Fréttablaðið - 21.09.2015, Side 8

Fréttablaðið - 21.09.2015, Side 8
Íslendingar elska Skoda enda eru vandfundnari bílar sem henta íslenskum fjölskyldum betur. Þeir eru einstaklega rúmgóðir, sparneytnir, endingargóðir og frábærir í endursölu. Komdu við hjá okkur í Heklu og prófaðu skemmtilega Skoda. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is Eyðsla frá 3,8 l/100 km 2CO frá 99g/km 5 stjörnur í árekstrarprófi EuroNcap SKEMMTILEGUR Á ALLA VEGU Nýr SKODA Octavia frá 3.420.000 kr. 15. september Kveðjutillaga Bjarkar samþykkt um að undirbúa og útfæra sniðgöngu Reykjavíkurborgar á ísraelskum vörum á meðan hernám Ísra- elsríkis á landsvæði Palestínumanna varir. Dagur viður- kennir mistök og telur að undirbúa hefði mátt sniðgöngu Reykjavíkur- borgar á ísra- elskum vörum betur. Fráleit ákvörðun segir Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son um ákvörðun borgarinnar. Hún hafi þegar skaðað viðskiptahags- muni Íslands. Áréttað um utanríkis- stefnu hjá utanríkis- ráðuneytinu. Ákvörðun borgar- stjórnar ekki í samræmi við utanríkis- stefnu Íslands og heldur ekki til marks um tengsl Íslands og Ísraels. Ríkisstjórnin fundar og áréttar að ákvörðun borgarstjórnar sé ekki í samræmi við utanríkis- stefnu Íslands og ekki heldur til marks um tengsl Íslands og Ísraels. Dagur vill draga til baka tillögu um að sniðganga vörur frá Ísrael og seg- ist ætla að breyta texta tillögunnar á fundi borgar- ráðs á fimmtu- dag. Það kom meðal annars fram í fréttum Stöðvar 2. Ákvörðunin hræsni segir fyrrverandi fjármálaráðherra Ísraels í grein sem hann skrifaði í Fréttablaðið um ákvörðun borgar- stjórnar. Fundi flýtt að beiðni minni- hluta borgar- stjórnar. Auka- fundur fékkst samþykktur á þriðjudag. Efni fundarins verða tillögur um að draga til baka samþykkt borgar- stjórnar. Hlýtur að íhuga afsögn segir Hildur Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks- ins, um borgar- stjóra. Hann þurfi að endurvinna traust borgarbúa. Dagur leitar ráða hjá Frank Jensen, borgarstjóra Kaup- mannahafnar. Hann segir næstu skref vera að draga tillögu um sniðgöngu til baka. Ekki verður lögð til bætt út- færsla tillögunnar. 18. september 20. september19. september Stjórnmál „Viðbrögð við samþykkt borgarinnar voru meiri en þegar Íslands lýsti yfir stuðningi við sjálf- stæða Palestínu, sem varð heimsfrétt,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sem hefur viðurkennt mistök í sam- þykkt borgarinnar um sniðgöngu á ísraelskum vörum. „Við vissum að það yrðu viðbrögð en þau hafa verið meiri en við bjugg- umst við. Sér í lagi vegna þess að sam- þykktin er gerð í kjölfar ákvarðana annarra borga, svo sem Kaupmanna- hafnar og Árósa.“ Kaupmannahafnarborg ákvað að sniðganga vörur frá hernumdum svæðum fyrr í sumar og þar hefur ákvörðunin ekki dregið jafn mikinn dilk á eftir sér. Dagur hefur viðurkennt að orðalag bókunarinnar hafi ekki verið nákvæmt, þar komi ekki nógu skilmerkilega fram að átt sé við vörur frá hernumdum svæðum. Það hafi þó verið ætlunin. Hann hefur verið í símasambandi við borgarstjórann í Kaupmannahöfn, Frank Jensen og þegið af honum ráð. „Það var áréttað af honum í fjölmiðl- um og á fundum með ísraelska sendi- herranum til hverra sniðgöngubannið náði, aðeins til hernuminna svæða. Við í borginni munum líka vera í samráði við utanrík- isráðuneyti,“ bætir Dagur við en ráðuneytið þurfti að árétta utan- ríkisstefnu sína eftir samþykkt borgarinnar og að ákvörðunin væri ekki í samræmi við utanríkisstefnu Íslands og ekki heldur ekki til marks um tengsl Íslands og Ísraels. Aðilar ferðaþjón- ustunnar hafa helst orðið varir við upp- nám vegna ákvörðunar Reykja- víkurborgar. Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir ferðaskrifstofur hafa fengið ótal fyrirspurnir og tölvupósta, afbókanir og haturs póst. Þrjú þúsund ferðamenn frá Ísrael sóttu landið heim á síðasta ári. „Við höfum verið að byggja upp ímynd Íslands sem áfanga- staðar. Þetta lýsir því vel hversu fljótt orðið berst á tímum samfélagsmiðla.“ Hildur Sverrisdóttir, varaborgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði í gær að borgarstjóri hlyti að íhuga afsögn sína vegna samþykktar til- lögunnar. Dagur hefur ekki íhugað að segja af sér. „Ég hef viðurkennt að undirbún- ingi hafi verið áfátt og tek ábyrgð á því með tillögu um að fyrri samþykkt verði dregin til baka. Ekki verða tekin frekari skref fyrr en eftir nauðsynlegt samráð. Mér finnst þetta býsna stór orð hjá Hildi. Ég verð að segja það.“ kristjanabjorg@frettabladid.is Engin sniðganga í Reykjavíkurborg Dagur B. Eggertsson þiggur ráð frá borgarstjóra Kaupmannahafnar um sniðgöngu. Frekari skref verða ekki tekin fyrr en eftir samráð. Dagur B. Eggertsson. 2 1 . S e p t e m b e r 2 0 1 5 m á n U D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð 2 1 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 5 4 -5 C 9 8 1 6 5 4 -5 B 5 C 1 6 5 4 -5 A 2 0 1 6 5 4 -5 8 E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.