Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.05.2012, Síða 24

Víkurfréttir - 24.05.2012, Síða 24
Ömmur á hverju strái Skellti mér á útimarkað með mæðgunum í morgun. Fínt að bera pokana. Nenni helst ekki að kaupa eitthvað sjálfur enda þær miklu duglegri að gramsa. Og alltaf finna þær eitthvað. Handa mér líka. Ég leyfi mér hins vegar að virða fyrir mér mannfólkið í allri sinni flóru og dýrð. Eins og að vera á alheimsmarkaði. Kynþættir í öllum regnbogans litum. Ýmist að kaupa eða selja. Áhugavert að versla við Afríkufólkið. Reyna að selja manni sólgleraugu, belti eða úr. Andskoti lunkið að leiða þig áfram og athuga hvar sársaukamörkin liggja í buddunni. „Best price for you my friend!“ Lækka sig niður úr öllu velsæmi. Endaði eitt árið með tvær stórar tréstyttur, fimmtán kíló hvor um sig. Við heimferð fór kallinn í ferðatösku en kerlingin endaði hjá flugfreyjunum í handfarangri. Spánverjarnir eru líka dásamlegir. Gala og tala eins og allir séu heyrnalausir. Nema þeir sjálfir. Selja grænmeti og ávexti beint frá býli. Tínt í morgun, segja þeir. Miklu ferskara en í búðunum. Og ódýrara. Engin aukaálagning. Ekkert strimla- eða kassakerfi í gangi. Nema jú, aurarnir fara ofan í kassa. Skókassa. Allt til sölu undir svartri blæju. Gömlu konurnar mæta eldsnemma með töskurnar sínar. Draga þær á eftir sér á hjólum. Allar pínulitlar og krúttlegar. Í rósóttum hnésíðum kjólum. Opnum pallíettuskóm. Minna mig svakalega á ömmu mína sálugu úr Höfnum, glettnar og hýrar á brá, með gleraugun á nefinu og Fortuna í munnvikinu. Hásar af kjaftagangi. Saumaklúbbar úti á götu. Hugurinn ber mig heim, eitt augnablik. Suður í Hafnir. Niður í fjöru. Gamla bátalagið hans afa. Gott að sitja þar og skjóta steinum í hafflötinn. Fleyta kerl- ingar. Rifja upp stórlúðulöndun á bryggjunni. Amma heima að baka flatkökur. Inni í búri að púa. Afi mátti ekki sjá. Horfi á afsteypu af vitanum inni í stofu. Reykjanes- vita. Stórfenglegur staður. Öldurótið lemur á björgunum. Síðasti geirfuglinn eins og vitavörður í suðri. Gunnuhver í næsta nágrenni eins og kraumandi grýlupottur. Ætlarðu að standa þarna eins og þvara“ söng í frúnni sem komin var tíu básum neðar. Búin að róta í fatahrúgunum, fletta nokkrum skópörum og var að máta mussu. „Hvernig líst þér á þessa? Keypti líka agalega falleg náttföt fyrir okkur bæði. Mín úr silki!“ Ég kinkaði kolli og brosti. Mínu breiðasta. Þurfti að leita að tengdó, sem var komin að bás bakarans. Nýbakað brauð og bollur. Ömmur vilja alltaf hafa eitthvað með kaffinu. vf.is Fimmtudagurinn 24. maí 2012 • 21. tölublað • 33. árgangur auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001 FIMMTUDAGSVALS VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr KOMDU Í GOLF Í LEIRUNNI NÝJAR MOTTUR Á ÆFINGASVÆÐINU. OPIÐ TIL 22:00 JÓEL 6 HOLU ÆFINGA- VÖLLUR HENTAR VEL FYRIR BYRJENDUR HAFIÐ SAMBAND Í SÍMA 421 4100 EÐA NETFANGIÐ GS@GS.IS Heklan, Eldey þróunarsetur, SKASS og Menningar- ráð Suðurnesja kynna kraumandi hönnun á Suðurnesjum fimmtudaginn 31. maí 2012. Heiðursgestur er frú Dorrit Moussaief Dagskrá hefst stundvíslega kl. 19:30: - Afhending styrkja Menningarráðs Suðurnesja 2012 - Ragnheiður Friðriksdóttir segir frá hönnunarferðum Reykjavík Concierge á Suðurnesjum - Tískusýning hönnuða af Suðurnesjum - Opnar vinnusmiðjur hönnuða í Eldey - Sýning á hönnun á Suðurnesjum Léttar veitingar og lifandi tónlist Fyrirtæki sem taka þátt: Bláa Lónið, Sif Cosmetics, Fríhöfnin og Íslandsbanki. SUÐURNES | GARÐUR | GRINDAVÍK | REYKJANESBÆR | SANDGERÐI | VOGAR Dutyfree Fashion er öflugur bakhjarl íslenskrar hönnunar. Fríhöfnin og Dutyfree Fashion eru einn stærsti sýningargluggi landsins fyrir íslenska hönnun og framleiðslu. HEKLUGOS Á SUÐURNESJUM ELDEY, ÞRÓUNARSETUR GRÆNÁSBRAUT 506, 235 ÁSBRÚ, REYKJANESBÆ Víkurfréttir vantar starfsmann í sölu og móttöku auglýsinga Óskum eftir að ráða hressan og duglegan einstakling í auglýsingadeildina okkar. Um er að ræða fullt starf. Viðkomandi þarf að hafa þjónustulund og vera góður í mannlegum samskiptum en jafnframt að vera skipu- lagður og hafa aga, hörku og dugnað til að geta selt auglýsingar í miðla fyrirtækisins. Góð íslenskukunnátta er mikilvæg og kunnátta á helstu tölvuforrit sem eru nauðsynleg í samskiptum og skipu- lagi er nauðsyn. Umsóknir er tilgreini allar helstu upplýsingar umsækj- anda sendist á Pál Ketilsson, ritstjóra, á pket@vf.is. Skrifstofur Víkurfrétta flytja innan tíðar á 4. hæð í Krossmóa 4. Þetta er útsýnið þaðan.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.