Nesfréttir - 01.07.1992, Side 14

Nesfréttir - 01.07.1992, Side 14
8 mtrátt* B ai I § FRÉTTIR JÚLÍ 1992 Bjöpgunarsveitin Albert fer með merkjasölubörn Bömin sem fóru ísiglingu út í Viðey ásamt aðstoðarmönnum. Á fundi sem haldin var nýlega í bygginganefnd Seltjar- namess var eftirfarandi tekið fyrir. Erindi frá Kristínu K. Kristinsdóttur, Melabraut 23, þar sem farið er fram á leyfi til að byggja garðáhaldaskúr til 5 ára enda verði hann rifinn verði bifreiðageymsla reist á 1 óðinni fyrir þann tíma. Samþykkt breyting á þakkanti. Umsókn frá Sóknarnefnd Seltjarnamess þar sem sótt er um leyfi til að breyta jarðhæð kirkjunnar samkvæmt upp- dráttum Harðar Bjömssonar, tæknifræðings. Eldvarnar- eftirlitið fer fram á við hönnuð að hann sendi inn uppdrætti til eftirlitsins til nánari skoðunar. Erindi frá Guðjóni R. Jóhannessyni,Barðaströnd 19 og Þorgeiri Pálssyni, Barða- strönd 21 þar sem sótt er um leyfi til að fella niður svalir á norðausturhliðraðhúsanna nr. 19 og 21 við Barðaströnd. Samþykkt. Erindi frá Unni Steinsson, Bollagörðum 81 þar sem farið er fram að leyfi til að girða lóðina nr. 81 við Bollagarða. Fyrirspurn frá Ormari Þór Guðmundssyni arkitekt varð- andi klæðingu á gafli húsanna nr. 5 og 7 við Eiðistorg. Byggingarnefnd fellst á erindið. Gengið var til kosningar varaformanns bygginga- nefndar. Stungið var upp á Guðmundi Jóni Helgasyni og var hann einróma kosinn varaformaður. Hraða- hindrunin til lítils gagns Illa gengur að fá Bæjaryfirvöld til að laga hraðahindrunina fyrir neðan íþróttavöllinn á Suðurströnd en þar skapast oft hætta vegna hraðaksturs. Þetta er búið að vera svona á annað ár eftir, eða frá því nýju slitlagi var komið fyrir á Suðurströndina. Um Suðurströndina ermjögmikil umferð af gangandi og akandi vegfarendum sem er sífellt meiri hætta búin ef ekkert verður að gert. Bónus opnarí haust Nesfréttir höfðu samband við Jóhannes íBónus og spurðu hann hvenær hann opnaði verslunina á homi Nesvegar og Suðurstrandar og sagði hann að aðeins væri beðið eftir grænu ljósi frá skipulagsnefnd Ríkisins en álit hennar liggur fyrir á næstu dögum. Síðan þarf skipulagið að liggja fyrir í ákveðin tíma þannig að Jóhannesreiknaðimeðað opna með haustinu þegar búið væri að breyta húsnæðinu. En í síðasta blaði var sagt fráþví að bæjarstjórnin væri búin að samþykkja þennan verslunar- rekstur. Börnunum sem tóku að sér að selja merki Slysavarnar- félagsins var boðið í siglingu á björgunarskipinu Henrý A. Hálfdánasy ni í lok maí. Einnig var með í för Ásgeir M. björgunarbátur Alberts. Siglt var úr Reykjavíkurhöfn fyrir Gróttu inn á Skerjafjörð. I bakaleiðinni var komið við í hressingu. Þegar skammt var eftir ófarið til Viðeyjar, kom kall ífá Slysavarnarfélaginu og beðið um aðstoð vegna báts með bilaða vél, um 2 mflur norður af Engey. Fór Ásgeir M. honum til aðstoðar og tók hann í tog til Reykjavíkur. Þar fengu börnin að kynnast starfi Slysavarnarfélagsins íslands Viðey og þar fengu allir eins og það er í raun. NES ™gd®s> Á mánudögum og þriðjudögum 16" pizza og 1,5 I. Coka Cola kr. 1.100.- Minnum á okkar góða tilboð í hádeginu. Hamborgarar, franskar og sósa kr. 450,- 9" pizza og Coke kr. 450,- Sími: 11103®

x

Nesfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.