Fréttablaðið - 21.09.2015, Qupperneq 14
Fólk|
Fólk er kynningarblað sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Heimili
Ég er alin upp við að fara í berjamó og búa til afurðir úr berjunum. Móðir mín gerði alltaf sultur og saft. Um síðustu helgi fór ég í ber
vestur á Barðaströnd og vikan hefur farið í að vinna
úr berjunum. Ég tíni aðallega bláber,“ segir Guð-
rún Þórðardóttir, varforseti Kvenfélagasambands
Íslands, en hún gefur lesendum tvær uppskriftir að
ljúffengum sultum.
Guðrún segir tilvalið að frysta berin og nýta yfir
veturinn eða búa til saft og frysta.
„Ég flokka yfirleitt bestu berin frá og frysti. Fyrir
nokkrum árum keypti ég mér sérstakan pott sem
ég sýð berin í þannig að safinn fer í eitt hólf. Mjög
handhægt og sparar mikla vinnu. Saftina set ég í
flöskur og í frost en það er svo gott að eiga ber og
saft í frysti sem hægt er að nota í matargerð allan
veturinn. Frosin aðalbláber eru algjört sælgæti og
barnabörnin mín hakka þau í sig,“ segir Guðrún.
grímsævintýri
„Undanfarin ár hef ég geymt svolítið af berjum og
saft til að vinnu sultur fyrir Grímsævintýri sem
Kvenfélag Grímsneshrepps stendur fyrir árlega. Þar
höfum við þrjár vinkomur, Friðsemd Erla Þórðar-
dóttir og Kristín Hlíf Ríkharðsdóttir, gert nokkrar
tegundir af sultum og selt við góðan orðstír. Eitt
árið fórum við í Húsdýragarðinn og bauðst að fara
þangað aftur í ár. Sulturnar okkar seldust hins veg-
ar allar upp á Grímsævintýrunum og meðal annars
fengu færri chili-sultu en vildu,“ segir Guðrún.
sultugerð
í grímsnesi
haustverkin Guðrún Þórðardóttir hefur ásamt vinkonum sínum selt ljúf-
fengar sultur á Grímsævintýri, hátíð Kvenfélags Grímsstaðahrepps. Færri
fengu krukku af chili-sultunni þeirra en vildu. Við fengum uppskriftina.
sultugerð Guðrún á markaði kvenfélags Grímsneshrepps, ásamt Friðsemd Erlu Þórðardóttur, en þær hafa ásamt kristínu Hlíf
Ríkharðsdóttur, búið til sultur og selt við góðar undirtektir. mynd/GuðRÚn ÞóRðaRdóttiR
Dragháls 14-16 · 110 Reyk jav ík
S ími 4 12 12 00 · www. i s l e i f u r . i s
L O G I S 1 6 0
T a l i s S V A R I A R C T a l i s S V A R I A R C
m . ú ð a r a
F O C U S 2 6 0
m . ú ð a r a
Gæði fara aldrei úr tísku
T a l i s S V A R I A R C
m . ú ð a r a
T a l i s S
F O C U S 1 6 0
F O C U S 1 6 0 L O G I S 2 6 0
T a l i s S
m . ú ð a r a
Eitt mesta úrval landsins
af eldhúsblöndunartækjum
girnileg sulta Gott er að gæða sér á heimatilbúinni sultu
með góðu og grófu brauði.
Chili-sulta
3 stk. rauðar paprikur
5 stk. stór chili
1 1/2 bolli borðedik
5 1/2 bolli sykur
4 tsk. sultuhleypir
Hreinsa þarf vel bæði paprikur og chili þann-
ig að engin fræ verði eftir. Síðan maukað í mat-
vinnsluvél.
Allt nema sultuhleypir sett í pott og látið
sjóða í um 15 mín. Eftir það er
sultuhleypirinn settur í og
látið sjóða í um 2-3 mín-
útur. Setjið í krukkur og lokið strax.
Drottningarsulta
500 g íslensk jarðarber
Stór banani skorinn í bita
400 g hrásykur
Safi úr 1/2 sítrónu
2 msk. dökkt romm (má sleppa)
Niðurskorin jarðarber, banani, sítrónusafi og sykur
allt sett saman í skál og blandað vel
saman. Setjið plast yfir skálina og
látið standa í 2-3 tíma.
Setið í pott og látið suðuna koma
upp og sjóðið í 4-5 mín. Ef
vill má setja 2 teskeiðar af
hleypiefni en þarf ekki. Hellið í
krukkur og lokið strax.
2
1
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
5
4
-4
3
E
8
1
6
5
4
-4
2
A
C
1
6
5
4
-4
1
7
0
1
6
5
4
-4
0
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K