Nesfréttir - 01.01.1993, Side 1
íirw^ FRETTIR auglys:n^a|"
^JanúaM99^^t^^Ár^^^
FJÁRHAGSÁÆTLUN 1993
Sama prósenta og í fyrra segir Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri
Lögð var fram
fjárhagsáætlun Seltjarnarness
nú fyrir áramót. Tekjur eru
áætlaðar 402 miljónir - gjöld
347 miljónir og til
eignabreytinga 55 ntiljónir.
Alagningaprósenta útsvars
verður 7% sama og í fyrra,
álagningaprósenta fast-
eignagjalda 0,375% af
fasteignamati, en af
atvinnuhúsnæði og óbyggðum
lóðum 1%. Urðunargjald
hækkar úr 3000 í 4000 kr. og
vatnsskattur verður 0,15% af
fasteignamati. Einnig verður
fastur afsláttur fyrir elli og
örorkulífeyrisþega kr. 15000.1
græn svæði fara 13 miljónir.
Breyta á Plútóbrekkunni fyrir
500 þús., laga á svæðið frá
íþróttavellinum að Bakkavör
fyrir 1,5 miljónir. Þrengja á
Skerjarbraut og Lindarbraut og
setja handrið v/Nesveg. 1
miljón. Lagfæring v/sundlaug,
Vallarbrautarvöll og homið á
Lindarbraut og Suðurströnd
800 þús. Trimmsvæðið v/
Suðurströnd fyrir 275 þús v/
Víkurströnd.Tjarnarból og
sundurtekt Valhúsabrautar og
Kirkjubrautar. 1,1 milljón. í
opin svæði fara 5,4 milljónir.
Lokaafgreiðsla fjár-
hagsáætlunar var á fundi 20.
janúar.
1. sæti 6A, Kristinn, Indriði, Kristín og Edda V.
2. sæti 7B, Arndfs, Ágúst, Guðrún Baldvina og Gunnar.
FÉLAGSSTARF íMÝRARHÚSASKÓLA
Mikil gróska er í
félagsstarfsemi í Mýrar-
húsakóla undir stjórn Ólínu
Thoroddsen og Bjarna T.
Alfþórssonar: Starfsemin er
mest sniðin fyrir nemendur í 5,
6 og 7 bekk.
Dagskráin fram í maí:
26. jan. diskótek í Selinu frá
kl. 18-21. 1.-12. feb námskeið
í dansi í Selinu frá kl. 14-16.
lO.feb diskótek í Selinu frá kl.
17-20. 24. feb félagsvist í
skólanuntfrákl.17-20. lO.mars
hæfileikakeppni og diskótek í
Selinu kl. 17-20. 24. mars
diskótek í Selinu kl. 17-20.21.
aprfl diskótek í Selinu kl. 19-
22.
Myndin var tekin af
sigurvegurum í spurninga-
keppni sem haldin var fyrir
áramót.
SKOÐANAKÖNNUN
í MARS
Eins og kom fram á
borgarafundi um skipulagsmál
í nóvember var samþykkt að
gera skoðanakönnun um vilja
Seltiminga til framkvæmda á
vestursvæðinu Að sögn
Sigurgeirs bæjarstjóra verður
leitað til Hagvangs,
Félagsvísindastofnunar
Háskólans eða Skáís.
Viðurkenndir aðilar munu sjá
um skoðanakönnuninna sem
gerð verður í mars.
BUBBI MORTHENS
MEÐ TÓNLEIKA
bls. 5
1% ATVINNULEYSI
Á
SELTJARNARNESI
Nesfréttir könnuðu
hve margir væru
atvinnulausir á Sel-
tjarnarnesi. 45 manns
voru atvinnulausir í
desember. Það vorul8
konur og 27 karlar sem
erum 1 % af íbúafjölda,
sem er langt undir
landsmeðaltali sem er
nálægt 5%.
AUGLÝST EFTIR
UMHVERFISVÆNUM
FJÖLSKYLDUM
bls.4