Nesfréttir - 04.03.1988, Blaðsíða 6

Nesfréttir - 04.03.1988, Blaðsíða 6
NES 6 Laisertækni til læknismeðferðar í Heilsuræktinni Það er ekki ofsögum sagt að við hér á Seltjarnarnesinu búum yfir mikilli tækni því á dögunum var enn ný tækni tekin til notkunar í Heilsuræktinni, eða svokölluð laisertækni sem kemur sér vel við lækningu ýmissa kvilla. Þessi tækni er viðbót við aðra meðferðartækni sem Hallgrímur Magnússon læknir hefur tileinkað ser i Heilsuræktarstöð sinni hér á Að sögn Hallgríms hefur laiser- tækið þá kosti að meðferðin verður með öllu sársaukalaus og kemur sér vel við lækningu kvilla á borð við vöðvabólgu, þursabit og að ekki sé talað um þrálát mein á borð við fótasár svo eitthvað sé nefnt. Og því fyrr sem fólk leitar sér hjálpar því betra. Við notkun laisertækisins leysist ákveðin orka úr læðingi sem hjálpar meininu að hjálpa sér sjálft ef svo mætti að orði komast. Enn- fremur tjáði Hallgrímur okkur að engir aukakvillar fylgdu meðferðinni en að það væri að vísu persónubund- ið hvaða læknismeðferð hentaði Scltjarnarnesinu. hverjum. Auk þess býður hann upp á sprautumeðferð, TNS tækni og nálastundumeðferðina. Laisertækið sem nýlega var tekið í notkun í Heilsuræktinni. Hér er ekki á ferðinni íbúi frá Mars að heimsækja stjörnuspekinga okkar eins og mörgum hefur eflaust örað fyrir. Heilsuræktin Seltjarnarnesi v/Suðurströnd (sundlaugarbyggingu) Verður opin í sumar sem hér segir: mánudaga til miðvikudaga kl. 8.00-19.00 fimmtudaga og föstudaga kl. 8.00-20.30 laugardaga kl. 10.00-16.00 • Fyrsta tímann þarf að panta en síðan má mæta hvenær sem er á opnunartíma. • Hver einstaklingur er þrekprófaður og útbúið fyrir hann sérstakt prógram. • Tækin sem notuð eru, eru hönnuð af sjúkraþjálfurum. • Sérstakrar varkárni er gætt með eldra fólk og óþjálfaða. • Kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja auka þol sitt og styrkja vöðva I íkamans. • íþróttakennarar ávallt á staðnum. (Metta, Margrét og Ragnheiður) • Nánari upplýsingar fást í síma 611952. ER EKKI LÖNGU KOMINN TÍMI TIL AÐ HRISTA AF SÉR SLENIÐ OG GERA LÍKAMANUM EITTHVAÐ GOTT? HOLL HREYFING ER LÍKAMANUM NAUÐSYNLEG.

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.