Víkurfréttir - 24.05.2012, Page 24
Ömmur á hverju strái
Skellti mér á útimarkað með mæðgunum í morgun. Fínt að bera pokana. Nenni helst ekki að kaupa eitthvað sjálfur enda þær
miklu duglegri að gramsa. Og alltaf finna þær eitthvað. Handa mér
líka. Ég leyfi mér hins vegar að virða fyrir mér mannfólkið í allri
sinni flóru og dýrð. Eins og að vera á alheimsmarkaði. Kynþættir
í öllum regnbogans litum. Ýmist að kaupa eða selja. Áhugavert
að versla við Afríkufólkið. Reyna að selja manni sólgleraugu,
belti eða úr. Andskoti lunkið að leiða þig áfram og athuga hvar
sársaukamörkin liggja í buddunni. „Best price for you my friend!“ Lækka sig niður
úr öllu velsæmi. Endaði eitt árið með tvær stórar tréstyttur, fimmtán kíló hvor um
sig. Við heimferð fór kallinn í ferðatösku en kerlingin endaði hjá flugfreyjunum í
handfarangri.
Spánverjarnir eru líka dásamlegir. Gala og tala eins og allir séu heyrnalausir. Nema þeir sjálfir. Selja grænmeti og ávexti beint frá býli. Tínt í morgun, segja
þeir. Miklu ferskara en í búðunum. Og ódýrara. Engin aukaálagning. Ekkert
strimla- eða kassakerfi í gangi. Nema jú, aurarnir fara ofan í kassa. Skókassa. Allt til
sölu undir svartri blæju. Gömlu konurnar mæta eldsnemma með töskurnar sínar.
Draga þær á eftir sér á hjólum. Allar pínulitlar og krúttlegar. Í rósóttum hnésíðum
kjólum. Opnum pallíettuskóm. Minna mig svakalega á ömmu mína sálugu úr
Höfnum, glettnar og hýrar á brá, með gleraugun á nefinu og Fortuna í munnvikinu.
Hásar af kjaftagangi. Saumaklúbbar úti á götu.
Hugurinn ber mig heim, eitt augnablik. Suður í Hafnir. Niður í fjöru. Gamla bátalagið hans afa. Gott að sitja þar og skjóta steinum í hafflötinn. Fleyta kerl-
ingar. Rifja upp stórlúðulöndun á bryggjunni. Amma heima að baka flatkökur. Inni
í búri að púa. Afi mátti ekki sjá. Horfi á afsteypu af vitanum inni í stofu. Reykjanes-
vita. Stórfenglegur staður. Öldurótið lemur á björgunum. Síðasti geirfuglinn eins og
vitavörður í suðri. Gunnuhver í næsta nágrenni eins og kraumandi grýlupottur.
Ætlarðu að standa þarna eins og þvara“ söng í frúnni sem komin var tíu básum neðar. Búin að róta í fatahrúgunum, fletta nokkrum skópörum og var að
máta mussu. „Hvernig líst þér á þessa? Keypti líka agalega falleg náttföt fyrir okkur
bæði. Mín úr silki!“ Ég kinkaði kolli og brosti. Mínu breiðasta. Þurfti að leita að
tengdó, sem var komin að bás bakarans. Nýbakað brauð og bollur. Ömmur vilja
alltaf hafa eitthvað með kaffinu.
vf.is
Fimmtudagurinn 24. maí 2012 • 21. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr KOMDU
Í GOLF
Í LEIRUNNI
NÝJAR
MOTTUR Á
ÆFINGASVÆÐINU.
OPIÐ TIL 22:00
JÓEL 6 HOLU
ÆFINGA-
VÖLLUR HENTAR
VEL FYRIR
BYRJENDUR
HAFIÐ SAMBAND Í
SÍMA 421 4100 EÐA
NETFANGIÐ GS@GS.IS
Heklan, Eldey þróunarsetur, SKASS og Menningar-
ráð Suðurnesja kynna kraumandi hönnun á
Suðurnesjum fimmtudaginn 31. maí 2012.
Heiðursgestur er frú Dorrit Moussaief
Dagskrá hefst stundvíslega kl. 19:30:
- Afhending styrkja Menningarráðs Suðurnesja 2012
- Ragnheiður Friðriksdóttir segir frá hönnunarferðum
Reykjavík Concierge á Suðurnesjum
- Tískusýning hönnuða af Suðurnesjum
- Opnar vinnusmiðjur hönnuða í Eldey
- Sýning á hönnun á Suðurnesjum
Léttar veitingar og lifandi tónlist
Fyrirtæki sem taka þátt: Bláa Lónið, Sif Cosmetics,
Fríhöfnin og Íslandsbanki.
SUÐURNES | GARÐUR | GRINDAVÍK | REYKJANESBÆR | SANDGERÐI | VOGAR
Dutyfree Fashion er öflugur bakhjarl íslenskrar hönnunar.
Fríhöfnin og Dutyfree Fashion eru einn stærsti sýningargluggi
landsins fyrir íslenska hönnun og framleiðslu.
HEKLUGOS
Á SUÐURNESJUM
ELDEY, ÞRÓUNARSETUR
GRÆNÁSBRAUT 506, 235 ÁSBRÚ, REYKJANESBÆ
Víkurfréttir vantar starfsmann
í sölu og móttöku auglýsinga
Óskum eftir að ráða hressan og duglegan einstakling
í auglýsingadeildina okkar. Um er að ræða fullt starf.
Viðkomandi þarf að hafa þjónustulund og vera góður
í mannlegum samskiptum en jafnframt að vera skipu-
lagður og hafa aga, hörku og dugnað til að geta selt
auglýsingar í miðla fyrirtækisins.
Góð íslenskukunnátta er mikilvæg og kunnátta á helstu
tölvuforrit sem eru nauðsynleg í samskiptum og skipu-
lagi er nauðsyn.
Umsóknir er tilgreini allar helstu upplýsingar umsækj-
anda sendist á Pál Ketilsson, ritstjóra, á pket@vf.is.
Skrifstofur Víkurfrétta flytja innan tíðar á
4. hæð í Krossmóa 4. Þetta er útsýnið þaðan.