24 stundir - 10.10.2007, Blaðsíða 20

24 stundir - 10.10.2007, Blaðsíða 20
Mis­jafn­lega gen­gur að s­para og mörgum gen­gur illa að los­a s­ig við s­kuld­ir í þeim tilgan­gi að hagræða í heimilis­reks­trin­um. „Það sem öllu skiptir er að mánaðarlegar tekjur séu að jafnaði hærri en útgjöldin,” segir Tómas N. Möller, forstöðumaður Verðbréfa- og Lífeyrissjóðsþjónustu Landsbank- ans. „Það sem við ráðleggjum fólki að gera er að skoða hversu mikið það þénar og hversu miklu það eyðir. Staða fjármála heimilisins ræðst ekki endilega af því hve tekjurnar eru miklar heldur af því hvort fólk hafi yfirsýn yfir fjármálin og sýni sæmilega fyrirhyggju.” Mik­il­vægt að l­osa sig við dýr l­án Tómas segir mikilvægt að fólk losi sig við dýr skammtímalán. „Fólk þarf að forðast neyslulán sem eru hvað dýrust eins og yfirdrátt- arlán nema um sé að ræða tíma- bundnar sveif lur eins og yfir jóla- mánuðinn eða eitthvað slíkt. En þá þarf líka að vera með áætlun um það hvernig skal ná yfirdrættinum niður. Þá er annað hvort að inn- leysa einhvern sparnað á móti eða draga saman seglin næstu mánuði. Eins þarf að hafa gott yfirlit yfir það hvaða lán maður er með og til hvers maður hefur tekið þau. Ef tekið er fjármögnunarlán eins og fyrir bíl þá er skynsamlegra að hafa þau lán heldur styttri, svo ekki sé verið að borga af bíl sem er úr sér genginn. Ef verið er að kaupa bíl sem endist að öllum líkindum ekki nema í sex til sjö ár skal taka lánið til skemmri tíma.” Hjá f lestum felst nú stærsta lán- takan í fasteignalánum. „Þegar svo stór lán eru tekin þarf fólk að setj- ast niður og velta því fyrir sér hvort það eigi að taka lán til 25 eða 40 ára, með föstum eða breytilegum vöxtum, innlent eða erlent lán. Þá er um að gera að leita til fjármála- ráðgjafa til þess að taka lán við hæfi.” Óþarfa útgjöl­d notuð í sparnað Þegar kemur að sparnaði er viðkvæðið oft að maður hafi ekki efni á því, að minnsta kosti ekki strax. „Við mælum með því að debet- og kreditkortareikningar síðustu tveggja til þriggja mánaða séu skoðaðir til þess að sjá í hvað peningarnir fara. Annars vegar eru það nauðsynleg útgjöld eins og bensín á bílinn og afborgun af hús- inu. Svo er það eyðsla í eitthvað sem er skemmtilegt og þess virði, hlutir sem gefa lífinu lit. En hins vegar eru það útgjaldaliðir sem fara í eitthvað sem skilur ekkert eftir. Flestir eyða heilmiklu í hluti sem skilja ekkert eftir sig. Þá er um að gera að taka þessi útgjöld og nota þann pening í sparnað eða til þess að greiða niður leiðindaskuldir.” Tómas segir fólk kannski fresta því að setjast niður og velta fyrir sér einföldum staðreyndum. „Þó að ekki sé nema fimm til tíu þúsunda króna mínus á mánuði þá safnast það upp og er yfirleitt á dýrum vöxtum. Þannig að ef fólk nær jafn- vægi og er jafnvel ekki nema fimm þúsund krónur í plús á mánuði þá skilur býsna mikið á milli. Það má heldur ekki gleyma því að gera ráð fyrir óvæntum útgjöldum samhliða þeim reglubundnu en það er gott að miða við að eiga þriggja til sex mánaða ráðstöfunartekjur í handbærum sparnaði.” Sparnaður hl­uti af útgjöl­dum „Það er margsannað að með því að fjárfesta jafnt og þétt og gera sparn- aðinn að útgjöldum þá er ekki lengi verið að mynda góðan varasjóð. Fólk ætti að venja sig á að taka sparnað- inn til hliðar í hverjum mánuði áður en nokkuð annað er gert. Eins mælum við með því að fólk kaupi í dreifðu verðbréfasafni en í verðbréfasjóðum er hægt að fjár- festa frá fimm þúsund krónum á mánuði og þá er verið að kaupa í mörgum hlutafélögum og fjölda skuldabréfa og hafa margir hagnast vel á því. Þannig að það er alls ekki sama- semmerki á milli þess hversu mikið fólk hefur í tekjur og hversu vel rekstur heimilisins gengur.” MIÐVIKUDAGUR 10. OKTÓBER 20072O stundir Hávaxnir einstaklingar fá að með- altali hærri laun en lágvaxnir ef marka má niðurstöður rannsóknar sem gerð var af sálfræðingum við Háskólann í Pennsylvaníu. Hæð er einnig talin tengjast auknu sjálfsáliti og hærri greindarvísitölu. Rannsókn sýndi fram á að með hverjum sentimetra sem hæðin eykst, aukast árslaunin um 16 þús- und krónur íslenskar á ári að teknu tilliti til kyns, þyngdar, menntunar og starfsaldurs. Hagfræðingar við Princeton-há- skóla vilja hins vegar meina að ástæðan fyrir því að hávaxnir fá hærri laun sé einfaldlega sú að þeir séu greindari. Benda þeir á að há- vaxin börn standi sig að meðaltali betur á greindarprófum en önnur börn. Þar sem hæð hefur einnig verið tengd sjálfsáliti eru meiri líkur á því að hávaxin manneskja sækist eftir starfi sem krefst meira af henni og er betur borgað en rannsakendur segja að sjálfsmynd hafi einnig mikið að segja um það hversu vel fólki gengur á atvinnu- markaði aldri. Hæð tengd sjálfsáliti og greindarvísitölu Há­vaxn­ir fá­ bet­ur borg­að Óþarfa útgjöldum er betur varið í sparnað Ekki flókið að n­á­ t­ök­ um á­ fjá­rmá­lun­um Eft­ir Hildu H. Cort­ez hilda@24stundir.is Korta­notk­un Fylgj­ast skal vel með kortanotkun í hverj­um mánuði og gæta þess að eyða ekki um efni fram. Bergstaðastræti 37 Sími 552 5700 holt@holt.is - www.holt.is tvíréttað í hádeginu á 2.500 kr. einstakt umhverfi, frábær matur og úrvalsþjónusta Borðapantanir í síma 552 5700 og holt@holt.is leið­inda­skuldir Tak­ið ek­k­i neyslulán nema t­il að jafna sk­ammt­ímasveifl­ ur í t­ek­jum og gjöldum. Gerið list­a yfir öll óhagst­æð neyslulán. St­illið upp lánum með þremur dálk­um; sk­uld, af­ borgun á mánuði og fjöldi ógreiddra gjalddaga. Raðið lánum eft­ir lánst­íma, st­yst­a lánið efst­. Greiðið fimm t­il t­íu þúsund k­rónur auk­alega inn á st­yst­a lánið. Fagnið uppgreiðslu fyrst­a lánsins. Greiðið svo sem nemur af­ borgun uppgreidda lánsins ásamt­ auk­agreiðslu inn á næst­a lán og svo k­oll af k­olli. Þegar öll óhagst­æð neyslu­ lán eru uppgreidd er k­jörið að leggja fjárhæðina fyrir t­il að byggja upp sparnað. Auglýsingasíminn er 510 3744 stundir

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.