilegum
fjárfestingum í mörgum greinum
og ætlað að hraða efnahagsbata
og hagvöxt. Fjárfestingaráætlunin
er sett fram á grunni þess að ríkis-
sjóður endurheimti stóran hluta
af þeim fjármunum sem lagðir
voru fram til að endurfjármagna
fjármálakerfið og að með nýjum
lögum um fiskveiðistjórnun og
veiðigjöld fái þjóðin sanngjarna
og hóflega hlutdeild af arði sjávar-
auðlinda.
Fjárfestingaráætlunin byggir á þeim
grunni að í núverandi efnahagsum-
hverfi sé skynsamlegt að umtals-
verðum hluta þeirra fjármuna sem
bundnir hafa verið í bönkum og
hluti auðlindagjalda sé best varið
með því að fjárfesta með skipu-
lögðum og markvissum hætti í inn-
viðum samfélagsins. Þannig styrkist
undirstaða hagvaxtar og tekju-
grunnur ríkissjóðs til framtíðar.
Þetta er það sem félagslega sinnuð
stjórnvöld hafa farið í gegnum
tíðina og er oft kennt við Nýja
samninginn hjá Franklin D. Roose-
velt Bandaríkjaforseta á þriðja og
fjórða áratug 20. aldarinnar. Með
því að ráðast í fjölbreytilegar fjár-
festingar í samfélaginu öllu sneri
hann slaka og samdrætti í mestu
efnhagskreppu síðari tíma í sókn
og uppbyggingu á máttugu vel-
ferðarsamfélagi. Samfélag sem stóð
Hefðbundnar læknisaðferðir og náttúrulækn-
ingar eru ekki í mótsögn hvor við aðra. Þvert á
móti geta aðferðirnar bætt hvor aðra upp. Þess
vegna er mikilvægt að fara fyrst í læknisrann-
sókn og fá greiningu á sjúkdóminum áður en
leitað er óhefðbundinna lækninga.
Til hinna hefðbundnu náttúrulækninga má
nefna lífsöndun, meðferð sem byggist á breyttu
mataræði sem miðast við heilsu sjúklingsins
sem í hlut á og handfjötlunarmeðferðir þar sem mikil áhersla er lögð
á þekkingu á líkamanum. Lífsöndun er ekki það sama og jóga, hún er
hins vegar sérstök tegund meðferðar. Öndun er ómeðvitað ferli, það
er það fyrsta sem við gerum þegar við komum í heiminn, og það er
það síðasta sem við gerum þegar við förum héðan. Auk þess má nefna
náttúrulækningar, grasalækningar og næringarfræði, en þetta tekur
lágmark 3 ár að læra. Það er mjög mikilvægt fyrir leikmenn að þekkja
hvaða meðferðir eru skynsamlegar og læknisfræðilega nauðsynlegar,
meðal annars svo þeir kasti ekki penningum á glæ. Ef fólk lendir í því
að eyða miklum peningum án þess að fá neitt út úr því hefur verið beitt
óábyrgum aðferðum. Ef árangur næst ekki innan skamms þá henta þér
ekki þessar meðferðir.
Hin mikla list felst í því að þekkja mörkin á milli læknisfræði og nátt-
úrulækninga, sem eru þau að læknisfræði fæst við alvarlega eða ólækn-
andi sjúkdóma en náttúrulækningum má beita þegar um minniháttar
kvilla eða truflun á líkamsstarfsemi er að ræða. Náttúrulækningar geta
gagnast vel til dæmis ef sjúklingur kvartar yfir verkjum án þess að hægt
sé að greina ákveðinn sjúkdóm í einhverju líffæri.
Þegar um lífshættulega sjúkdóma er að ræða eiga aðferðir hinnar
óhefðbundnu læknisfræði ekki við. Það er líka óviðeigandi og jafnvel
hættulegt þegar meðferðaraðilar líta svo á að einhver ein aðferð sé sú
eina rétta. Náttúrulækningar verða stöðugt að skoðast í heildrænu
meðferðarsamhengi. Úrslitaatriðið hér er að hver og einn með-
ferðaraðili verður að þekkja sín takmörk, meira að segja útlærður nátt-
úrulæknir, grasalæknir og næringarfræðingur.
Fólk á að geta læknað sig sjálft ef það fer eftir lífsreglum, sem eru góður
svefn, góður morgunverður og heilbrigður hádegisverður, eitthvað
lítið á kvöldin, drekka nóg af vatni á dag og gleyma ekki ávöxtum og
grænmeti. Góð heilsa ætti ekki að vera dýr, það eru aðrir sem gera
hana dýra.
Birgitta Jónsdóttir Klasen
https://www.birgittajonsdottirklasen.com
https://www.heilsumiðstöð birgittu/facebook.com
Læknisaðferðir
Birgitta Jónsdóttir Klasen skrifar
Fjárfestingaráætlun til framtíðar
sterkt þar til nýfrjálshyggjumenn
undir forystu repúblíkana á níunda
áratugnum molaði þá samfélags-
gerð innan frá með hömlulausri
einkavæðingu og skattalækkunum
á þá ríku og betur stæðu.
Nýr Herjólfur, Suðurlands-
vegur og Leifsstöð
Í fjárfestingarplaninu er komið víða
við og snertir það alla landshluta
og fjölmargar greinar. Ekki síst þær
sem flokkast undir grænt hagkerfi,
ferðaþjónustu og kvikmyndagerð.
Þá er myndarlegum skerf varið til
samgönguframkvæmda og mann-
virkjagerðar.
Til að mynda smíði á nýjum Herj-
ólfi, uppbyggingu leiguíbúða og
viðbyggingu við Leifsstöð og Kefla-
víkurflugvöll. Með þessum hætti er
verið að flýta uppbyggingu mikil-
vægra verkefna sem hafa mikið
samfélagslegt gildi og skila miklu af
sér og hratt.
Þá er óskiptum potti varið til að
flýta gerð samgöngumannvirkja
sem samgöngunefnd þingsins er
gert að skipta. Mikilvæg mál á borð
við breikkun Suðurlandsvegar eru
þar efst á blaði enda arðbærasta
samgönguframkvæmd á landinu
öllu. Breikkun vegarins skiptir
miklu máli bæði í byggðalegu sam-
hengi og umferðaröryggislegu. Því
er mikilvægt að halda hratt áfram
að skilja á milli akreina þessa fjöl-
farna og umferðarþunga vegar.
Í heild sinni eykur áætlunin lands-
framleiðslu um ríflega 2,5% á ári og
atvinnuleysi gengur hraðar niður
en ella. Þau auknu efnahagsum-
svif sem felast í þessari áætlun
munu auka skatttekjur og draga úr
kostnaði vegna atvinnuleysis svo
milljörðum skiptir. Áætlað er að
ríkissjóður fái aukna skatttekjur
sem gætu numið um 17 millj-
örðum króna á þremur árum og
sparað 2-3 milljarða vegna minna
atvinnuleysis. Því er ástæða til þess
að fagna gerð þessarar áætlunar um
framtíðarfjárfestingar í innviðum
landsins sem rís nú hratt úr stuttu
skeiði samdráttar og erfiðleika.
n Fréttadeild í síma 421 0002