Fréttablaðið - 21.09.2015, Síða 38
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Íþróttir Evrópsk hreyfivika hefst í dag
og fer kröftuglega af stað um allt land.
Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) stendur
að skipulagningu vikunnar hér á landi en
markmið hennar er að 100 milljónir fleiri
Evrópubúar hreyfi sig reglulega áður en
árið 2020 gengur í garð.
Þetta er í fjórða sinn sem hreyfivikan er
haldin hér á landi og er hún unnin í sam-
starfi við flesta grunnskóla og sveitarfélög
landsins. „Hreyfivikan er að blómstra. Það
er fjölbreytt dagskrá á fjörutíu þéttbýlis-
stöðum á landinu og enn að bætast við,“
segir Sabína Steinunn Halldórsdóttir,
landsfulltrúi UMFÍ.
Meðal þátttakenda er þjóðkirkjan en í
sunnudagaskóla Egilsstaðakirkju verður
svokölluð kirkjuleikfimi og hreyfisöngvar.
„Það er ullarsokkafótbolti, það er flotjóga,
og hestamenn bjóða í reiðtúra. Svo eru
opnar æfingar hjá börnum og foreldrum
boðið með. Það er endalaus fjölbreytni í
gangi,“ segir Sabína.
Hún segir hreyfivikuna vera þvert á ald-
urshópa og allir taki þátt. Sem dæmi um
það má nefna að Félag eldri borgara býður
í dag í vatnsleikfimi í Lágafellslaug og ung-
barnaleikskólinn Ársól ætlar í göngutúr
um Heimahverfið í Reykjavík.
Sabína segir að einkunnarorð UMFÍ
séu „Hver er þín uppáhaldshreyfing?“ og
með því sé reynt að virkja alla. „Okkar
nálgun er sú að heilsan sé félagsleg,
líkamleg og andleg. Við erum svolítið að
agitera fyrir því að fólk finni sína hreyf-
ingu því það eykur líkurnar á að það við-
haldi þeim lífsmáta að stunda það sem
það hefur gaman af.“ snaeros@frettabladid.is
Vilja að allir finni sína
uppáhaldshreyfingu
Nærri fjögur hundruð viðburðir tengdir hreyfingu eru á dagskrá evrópskrar hreyfiviku sem
hefst í dag. Kirkjan, sveitarfélög, grunnskólar og líkamsræktarstöðvar eru meðal þátttakenda.
Sabína Steinunn Halldórsdóttir segist finna mikinn meðbyr með evrópsku hreyfivikunni. Allir vilji vera með. Fréttablaðið/Anton Brink
Merkisatburðir
Það er ullarsokkafót-
bolti, það er flotjóga og
hestamenn bjóða í reiðtúra. Svo
eru opnar æfingar hjá börnum
og foreldrum boðið með.
Listaháskóli Íslands var stofnaður
þennan dag fyrir sautján árum. Skólinn
var stofnaður með skipulagsskrá sem
var undirrituð af fulltrúum Bandalags
íslenskra listamanna og menntamála-
ráðuneytisins. „Þar með er þessum
áfanga náð. Allt vinnst þetta með tím-
anum," sagði Björn Bjarnason, þáver-
andi menntamálaráðherra, í samtali við
Morgunblaðið.
Samkvæmt skipulagsskrá er skólanum
ætlað að bjóða upp á æðri menntun á
sviði lista og að stuðla að eflingu list-
menntunar þjóðarinnar og fræða lands-
menn um listir og menningu. Upp-
bygging skólans var ör en árið 2000 tók
hann upp leiklistarkennslu og árið 2001
bættist tónlistarnám við auk hönnunar-
deildarinnar. Árið 2002 bættist arkitektúr,
vöruhönnun og fatahönnun við.
Skólinn fékk aðsetur við Laugarnesveg
91 sem gjarnan var kallað SS-húsið en
kennsla hófst fyrst haustið 1999.
Þ Etta g E R ð i St
2 1 . S E p t E M b E R 1 9 9 8
Listaháskóli Íslands stofnaður
Frá útskriftarsýningu nemenda við Listaháskólann árið 2004.
1919 Jarðskjálfti ríður yfir Reykja-
nesið með þeim afleiðingum
að Reykjanesviti skemmist mikið.
1936 Franska herskipið L'Aud-
acieux kemur til landsins og
vekur athygli fyrir þær sakir að
það er hraðskreiðasta skip heims
á þessum tíma og fór fjörutíu
og fjóra hnúta, eða sjómílur, á
klukkustund.
1937 Hobbitinn, The Hobbit, eftir
J.R.R. Tolkien kemur út í fyrsta
skiptið þennan dag í Bretlandi.
1963 Skipherrann Eiríkur Krist-
ófersson er sæmdur æðstu orðu
sem Breta veita erlendum mönn-
um. Hlýtur hann orðuna fyrir þátttöku sína í að bjarga breskum
sjómönnum.
1964 Malta lýsir yfir sjálfstæði frá Bretum
1976 Fyrsta alþjóðlega pönkhátíðin er haldin, þá á Club 100 í
London.
1985 Grímudansleikur eftir Verdi er frumsýndur í Þjóðleikhúsinu
þennan dag og þykir Kristján Jóhannsson slá rækilega í gegn.
1991 Armenía lýsir yfir sjálfstæði
1998 Listaháskóli Íslands er stofnaður
2013 Hryðjuverkamenn frá Sómalíu, Al-Shabab, ráðast á West-
gate-verslunarmiðstöðina í Naíróbí í Kenýa. Fjöldi fólks var myrtur í
verslunarmiðstöðinni og hátt í tvö hundruð manns særðust.
Útför elskulegs föður,
tengdaföður, afa og langafa
Óla Vals Hanssonar
fv. garðyrkjuráðunautar hjá
Búnaðarfélagi Íslands
verður gerð frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 23. september kl. 13.
Rolf Hansson Herdís Sveinsdóttir
Ómar B. Hansson Guðríður A. Kristjánsdóttir
Óttar Rolfsson Sunna K. Símonardóttir
Nína Margrét Rolfsdóttir Björgvin H. Björnsson
Jakob Rolfsson Margrét Ó. Halldórsdóttir
Jökull Rolfsson
Óli Valur Ómarsson
Björn Dúi Ómarsson
Embla Sól, Iðunn og Björn Erik
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Hjördís Vigfúsdóttir
Þorláksgeisla 33,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans
laugardaginn 12. september. Okkar
innilegustu þakkir til starfsfólks 11E, sem
annaðist hana af alúð í veikindum hennar. Útförin fer fram
frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 24. september kl. 15.00.
Vignir Jónsson
Heimir Jónsson Jóhanna K. Jónsdóttir
Fríða J. Jónsdóttir Auðunn G. Árnason
Hörður Jónsson Ingibjörg Kolbeinsdóttir
og barnabörn.
TímamóT 2 1 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m Á N U D A G U r
2
1
-0
9
-2
0
1
5
0
6
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
5
4
-3
A
0
8
1
6
5
4
-3
8
C
C
1
6
5
4
-3
7
9
0
1
6
5
4
-3
6
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K