Fréttablaðið - 21.09.2015, Page 13

Fréttablaðið - 21.09.2015, Page 13
Uppskrift að chili-sUltU Guðrún Þórðardóttir hefur ásamt vinkonum sínum selt ljúffengar sultur á Grímsævintýri, hátíð kvenfélags Grímsstaðahrepps. færri fengu krukku af chili-sultunni þeirra en vildu. sífellt fleiri Íslendingar sækja styttri námskeið í bólstrun með það í huga að endurnýta og flikka upp á eldri húsgögn heimilisins. Rebekka Halldórsdóttir er ein þeirra en hún hefur prjónað, heklað og saumað stóran hluta ævi sinnar. Þegar hún sá auglýst byrjenda­ námskeið í bólstrun ákvað hún að skella sér enda löngum þótt bólstrun heillandi. „Námskeiðið var mjög skemmtilegt og lær­ dómsríkt. Þar áttu þátttakendur að koma með eigin stól til að vinna með og gátu það í raun verið alls kyns stólar; borðstofu­ stólar, eldhússtólar eða minni stólar.“ Stóllinn sem Rebekka tók í gegn á sér smá sögu að hennar sögn. „Fjölskyldan flutti til Dan­ merkur fyrir nokkrum árum. Við seldum öll húsgögnin okkar fyrir brottför og komum því út í tómt hús. Við skelltum okkur því í Rauðakrosshúsið í bænum og þar gróf ég upp þennan fína stóll sem kostaði aðeins 3.000 kr. Stóllinn hefur gengið undir nokkrum nöfnum hjá öðrum fjölskyldumeðlimum, t.d. „ljóti stóllinn“ og „fýlustóllinn“. Mað­ urinn minn hefur nokkrum sinnum reynt að losna við hann en ég hélt nú ekki. Hann leit áður hræðilega út en í dag er hann mjög fallegur og allir eru sáttir.“ Það var Kristján E. Ágústs­ son húsgagnabólstrari sem leiðbeindi hópnum. „Hann er mjög flottur kennari og hafsjór þekkingar og svo sannarlega með húmorinn í lagi. Þar sem ég var nýgræðingur á þessu sviði kunni ég nánast ekkert fyrir og fannst t.d. öll tól og tæki vera risastór. Skærin voru t.d. eins og sveðjur!“ Námskeiðið kveikti áhugann fýlUstóllinn fær nýtt líf EndUrnýtinG Eftir stutt námskeið í bólstrun er hægt að breyta lúnum hús- gögnum heimilisins í fallega húsmuni. fýlUstóllinn Er nú stórGlæsilEGUr. fýlUstóllinn fyrir brEytinGUna. nýtt líf ,,Hann leit áður hræðilega út en í dag er hann mjög fallegur og allir eru sáttir,” segir Rebekka Halldórsdóttir. MYND/GVA Járn & Gler ehf. - Skútuvogur 1h. Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík S: 58 58 900- www.jarngler.is Fyrirtæki - Húsfélög ————————— Við bjóðum upp á sjálfvirkan hurða- opnunarbúnað ásamt uppsetningu og viðhaldi Auðveldar aðgengi, hentar vel fyrir aðgengi fatlaðra. Áratuga reynsla af búnaði tryggir gæðin. 12v 0,8A 12v 5,5A BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS - OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16 CALVIN tungusófi 269X153 cm kr. 227.400FINN skenkur160 cm kr. 138.700 HYPE stólar kr. 35.990 MINIMAL kr. 9.980FINN sófaborð kr. 62.900 FINN TV skenkur 120 cm kr. 68.300 FINN TV skenkur 150 cm kr. 79.800 DIONE stóll kr. 133.500 GYRO stóll kr. 167.900 hjá Rebekku sem langar til að læra meira á þessu sviði. „Mér finnst líka meiri vakning meðal fólks varðandi endurnýtingu eldri húsgagna sem er jákvæð þróun. Draumaverkefnið er æðis­ legur sófi sem við hjónin fengum úr dánarbúi stjúpmóður eigin­ manns míns. Hann er mjög gam­ all og það gæti verið spennandi að takast á við það verkefni.“   n starri@365.is 2 1 -0 9 -2 0 1 5 0 6 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 5 4 -3 E F 8 1 6 5 4 -3 D B C 1 6 5 4 -3 C 8 0 1 6 5 4 -3 B 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.