Morgunblaðið - 10.03.2015, Page 4

Morgunblaðið - 10.03.2015, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015 4 BÍLAR F ord Mondeo hefur verið fá- anlegur síðan árið 1993 og nú er það fjórða kynslóð þessa bíls sem kominn er til landsins og var kynntur um síð- astliðna helgi hjá Brimborg. Þessi nýjasta gerð bílsins vakti strax mikla athygli úti í hinum stóra heimi og var Ford Mondeo einn þeirra bíla sem komust í úrslit í vali á bíl ársins í Evrópu sem og í vali á heimsbíl ársins. Það verður að telj- ast góður árangur og sannarlega engin tilviljun. Margar vélargerðir Bíllinn sem prófaður var er skut- bíll (station) með 2.0 l. dísilvél. Þó eru aðrar vélargerðir sem standa kaupendum til boða og er hægt að fá Ford Mondeo á býsna góðu verði með því að taka hann með 1,0 l. EcoBoost-bensínvél. Sú skilar 125 hestöflum og kostar sá bíll 3.990.000 kr. Með þeirri vél er hann þó eingöngu fáanlegur bein- skiptur. Þeir sem vilja hafa hann sjálfskiptan geta því valið um 1,5 l. EcoBoost-bensínvél og 2.0 l. dís- ilvél (TDCi) sem einnig fæst fjór- hjóladrifinn. Allar gerðirnar má fá í skutbílsútfærslu, sé þess óskað. Til að gera langa sögu stutta er verð- bilið á Ford Mondeo býsna breitt eða frá 3.990.000 krónum og upp í 6.150.000 krónur en sá dýrasti er fjórhjóladrifinn skutbíll sem skilar 180 hestöflum og er með Titanium búnaði (sem nánar verður rýnt í síðar í greininni). Fyrstu kynni okkar Það fyrsta sem undirrituð veitti athygli áður en bíllinn var prófaður var fágað útlitið. Mondeo er krafta- legur að sjá, eins og hann hafi að- eins tekið í lóðin á milli kynslóða. Ljósin eru mjórri og dálítið og það er vel því LED-ljósin gera sann- arlega sitt og sömuleiðis stefnu- ljósin sem skipa sömu röð og LED-ljósin. Það er erfitt að lýsa ljósum en ég geri mitt besta. Grill- ið er í takt við það sem við höfum nú þegar fengið að sjá hjá öðrum bílum í Ford-fjölskyldunni og hef ég áður nefnt að það minni mig dálítið á Aston Martin og þar af leiðandi um leið á Bond, James Bond. Þessi fyrstu hughrif voru sannarlega góð og fyrir vikið var ég orðin óskaplega spennt að prófa þennan reffilega bíl sem er í raun réttri nýr frá grunni. Akstur á vegum úti Skal það játað að kraftalegt út- litið vakti með mér dálítinn ugg sem jafnframt var góð áminning að dæma hvorki bíla né menn af útlitinu einu saman. Ég hugsaði nefnilega að bíll sem liti svona út hlyti að þamba heil ósköp af elds- neyti. Rétt eins og maður myndi sjá verulega massaðan húðflúr- aðan mann og hugsa að hann hlyti að sturta í sig brennivíni í hvert sinn er færi gæfist. Þetta kallast fordómar og þeir eiga nú aldrei rétt á sér. Á leiðinni frá Reykjavík til Selfoss í veðri sem vel hefði getað prýtt mynd um hrikalegan háska á heiðum, eyddi þessi ljúflingur 5,0 lítrum á hundraðið. Á leiðinni til baka, daginn eftir hækkaði talan um hálfan lítra eða svo. Enda Kamb- arnir á leið í bæinn aldrei sérlega góðir til sparaksturs. Í sjálf- skiptum stórum fjölskyldubíl ber að fagna tölum á borð við þessar. Þetta er flott! Þá spyr maður sig hversu mikið kolefnisfótspor manns hafi stækkað við þennan bíltúr og það gæti sannarlega verið stærra. Sjálfskipti bíllinn með 2.0 dísilvél- inni losar 125 g af CO2 á hvern kílómetra. Beinskipti bíllinn er í 115 grömmum og EcoBoost Malín Brand reynsluekur Ford Mondeo Morgunblaðið/Malín Brand Skuggalega góður fjölskyldubíll Ljósin eru fagurlega mótuð og gefa bílnum skemmtilegan svip sem vel tónar við reffilegt og krómað grillið. Ford Mondeo 2,0TDCi Árgerð 2015 • 16 tommaálfelgur • Eiginþyngd: 1.581kg • Farangursrými: 550 lítrar • 0-100km/sek:9.9bsk •Hámark: 213km/klst • Framdrif •Verð frá: 5.090.000kr • 4,8L/100km íbl akstri • Umboð:Brimborg •Mengunargildi: CO2: 125g/km •2,0TDCi dísilvél • 150hestöfl/350Nm •6gíra sjálfskipting Ljúfur er hann og lipur spánnýr Ford Mondeo og eru eyðslutölurnar með eindæmum skemmtilegar. Kraftalegt útlitið segir nefnilega ekkert til um eyðslu og afköst. Kostir Útlit, sparneytni. Gallar Takmarkað útsýni um afturrúðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.