Fréttablaðið - 21.09.2015, Síða 4

Fréttablaðið - 21.09.2015, Síða 4
hágæða vítamín Bandaríkin Fylgi Donalds Trump fellur úr 32 prósentum niður í 24 prósent og fylgi Carly Fiorina fimm- faldast, úr þremur prósentum og upp í fimmtán. Þetta kemur fram í nýrri könnun fréttastofu CNN sem greint var frá í gær. Miklar breytingar urðu á fylgi repú- blikana sem sækjast eftir útnefningu flokksins til forsetaframboðs á næsta ári í kjölfar kappræðna á miðvikudag. Trump kom einna verst út samkvæmt skoðanakönnun CNN en ef fylgis- tölurnar eru skoðaðar er Fiorina ótví- ræður sigurvegari. Skoðanakönnun CNN er áhyggju- efni fyrir fleiri frambjóðendur en Trump. Þrátt fyrir að hafa virst sigur- stranglegastur fyrir nokkrum vikum og hundrað milljóna Bandaríkjadala kosningasjóð – stærri en kosninga- sjóður nokkurs annars af frambjóð- endunum – hefur Jeb Bush nú mis- tekist í tvígang að nýta sér kappræður til að komast aftur í toppbaráttuna. Scott Walker fær einnig skell í könn- uninni og missir fylgi sitt. Nú mælist hann undir hálfu prósenti en í sumar var hann meðal efstu manna. Walker hefur hrapað úr tæplega tuttugu pró- sentum og niður á botn. Þá leiddi hann einnig lengi vel í Iowa en það ríki kýs frambjóðanda fyrst allra. - þea Fiorina rís en fylgi Trump og Walker fellur í nýrri skoðanakönnun 9. sept. 20. sept. Donald Trump 32% 24% Carly Fiorina 3% 15% Ben Carson 14% 19% Marco Rubio 3% 11% Jeb Bush 9% 9% Ted Cruz 7% 6% Mike Huckabee 5% 6% Rand Paul 3% 4% Chris Christie 2% 3% John Kasich 2% 2% Scott Walker 5% 0% náttúra „Heiti potturinn hlýtur að vera sá stærsti í heiminum, segir Hörður Jónasson ökuleiðsögumaður um nýja baðstaðinn í Holuhrauni. Hörður var á ferð í Holuhrauni um síðustu helgi og tók þá meðfylgjandi myndir á hinum nýja áfangastað sem jafnt innlendir sem erlendir ferða- menn stefna nú á. „Þetta er einstakur baðstaður á heimsvísu,“ segir Hörður. „Heitt jökulvatn úr suðurenda Holuhrauns, bræðsluvatn frá Dyngjujökli rennur norður, undir og í gegnum hraunið og kemur undan því í norðurend- anum. Þetta er mikið magn af vatni, um 35 til 40 gráðu heitu.“ Í hraunjaðrinum er skál sem Hörður telur vera um 400 til 500 fer- metra og því líkast til stærsti heiti pottur í heimi sem fyrr segir. „Úr skálinni rennur svo heitt vatn út og myndar ána sem er um 40 senti- metra djúp. Notalegur straumurinn í ánni virkar sem nuddpottur,“ lýsir Hörður. En það er ýmislegt að varast. Nýja hraunið er geysi oddhvasst. „Það er nauðsynlegt að hafa tvenna skó meðferðis því það þarf vaðskó í ánni og þó aðallega í heita pottinum sem er inni í hrauninu,“ segir Hörður. Þá getur sjálft vatnið verið var- hugavert. „Hitastig hefur verið sveiflukennt, hefur farið í 50 gráður,“ segir í aðvörunarskilti frá Vatnajökulsþjóðgarði.   gar@frettabladid.is Einn stærsti heiti pottur í heimi Risavaxinn pottur í Holuhrauni dregur að sér ferðamenn sem vilja baða sig í heitu jökulvatninu sem rennur undan hraunjaðrinum. Þeir þurfa þó að varast hitasveiflur í vatninu sem hefur farið upp í 50 gráður. Það borgar sig að fara með gát í úfnu hrauninu. Mynd/Hörður Jónasson Nýjasti baðstaður landsins er jafnframt einn sá áhugaverðasti. Mynd/Hörður Jónasson ferkílómetrar af hrauni stóðu eftir gosið sem stóð í Holuhrauni frá 31. ágúst 2014 til 28. febrúar 2015.85 króatía Lögregluyfirvöld í Króatíu sögðu í gær að um 27.000 flóttamenn hefðu komið til landsins frá því á miðvikudag. Straumur flóttamanna beindist til Króatíu eftir að Ungverjar lokuðu landamærum sínum við Serbíu með gaddavírsgirðingu. Ranko Ostojic, innanríkisráðherra Króatíu, bað flóttamenn um að hætta að reyna að komast til Vestur-Evrópu í gegn um Króatíu síðastliðinn föstudag en þá höfðu um tíu þúsund flóttamenn komið til landsins á einungis tveimur dögum. Frá því ummælin féllu hafa Króatar farið að beina flóttamönnum aftur til Ungverjalands en markmið flóttamannanna er að komast til Slóveníu, sem er hluti af Schengen, og þaðan til vesturs þar sem landamærin eru opin. – þea 27 þúsund flóttamenn á síðustu dögum Bernie Sanders hefur sótt í sig veðrið. Nordicphotos/AFP Bandaríkin Will Ferrell. Sarah Silver- man, Hans Zimmer og Steve Wozniak eru á meðal 126 bandarískra stór- stjarna sem skrifuðu undir stuðn- ingsyfirlýsingu við forsetaframbjóð- andann Bernie Sanders í gær. „Við undirrituð, listamenn, tón- listarmenn og menningarleiðtogar Bandaríkjanna, erum tilbúin til að styðja nýja sýn fyrir landið okkar,“ segir í yfirlýsingunni, sem er áhuga- verð, ekki síst fyrir þær sakir að enginn þingmaður eða ríkisstjóri úr röðum demókrata hefur lýst yfir stuðningi við Sanders. Sanders sæk- ist eftir útnefningu demókrata til forsetaframboðs og saxar nú hratt á forskot Hillary Clinton. – þea 126 fræg styðja Bernie Sanders Fylgi Scotts Walker hefur fallið niður í 0% » Grikkland Vinstriflokkurinn Syriza, flokkur Alexis Tsipras, mældist með 35 prósent atkvæða í þingkosningum á Grikklandi þegar um helmingur atkvæða var talinn í gærkvöldi og hafði Vangelis Meimarakis, leið- togi stjórnarandstöðuflokksins Nýs lýðræðis, lýst yfir ósigri snemma í gærkvöld. Samkvæmt tölunum heldur samsteypustjórn Syriza og Sjálfstæðra Grikkja með um 155 sæti af 300. Mjótt var á munum milli Syriza og Nýs lýðræðis  í skoðanakönnunum undanfarna daga en þegar helmingur atkvæða var talinn mældist Nýtt lýð- ræði með 28 prósent atkvæða. Öfga- þjóðernishyggjuflokkurinn Gullin dögun mældist þriðji stærstur með um  sjö prósent atkvæða. Þá náði Sameiningarflokkur alþýðunnar, klofningsframboð úr Syriza, ekki manni inn á þing. Tsipras skrifaði alvörugefin skila- boð til stuðningsmanna sinna á Twitter-síðu sinni. „Fram undan liggur vegur vinnu og erfiðleika,“ skrifaði hann. Tsipras boðaði til kosninganna í kjölfar uppreisnar samflokksmanna hans sem stofnuðu Sameiningar- flokk alþýðunnar, en kosningarnar í gær eru þriðji kosningasigur Tsipras á árinu. Flokkur hans var ótví- ræður sigurvegari þingkosninganna í janúar og þá kusu Grikkir gegn skil- málum lánardrottna Grikkja fyrir nýrri neyðaraðstoð í júlí eins og Tsipras mælti með. Þó samþykkti Tsipras að lokum svipaða skil- mála og neitað hafði verið. Kosningarnar eru þær þriðju í röð þar sem tveir stærstu flokkar landsins í sögu- legu samhengi, Nýtt lýðræði og Pasok, ná ekki meirihluta. En áður hafði saman- lagt fylgi flokkanna rokkað á milli 77 og 87 prósenta. – þea Þriðji kosningasigur Tsipras á árinu Alexis Tsipras 2 1 . s e p t e m B e r 2 0 1 5 m á n U d a G U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð 2 1 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 5 4 -4 D C 8 1 6 5 4 -4 C 8 C 1 6 5 4 -4 B 5 0 1 6 5 4 -4 A 1 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.