Nesfréttir - 01.07.1992, Blaðsíða 11

Nesfréttir - 01.07.1992, Blaðsíða 11
NES Iróttf 5 Þorvaldur Jonsson sparísjóösstjóri á Seltjarnarnesi: Bylting framundan Þorvaldur Jónsson útibústjóri SPRON lofar byltingu í bankamálum. SparisjóðurReykjavíkur og nágrennis, SPRON, hélt upp á 60 ára afmæli sitt á þessu ári. Fyrsta útbú Sparisjóðsins var opnað á Seltjamarnesi fyrir 9 árum, árið 1983, við Austur- strönd. Sparisjóðstjóri þess útibús frá upphafi er Þor valdur Jónsson. „Það er sem er merkilegt við þetta útibú er að því var valin þessi staður eftir mi klar vangaveltur, síðan hefur Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis opnað útibú íHátúni, upp í Breiðholti og einnig hefur verið opnuð afgreiðsla í Kringlunni, “ sagði Þorvaldur Jónsson í samtali við Nesfrétúr. SparisjóðurReykjavíkur og nágrennis er í Sambandi Sparisjóða sem reka saman gjaldeyrisbanka og tölvu- miðstöð. Þorvaldur segir sparisjóðn- um hafa verið tekið mjög vel af Seltirningum og starfsemin hafi sífellt verið að aukast. „Aukningin var jöfn og þétt fyrstu árin en hefur orðið veruleg undanfarin þrjú ár. Hingað koma allir aldurshópar, allt frá smábörnunum með baukanna sína upp í eldri borgara. Það má segja að þ verskurður af íbúum á Seltjar- narnesi sé hér í viðskiptum, reyndar eru fleiri en Seltirn- ingar í viðskiptum við okkur því íbúarnir á jaðarsvæðunum Reykjavíkur verslagjarnan við okkur og brottfluttir Seltirn- ingar halda margir hverjir tryggð við okkar útibú.” Hver telurðu vera sérstöðu sparisjóðsins? „Okkar sérstaða er fyrst og fremst sú að við erum meðalstór stofnun. Sparistj óðurinn hefur einbeitt sér að því að verafrekar banki einstaklinganna en fyrir- tækj anna en þó eru mörg minni fyrirtæki í viðskiptum við okkur. Það hefur einnig verið stefnasparisjóðannaaðlánatil íbúðarbygginga og í hlutfalli við allt annað hefur engin peningastofnun lánað eins mikið fjármagn út kaupa íbúðarhúsnæði, íbúðabygg- inga, til breytinga á íbúðum og svo mætti áfram telja.” Þorvaldur segir mikla breytingu hafa átt sér stað í banka- og sparisjóðsmála á þeim 9 árum sem hann hefur verið sparisjóðsstjóri á Seltj- arnamesi. Hann vill ganga svo langt að kalla það byltingu en segir þó þróunina undanfarin ár aðeins byrjunina á því sem koma skal. „Framu'ðin er mjög áhugaverð. Efúr nokkur ár sér maður fyrir sér svokallaða heimabanka þar sem hver og einn getur stundað sín banka- viðskipti í gegn um tölvur. Þá þarf fólk ekki lengur að sækja þessar stofnanir nema í ein- hverjum sérstökum og stærri erindagjörðum. Ég sé það einnig fyrir mér að innan tveggj a ára verði ávísanir fólks bókaðar í búðunum á sama hátt og gert er með beinlínu- tengingu kreditkortanna.” Nviung í bakaríinu þínu Croissant Croissant m/skinku Rúgstykki m/ skinku og osti Að auki bjóðum við upp á fjölbreytt úrval af kökum og brauðum. Næg bílastæði.

x

Nesfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.