Nesfréttir - 01.12.1992, Qupperneq 3

Nesfréttir - 01.12.1992, Qupperneq 3
3 Nesfréttir JÓLIN NÁLGAST - SÉRA SÓLVEIG LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR Nú þegar að ventan er gengin í garð er hollt að setjast niður um stund við kertaljós og íhuga til hvers aðvetnan er. Er tilgangur hennar eingöngu að undirbúajólahátíðinaeðahefur hún úlgang í sjálfum sér? Alltof margir skipta aðventunni þannig niður að ein vika fer í að baka, önnur í að kaupajólagjafir og sú þriðja í að þrífa. I öllu þessu amstri gleymist oft innihald aðventunnar. Orðið aðventa þýðir að koma. Og einkunnarorð að- ventunnar eru: “Sjá, konungur þinn kemur til þín. Sjá, hann stendur við dymar og knýr á.” Þetta gefur okkur tilefni til að íhuga á hvern hátt Jesús er konungur í lífi okkar og hvaða merkingu það hefur fyrir okkur að hann ráði þar einhverju. Þessi orð gefa okkur lfka tilefni til að íhuga hvemig við getum opnað dymar fyrir honum, þar sem hann stendur og knýr á í lífi okkur. Guðspjöll sunnudaganna í að ventu minna okkur á þetta auk þess, sem við emm minnt á endurkomuna, sem okkur er fyrirheitið í Biblíunni. Á aðventunni er mikið um dýrðir í kirkjunni og við hjálpumst að við að íhuga þessi efni. Því skulum við ekki bíða með það fram að jólum að koma til kirkju. Undirbúum huga okkar og hjörtu undir háu'ð friðarins í samfélagi, þar sem við fáum tækifæri til að byggj a okkur sjálf upp, hlusta á Guðs orð og biðja með öðmm fyrir því, sem okkur liggur á hjarta. Guð gefi okkur öllum innihaldsríka aðventu! Helgihald í Sel- tjarnarneskirkju um jól og áramót. Sunnudagurinn 13. desember: Kveikt verðurájólatrénu fráGróttu fyrir messu, sem hefst kl. 11:00. Lúðrasveitleikur. Sunnudagurinn 20. desember: kl. lLOOjólasöngvarallrarfjöld- skyldunnar. Barnakórinn syngur og böm úr bamastarfinu sýna helgileik. Aðfangadagskvöld: Aftansöngurkl. 18:00 Hátíðarsöngur Bjarna Þorsteinssonar. Ólafur Flosason leikur á óbó. Jóladagur: Hátíðar- guðþjónustakl. 14:00 Hátíðarsöngvar Bjarna Þorsteinssonar. Þuríður Sigurðardóttir, sópran syngur einsöng: Nýársdagur: Hátíðar- guðþjónustakl: 14:00 Haukur Bjömsson, formaður sóknarnefndar predikar. Elísabet F. Eiríksdóttir, sópran syngur einsöng: Prestur í öllum guðþjónustum verður sr. Sólveig Lára Guðmundsdóttir og organisti Hákon Leifsson. HÁTÍÐABAKSTUR - STOLLEN (Þýskt jólabrauð) - EKTA SMJÖRDEIGSTARTALETTUR - ÁVAXTAKAKA (Björnsbakarí special) - MARENGSBOTNAR - SMÁAR KRANSAKÖKUKRÓNUR - JÓLASMÁKÖKUR - TRÖLLADEIG í NOKKRUM LITUM ATH. Ráðlegt er að leggja inn pöntun á brauði til afgreiðslu á Þorláksmessu og Aðfangasdag. Ný brauð seljast yfirleitt upp þessa daga. Pöntunarsími 611433 BJÖRNSBAKARÍ AUSTURSTRÖND, HRINGBRAUT OG FÁLKAGÖTU 18

x

Nesfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.