Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.03.2015, Page 1
ATVINNA
SUNNUDAGUR 1. MARS 2015
Fólk á ferð um landið fer varlegar nú en áður.
Vitundarvakningin er skýr. Ég sé mikinn árangur af
starfi mínu, þar sem ég sameina
áhuga minn á björgunarmálum
og ferðamálum.
Jónas Guðmundsson verk-
efnissjóri hjá Slysavarna-
félaginu Landsbjörg.
DRAUMASTARFIÐ
www.hi.is
Embætti rektors Háskóla Íslands
er laust til umsóknar
Háskólaráð Háskóla Íslands auglýsir laust
til umsóknar embætti rektors.
Rektor er æðsti fulltrúi skólans og talsmaður gagnvart mönnum og stofnunum
innan háskólans og utan hans. Hann stýrir starfsemi háskólans og hefur frumkvæði
að því að háskólaráð marki sér heildarstefnu í málefnum skólans. Rektor ber enn
fremur ábyrgð á framkvæmd stefnu háskólans og tengslum háskólans við innlenda
og erlenda samstarfsaðila. Þá hefur hann eftirlit með allri starfsemi háskólans.
Skipunartímabil rektors er fimm ár, frá 1. júlí 2015.
Embættisgengir eru þeir einir sem hafa prófessorshæfi, leiðtogahæfileika og skýra
og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir háskólann, ríka samskiptahæfni og víðtæka
reynslu af stjórnun og stefnumótun.
Umsóknir skulu berast starfsmannasviði, Aðalbyggingu Háskóla Íslands,
Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík eða á netfangið starfsumsoknir@hi.is,
merkt HI15010208. Umsóknarfrestur er til og með 9. mars 2015.
Frekari upplýsingar um starfið má finna á vef Háskóla Íslands,
http://www.hi.is/rektorskjor2015
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og þar stunda nærri fjórtán þúsund nemar
grunn- og framhaldsnám um þessar mundir. Fastir starfsmenn eru um 1400 talsins
og stundakennarar vel á þriðja þúsund.
Háskóli Íslands er alþjóðlegur rannsóknaháskóli og hefur verið í hópi 300 bestu háskóla
heims frá árinu 2011 samkvæmt matslista Times Higher Education World University
Rankings. Skólinn er í nánu samstarfi við marga af helstu rannsóknaháskólum og háskóla-
deildum heims og rannsóknavirkni starfsmanna hefur vaxið hratt á undanförnum árum.
Um leið hefur skólinn ríkum skyldum að gegna
við íslenskt samfélag, menningu og tungu með
rannsóknum sínum.
PIPA
R
\
TBW
A
•
SÍA
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af
jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Laus eru til umsóknar störf lækna í starfsnámi á geðsviði.
Starfshlutfall er 80-100% og veitast störfin frá tímabilinu
1. maí 2015 til 1. nóvember 2015, í 4-12 mánuði.
Störf til 4-6 mánaða geta nýst sem hluti af sérnámi í
öðrum sérgreinum en geðlæknisfræði svo sem heimilis-,
endurhæfingar- og öldrunarlækningum. Einnig er þetta mjög
gott tækifæri fyrir heimilislækna sem vilja auka þekkingu sína
á greiningu og meðferð geðsjúkdóma í teymisvinnu samhliða
þátttöku í sérnámi námslækna í geðlækningum.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Þjálfun í geðlækningum með þátttöku í klínísku starfi
» Þátttaka í kennslu- og fræðsluprógrammi námslækna tvo
virka daga í mánuði
» Þátttaka í reglubundinni handleiðslu og þjálfun í
samtalsmeðferð, m.a. í hugrænni atferlismeðferð,
psychodynamiskri meðferð og áhugahvetjandi samtölum,
eru hluti af sérnámi í geðlæknisfræði
Þátttaka í rannsóknum og í hópmeðferð stendur áhugasömum
umsækjendum til boða. Unnið hefur verið ötullega að því að
byggja upp prógrammið í samvinnu við námslækna á síðustu
árum með góðum árangri.
Hæfnikröfur
» Almennt lækningaleyfi
» Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
» Vilji til þátttöku í áframhaldandi þróun sérnámsins
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2015.
» Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt lækningaleyfi.
» Umsækjendum sem uppfylla skilyrði verður boðið í
viðtal og byggir ráðning m.a. á frammistöðu í viðtali og
innsendum gögnum.
» Upplýsingar veita Engilbert Sigurðsson, yfirlæknir,
engilbs@landspitali.is, sími 543 1000 og Nanna Briem,
sérfræðilæknir, nannabri@landspitali.is, sími 543 1000.
LÆKNAR Í STARFSNÁMI
Móttökuritari
Óskum eftir móttökuritara á læknastöð
Augnlækna Reykjavíkur frá og með 1. apríl.
Um er að ræða eina 100% stöðu eða tvær
50% stöður. Vinnutími er milli klukkan 8 og
17, þó ekki meira en 8 tímar á dag. Í starfinu
felst símsvörun, tímabókanir, sjónsviðs-
mælingar, augnbotnamyndatökur og
móttaka sjúklinga, sem og önnur störf sem
til falla. Æskilegt er að umsækjandi sé eldri
en 35 ára.
Ekki er tekið við fyrirspurnum varðandi
starfið í síma.
Umsóknir berist á netfangið ritari@augn.is
fyrir 7. mars 2015.