Nesfréttir - 04.03.1988, Blaðsíða 2

Nesfréttir - 04.03.1988, Blaðsíða 2
NES 2 I íTlíijfi FRETTIP k ■ I Kemur út á föstudögum 'h mánai föstudögum 'h mánaðarlega Útgefandi. Prentsmiðjan NES, Hrólfsskálavör 14. 170 Seltjarnarnesi. Sími 611594. Ábyrgðarmaður: Kristján Jóhannsson. Blaðamaður: Guðrún Kristjánsdóttir. Útlit: MERKILEGT LEIÐARI Fastur þáttur tilverunnar Oft er haft á orði að enginn sakni þess sem hann aldrei hafi séð eða komist í kynni við. Það má heimfæra upp á að hér á Seltjarnarnesinu hefur aldrei verið gefið út blað sem allur almenningur hefur átt greiðan aðgang að. Blöðin sem hér hafa verið gefin út eru öll flokksbundin. Úr því verður nú stefnt að bæta með reglulegri útkomu Nes-frétta í framtíðinni og gera það að föstum þætti í tilveru fólksins. í fyrstu verður það gefið út með hálfsmánaðar millibili. Og ef allt gengur að óskum og jafnvel betur má gera ráð fyrir vikulegri útkomu blaðsins. Stefna okkar er að Nes-fréttir verði vettvangur skoðanaskipta um mannlífið hér í bæ. Ennfremur að hér verði birtar fréttir af því sem er að gerast hverju sinni og fjallað í máli og myndum um hinar ýmsu uppákomur á Seltjarnarnesinu. íþróttum verða gerð góð skil enda mikil gróska innan Gróttu um þessar myndir sem margir hafa ekki haft tækifæri til að fylgjast glögglega með. Við eigum marga unga og efnilega íþróttamenn einkanlega í handboltanum sem sýnir sig í hlutfalli þeirra flokka sem koma til með að berjast um íslandsmeistaratitilinn í ár, en það er yfir helmingur flokkanna. Geri aðrir betur. Blöð sem þetta eru gefin út víða um land. Sem dæmi má nefna eru þrjú blöð af þessum toga gefin út vikulega á Vestfjörðunum, og er beðið með óþreyju eftir hverju þeirra. Á Suðurnesjunum er gefið út drjúgt af slíkum blöðum og um þessar mundir er verið að bæta við öðru blaðinu í Hafnarfirði. Því er ekki hægt að segja annað en að mikill uppgangur sé í útkomu slíkra bæjarblaða. Við hér á Nesinu megum ekki láta okkar eftir liggja enda af nógu að taka. ------------- SEL-BTTTNri? Eiðistorgi - sími 611070 V.oKs'f'S aWötvi ílXXÁ a seKWroarneS' Allar PIZZUR á kynningar- verði föstudag, laugardag og sunnudag KR. 390 Frí heim.sendingarþjónusta þessa daga á Seltjamames og Vesturbæ frá kl. 18.00-22.00 PIZZUR 1 SEL-BITA m/ tómat, osti, skinku, sveppum, papriku, rækju, túnfisk, hvít- lauk og oregano. w/tomato, cheese, ham, musrooms, red pepper, shrimps, tunafísh, carlic and oregano. 2PIRATA m/tómat, osti, rækjum, túnfísk, krækling og oregano w/tomato, cheese, shrimps, tunafísh, mussels and oregano 3 CAZONE (hálfmáni) m/tómat,osti, skinku og oregano w/tomato, cheese, ham and oregano 4 CORONILLA m/tomat, osti, skinku, sveppum og oregano w/tomato, cheese, ham, mushrooms and oregano 5 CHILENA m/tómat, osti, kjúkling, lauk, piparjurt, maís og oregano w/tomato, cheese, chicken, onion, whole pepper, com and oregano 6 SALCHICHA m/tómat, osti, spægi- pylsu, lauk og oregano w/tomato, cheese, salami, onion and oregano 7ISABELLA m/tómat, osti og oregano w/tomato, cheese and oregano 8TORERA m/tómat, osti, nautahakki, sveppum, papriku og oragano w/tomato, cheese, minced beef, mushrooms, red peppers and oregano 9 GITANA (hálfmáni) m/tómat, osti, nautahakki, sveppum og oregano w/tomato, cheese, minced beef, mushrooms and oregano iopicadora m/tómat, osti, olivum, an- sjósum, hvítlauk og oregano (sterk) w/tomato, cheese, olives, anschovys, garlic and oregano (strong) 11 CALABAZA m/tómat, osti, skinku, túnfísk og oregano w/tomato, cheese, ham, tunafísh and oregano 12 QUERIDA m/tómat, osti, skinku, papr- iku og oregano w/tomato, cheese, ham, red peppers and oregano 13 SALVA VIDAS m/tómat , osti,skinku, rækjum og oregano w/tomato, chees, ham, shrimps and oregano 14SONRISA m/tómat, osti, skinku og an- anas w/tomato, cheese, ham and pineapple 15 PEPPITA m/tómat, osti, peppæroni, lauk og oregano w/tomato, cheese, pæpperoni, onion and oregano BARNAPIZZA Einnig lasagna og frábært pizzusalat, hamborgarar samlokur, pítur, snitsel og fískur

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.