Morgunblaðið - 10.03.2015, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 10.03.2015, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015 2 BÍLAR 12v 0,8A 12v 5,5A V altteri Bottas hinn finnski hjá Williams var með betri ökumönnum ársins 2014 í formúlu-1. Þar á bæ – og svo í Finnlandi – eru miklar vonir bundnar við hann á vertíðinni sem gengur í garð um næstu helgi með upphafsmóti ársins, Í Melbourne í Ástralíu. „Tilfinningin fyrir nýja bílnum er jákvæð,“ sagði Bottas eftir fyrstu bílprófanir Williams á árinu, í Jerez á Spáni í byrjun febrúar. „Öll starf- semi bílsins virkar vel og jafnvægið í honum er meira og minna fyrir hendi. Við eigum heilmikið eftir að prófa en byrjunin lofar góðu. Og mér fellur einstaklega vel, að hann virkar á mig mjög svipað og 2014- bíllinn.“ Williamsliðið komst í toppslaginn á ný í fyrra með einstaklega vel heppnuðum bíl, FW37-bílnum. End- aði það í þriðja sæti í keppni bíl- smiða en sín á milli öfluðu Bottas og Felipe Massa liðinu 320 stiga. Var það besti árangur Williams frá 2003 er liðið varð í öðru sæti, á eftir Ferrari. Umskiptin voru talsverð því árið 2013 var Williams í keppni botnliðanna, á einhverri slökustu vertíð í sögu sinni. Kyrrstaða í bílasmíði og þróun skilar engu nema afturför í form- úlu-1. Því fagnar Bottas því að liðið hefur bætt bílinn í vetur og náð úr honum meira afli á mikilvægum sviðum. „Við höfum bætt loftflæðið um hann. Afturendinn er stöðugri og það er eins og rásfestan út úr beygjum sé aðeins betri. Það skiptir afar miklu, ekki síst þegar menn eru að keyra heilan kappakstur og þurfa að halda virkni í dekkjunum sem lengst. Við fáum nýja íhluti í bíl- inn fyrir næstu lotur reynsluakst- ursins og svo aftur fyrir fyrsta mót. Vonandi verður það til að bæta enn- fremur getu bílsins umfram það sem við höfum þegar náð,“ sagði Bottas. Flestir búast við að Mercedeslið- ið muni hafa undirtökin á komandi keppnistíð en mest kom þó á óvart við fyrstu æfingalotuna, í Jerez, að Ferraribílarnir voru hraðskreiðastir þar þrjá daga af fjórum. Sebastian Vettel fyrstu tvo dagana og Kimi Räikkönen á fjórða deginum. Bot- tas segir að svipað hafi þetta verið í fyrra og miðað við þróunina ættu keppnisliðin enn eftir að sýna sitt besta. Reyndist það rétt vera og þótt meira jafnræði hafi verið en í fyrra kvað mun meira að Mercedes og Williams í annarri og þriðju lotu, sem nýlokið er. „Í fyrra voru Ferraribílarnir virki- lega hraðskreiðir í Jerez en á end- anum vorum við hraðskreiðari þeg- ar í keppni var komið. Þetta er bara reynsluakstur og því lesum við ekki of mikið út úr brautartímum öku- manna. Þess vegna höfum við í raun og veru engar áhyggjur,“ sagði hinn 25 ára gamli Bottas. Á vertíðinni í fyrra komst Bottas sex sinnum á verðlaunapall og hafnaði þegar upp var staðið í fjórða sæti í stigakeppninni um heimsmeistaratitil ökumanna; á eftir Lewis Hamilton og Nico Ros- berg hjá Mercedes og Daniel Ricci- ardo hjá Red Bull. Og þótt samfara góðum árangri aukist þrýstingur á ökumenn og farið sé mun nánar í saumana á frammistöðu þeirra þá hlakkar Bot- tas bara til þeirrar áskorunar sem bíður hans í Melbourne og öllum mótunum eftir það. Hann segist hafa trú á því að geta stigið næsta skref fram á við – og komist í hóp sigurvegara í mótum í formúlu-1. „Ég finn alls ekki fyrir aukinni pressu á mig,“ og hristir höfuðið til marks um að auknar vonir sem við hann eru bundnar raski ró hans ekki. „Ég vil bara ná betri árangri, ég vil sjá fyrsta sigurinn koma í ár – það er markmiðið núna.“ Hann segir að ákjósanlegast yrði að hefja tímabilið í ár á sömu nót- um og því síðasta lauk þar sem hann segist sannfærður um að bíll- inn – og þar með geta hans sjálfs – muni batna eftir því sem á árið líð- ur. „Ég er einnig að reyna að bæta sjálfan mig sem ökumann. Ég á bara tvö keppnisbíl að baki í form- úlu-1 og þar lýkur ökumannsnám- inu aldrei og ég hef bætt mig jafnt og þétt og stöðugt.“ Bottas varð að bíða fram á miðja vertíð í fyrra til að upplifa hvernig það er að komast á verðlaunapall í formúlu-1. Hafði Williamsbíllinn hrellt hann nokkrum sinnum fram að því. Á pall komst hann í aust- urríska kappakstrinum þar sem hann varð þriðji í mark. Í framhald- inu varð hann þrisvar til viðbótar þriðji í mark og í Silverstone og Hockenheim bætti hann um betur og varð í öðru sæti í báðum mót- um. Bottas kveðst á því að með þeim lexíum sem lærst hafa undanfarna 12 mánuði eða svo sé Williamsliðið mun betur í stakk búið til keppni og muni blanda sér í toppslaginn frá fyrsta móti. „Fyrri hluti vertíðar er gríðarlega mikilvægur, eins og við sáum í fyrra. Við vorum með virki- lega góðan bíl en á vissum sviðum vantaði samt nokkuð á að við gæt- um keppt um toppsætin. Ég held að styrkur okkar sé miklu meiri en á þessum tíma í fyrra. Hvert ein- asta mót mun skipta máli og við verðum að vera í keppni um fyrstu sætin frá fyrsta móti,“ segir Bottas sem mun eiga fjölda aðdáenda hér á landi svo og Williamsliðið. Í vetur hefur Bottas verið bendl- aður við önnur lið en meðal helstu ráðgjafa hans eru Mercedesstjór- inn Toto Wolff og landi hans og fyrrverandi heimsmeistari, Mika Häkkinen. Með tilliti til stöðu Wolffs vakna við og við vangaveltur þess efnis að Bottas leysi jafnvel af ann- an hvorn þeirra Lewis Hamiltons eða Nicos Rosbergs hjá Mercedes. Sem stendur segist Bottas sæll og glaður hjá Williams. „Það er allt- af fullt af sögusögnum á kreiki,“ segir Mónakóbúinn með bros á vör. „Ég hef engin atvinnuboð fengið og þetta er fremur málefni umboðs- manna minna, ég veit ekkert. Ég hef starfað hjá Williams árum sam- an, ég byrjaði þar sem reynsluök- umaður og færðist síðan upp í sæti keppnismanns. Í fyrra áttum við virkilega góða daga. Eina sem ég veit er að ég keppi fyrir Williams í ár og á það eitt einblíni ég. Hvað framtíðin ber í skauti er framtíð- armúsík. Ég einbeiti mér að augna- blikinu, núinu, og það er Williams,“ segir Bottas. Beri „núið“ þann ár- angur sem Bottas þráir gæti það orðið til þess að hann yrði sá öku- maður sem önnur lið munu er líður á árið legga snörur fyrir og eyða mestu púðri í að fá í sínar raðir fyrir 2016-vertíðina í formúlu-1. agas@mbl.is Ökuþórinn | Valtteri Bottas Bottas stefnir hátt AFP Valtteri Bottas sést hér til vinstri á myndinni, ásamt hinum brasilíska liðsfélaga sínum hjá Williams Martini Racins, Felipe Massa. EPA Valtteri Bottas á fleygiefrð við æfingar á nýja Williams-bílnum á kappakstursbrautinni við Barcelona í febrúar síðastliðnum. Bottas var í sviðsljósinu á síðasta ári og mikils er að vænta af Finnanum vaska á tímabilinu í ár. Njáll Gunnlaugsson, bílablaða- maður Morgunblaðsins, er stadd- ur í Tarragona á Spáni þar sem hann reynsluekur hinum nýja og spennandi Volvo XC90 í dag. „Þessi bíll hefur vakið mikla athygli síðan hann var heimsfrumsýndur í ágúst á síðasta ári. Útlitið og sér- staklega innréttingin með Sensus- stjórnborðinu þykir nýtískuleg og verður spennandi að prófa hana. Það er gaman að koma og sjá hann aftur, ef svo má segja, því ég rakst á hann alveg óvart á svipuðum slóðum í hitteðfyrra, en þá var hann í dulargervi og náði ég nokkr- um myndum af honum við það tækifæri,“ sagði Njáll Volvo XC90 verður aðeins fram- leiddur með fjögurra strokka vél- um og fyrir þeirri ákvörðun Volvo eru nokkrar góðar ástæður. Slíkar vélar taka minna pláss og gera því mögulegt að hafa meira pláss í innanrými. Þær þykja líka hag- kvæmar og eyðslugrannar, en samt hefur tekist að gera þær öfl- ugar og til að mynda er tveggja lítra T6-vélin 235 hestöfl og aðeins 6,5 sekúndur að koma bílnum í hundraðið. Mikilvægur fyrir Volvo Að sögn Egils Jóhannssonar, framkvæmdarstjóra Brimborgar, mun bíllinn koma í sumar, nánar tiltekið í júní, og kosta frá kr. 10.590.000 kr. „Volvo XC90 er gríðarlega mik- ilvægur bíll fyrir Volvo og ekki síður okkur í Brimborg. Gamli bíllinn var okkar mest seldi bíll í mörg ár og gríðarlegur áhugi er fyrir nýja bíln- um. Hann hefur verið að fá frá- bæra dóma, verðið þykir gott mið- að við gæði og búnað og hef ég tekið eftir að allir dásama innrétt- inguna sem þykir með því flottasta í bransanum og skiptir þá ekki máli hvaða keppinauta er miðað við. Vélar og gírkassar eru það allra nýjasta og eyðslan því ótrúlega lít- il. Dísel-bíllinn í blönduðum akstri er gefinn upp með eyðsluna 5,8 lítra per 100 km. T8-bíllinn er gef- inn upp 2,5 lítrar per 100 km. Það er nokkuð ljóst að þetta verður metsölubíll í þessum flokki á Ís- landi en við erum þegar búnir að taka við á annan tug staðfestra pantana.“ jonagnar@mbl.is Endurfundir með glænýjum jeppa Volvo XC90 reynslu- ekið á Spáni Morgunblaðið/Njáll Volvo XC90 hefur vakið lukku víðast hvar erlendis og þess er skammt að bíða að hann verði fáanlegur hjá Brimborg , en bíllinn kemur í júní. Búnaður er allur með besta móti í hinum nýja Volvo XC90.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.