Kópavogsblaðið - 01.01.2013, Blaðsíða 3
3KópavogsblaðiðJÚNÍ 2012
Niðurgreiðsla æfingagjalda
2012 - 2013
Íþróttaráð
Kópavogs
Fannborg 2 - 2 hæð - 200 Kópavogi - Sími 570 1500
Kópavogsbær vill vekja athygli foreldra og forráðamanna barna á niðurgreiðslu æfingagjalda
vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar barna á aldrinum 5-17 ára. Frá og með haustinu 2012
verður greiddur styrkur vegna barna sem fædd eru á árunum 1995 - 2007.
Á slóðinni http://www.kopavogur.is/þjónusta/frístundir/tómstundastyrkir á heimasíðu
Kópavogsbæjar má sjá lista yfir þá aðila sem falla undir Niðurgreiðslur æfingagjalda.
Tónlist, tónlistarnám og líkamsræktarkort falla ekki undir niðurgreiðslu æfingagjalda.
Styrkurinn fyrir eina grein getur orðið allt að 12 þúsund krónur á ári. Hvert barn getur fengið
niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og/eða tómstundagreina og samtals getur styrkurinn því orðið
kr. 24.000,- að hámarki á ári. Ef iðkun greinar er annarskipt þá er greitt hálft gjald fyrir
hverja önn að hámarki kr. 6.000,-, þó aldrei hærra en kr. 12.000,- fyrir árið.
Framkvæmd niðurgreiðslunnar er þannig háttað að íþróttafélögin innheimta æfingagjöldin og sjá
um að sækja styrkinn til bæjarins. Þetta þýðir að ef æfingagjald á ársgrundvelli er kr. 30.000,-
greiðir foreldri/forráðamaður kr. 18.000,- til félagsins og félagið sækir framlagið kr. 12.000,-
til bæjarfélagsins. Þetta á einnig við um Skátafélagið Kópa og Myndlistaskóla Kópavogs.
Iðkandi sem er í tómstundafélagi og þeir sem stunda tómstundir og íþróttir utan Kópavogs en
eiga lögheimili í bæjarfélaginu, eða forráðamaður þeirra, þurfa að sækja styrkinn í þjónustuver
Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 1. hæð. Með framvísun greiðslukvittunar fyrir viðkomandi
grein verður styrkurinn greiddur út.
Reglur og skilyrði fyrir styrk vegna niðurgreiðslu æfingagjalda eru eftirfarandi;
1. Að barnið eigi lögheimili í Kópavogi.
2. Að barnið iðki íþróttir/tómstundir á ársgrundvelli.
3. Iðkandi getur aðeins fengið niðurgreiðslu vegna 2 íþrótta- og/eða tómstundagreina.
4. Styrkur getur aldrei orðið hærri en æfingagjald viðkomandi íþrótta-/ tómstundagreinar.
5. Hámarksstyrkur á hverja grein er kr. 12.000,-
6. Við greiðslu æfingagjalda kemur styrkurinn til frádráttar æfingagjaldi.
7. Til að félögin/iðkendur fái styrkinn greiddan frá Kópavogsbæ þarf að framvísa staðfestingu á
greiðslu æfingagjalda fyrir viðkomandi iðkanda.
8. Til að einstaklingar sem stunda tómstundir eða íþróttir utan Kópavogs fái styrkinn frá
Kópavogsbæ þarf að framvísa staðfestingu á greiðslu æfingagjalda fyrir viðkomandi iðkanda.
9. Að um sé að ræða skipulagt íþrótta- og tómstundastarf.
Styrkhæf starfsemi þarf að vera í 10 vikur samfellt hið minnsta.
Mikilvægt er að greiðslukvittanir berist tímanlega fyrir hverja önn. Með önn er átt við haustönn
(frá 1.júlí – 31.des) og vorönn (frá 1.jan – 30.júní). Aðeins er greitt fyrir eina önn aftur í tímann. Berist
greiðslukvittun ekki innan þessa tíma fellur greiðslan niður.