Nesfréttir - 01.12.1992, Side 6
6 Nesfréttir
ÞAR SEM BJARTSÝNIN RÆÐUR RÍKJUM
viðtal við Sólveigu Eggertz Pétursdóttur mynlistarkonu
Hún var fyrst til þess að
mála á rekaviðadrumba og
vakti mikla athygli fyrir.
SólveigEggertzPétursdóttir er
búsett á Seltjarnarnesi og býður
þess ásamt eiginmanni sínum
að komast inn áelliheimilið. A
meðan býr hún á vinnustofu
sinni á Austurströndinni á milli
þess sem þau hjónin bregða sér
í sumarhús sitt.
Húnhefurlifað ýmislegt,er
sátt við lffið og tilveruna þrátt
fyrir að ekki hafi allt verið gott,
að minnsta kost hefðu niargir
sligast undan þeirri byrði sem á
hanaSólveiguhefurveriðlögð
um ævina. Hún á fjögur börn,
þar af hafa tvö þeirra ekki
gengið heil til skógar; þau eru
með öðrum orðum þroskaheft.
Þrátt fyrir þetta og rneira til cr
Sólveig afar jákvæð
ntanneskja, hún beinlínis
geislar af jákvæðni og segir
jafnan þegar um þessi mál er
talað: "Þettaerul'orlögin, l'yrir
vikiðhöfum við maðurinn minn
starfað mikið að málefnum
þroskaheftran. Maður hennar
þjáist af liðagigt og hefur verið
einn ötulasti baráttumaður
gigtarsjúklinga og er nú
formaðurgigtarfélags íslands.
Fyrir 12 árunt lenti hún sjálf í
miklu bílslysi og slasaðist
mikið. Hún segir þann atburð
ekki einu sinni hafa verið svo
slæman því rétt áður en hún
lenti í slysinu varhún hreinlega
að keyra yfir af stressi en eftir
slysið lært að slaka á.
I návfgi viðsjóinnhefurhún
alltaf fundið ró, Þegar börnin
voru yngri fórhúngjarnan með
þau niðurífjöru.Það vareinmitt
þar sem hugmyndin urn að fara
að mála á rekaviðadrumba
vaknaði. Hver man ekki eftir
andlitunum máluðum á
rekaviðadrumba? Slík verk
urðu mikil tískufyrirbæri fyrir
nokkrum árurn og fást enn og
nú í blómabúðinni á
Seltjarnarnesi.
Sólveig á bæði litríkt líf og
litríkanlistamannsferilaðbaki.
Hún er enn að mála og fyrir ári
síðan sýndi hún í Hafnarborg í
Hafnarfirði og hélt nýverið
sýningu á verkum sýnurn á
Mokkakaffi þar sern hún hóf
einmitt feril sinn sem
listamaður.
Það er gaman að l'ara í
gegnurn úrklippumöppur
hennar en þar er rneðal annars
að finna handskrifað
þakkarbréf frá þáverandi
forseta íslands, Ásgeiri
Ásgeirssyni sem ekki komst á
sýningu hennar sem þá var
haldin í Hafnarfirði. Hann
þakkar henni boðsbréfið á
sýninguna, segir að sér þyki
mjög vænt um að eiga eftir
hana myndaseríu. Bréfið var
skrifað 15. ágúst árið 1968 en
hann komst ekki þar sem hann
var á leið utan til Völu og
Gunnars, sem væntanlega vom
þau Vala og Gunnar
Thoroddsen.
Mikið hefur verið ritað um
hana í erlendunt blöðunt enda
hefur hún haldið sýningar víða
urn heint og hún hefur einnig
komið fram í útvarps- og
sjónvarpsþáttum. Einnig vakti
hún athygli blaðamanns
Morgunblaðsins árið 1960 en
þá blasti við honum sjaldgæf
sjón. Á tröppum verslunar
Brynjólfs H. Bjarnasonar í
Aðalstræti sat kona með
teikniblokk og blýant og
teiknaði af mesta kappi. Kom í
lj ós að þetta var engin önnur en
Sólveig að gera skissur af
götumyndunum sínum. Hér er
aðeins fátt eitt taliðþvx Sólveig
hefur komið víða við á ævi
sinni en býður þess nú, eins og
áður sagði, að deila ævikvöldi
sínu með Seltirningum.
Nú sem fyrr leggjum við okkur fram við að þjónusta sem
best Seltirninga og aðra Vesturbæinga.
Okkar mottó er: Lipur og glaðleg þjónusta!
Eitt mesta myndbandaúrval landsins. 4 verðflokkar.
Verið velkomin!
TRÖLLAVIDEO
Eiðistorgi 17, s. 629820
Leiga sem stendur undir nafni.