Morgunblaðið - 10.03.2015, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 10.03.2015, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015 BÍLAR 5 bensínvélarnar standa í 119 grömmum. Rými, eiginleikar og öryggi Sumir bílar eru það sem maður getur kallað „karakterslausir“. Það feta verið fínustu bílar sem gera allt það sem æskilegt er að bílar geri en upplifunin er svipuð og slappt handaband manns sem maður líkir stundum við það að „taka í dauðan fisk“. Ford Mondeo er síður en svo karakterslaus og eftir aksturinn var ég orðin alveg ljómandi kát vegna þessa hrífandi kraftalega en neyslugranna bíls. Margt spilar þar inn í og aksturseiginleikarnir hafa margþætt skemmtanagildi. Í fyrsta lagi er fjöðrunin þétt og góð og það er eins með fjöðrun í bílum og dýn- ur í rúmum. Best kann ég að meta temmilega stífar dýnur og temmi- lega stífa fjöðrum. Ekkert sem minnir á svamptertur, takk. Hljóðlátur er Mondeo og ljóst að vel hefur verið einangrað í hjóla- skálum og öðrum stöðum þar sem ekki má spara einangrun en er þó stundum gert. Ofan á það er hann lipur og ljúfur í akstri og hreint ekki leiðinlegur á nokkurn hátt. Í það minnsta ekki í bíltúrnum okkar. Í þetta skiptið mundi undirrituð eftir að kveikja á „græjunum“ og var hljómburðurinn með eindæmum góður. Átta hátalarar sjá til þess að hægt sé að njóta tónlistar hafi öku- maður engan til að skeggræða við. Í dag þykir manni varla nauðsyn- legt að minnast á að bíll hafi fengið fimm öryggisstjörnur í árekstr- arprófunum EuroNCAP en það er eftir sem áður alveg nauðsynlegt að taka það fram. Fyrir þrjátíu ár- um var enn ekki lögbundið að vera með öryggisbelti og ekki vildi mað- ur nú fara aftur til þeirra staðla. Rýmið er býsna gott og má án efa koma nokkrum golfsettum aftur í hann þennan og alls kyns fleiru. Er þá ekkert til að setja út á? Auðvitað er alltaf hægt að finna eitthvað til að bölsótast út af. Skárra væri það nú ef maður fyndi ekkert til að skammast yfir. Gaman hefði verið að sjá enn lægra CO2 gildi. 125 grömm er sannarlega innan marka en EcoBo- ost er enn skuggalega nálægt tveggja lítra dísilbílnum með sína þriggja stafa tölu. Gaman verður að sjá hversu hröð þróunin kemur til með að verða í lækkandi tölum. Verkfræðingar Ford eru örugglega á fullu að þróa tæknina, það efast maður nú ekki um. Bíllinn er stór en afturrúðan er það ekki. Þeir sem spennast upp við það að bakka í stæði ættu helst að fá sér bíl með aukabúnaði til að leggja í stæði eða í það minnsta ná- lægðarskynjara. Þar höfum við það. Ford Mondeo á sér nokkra verð- uga keppinauta og má þar helst nefna Mazda 6, VW Passat, Audi A4, BMW 3, Kia Optima, Skoda Oc- tavia og Toyota Avensis. Byrjum á þeim dýrasta en það mun vera Audi A4 sem kostar frá 6.690.000 kr. Fast á hæla honum kemur BMW 316d sem kostar 6.090.000 kr. KIa Optima fæst frá 4.620.777 kr, Toyota Avensis kostar frá 4.240.000 kr., Passat frá 4.110.00 kr. (kemur í lok mánaðar), Mazda 6 og Ford Mondeo fást á sama lægsta verði eða frá 3.990.000 krónur en ódýrasti bíllinn í þessari samantekt mun vera Skoda Octavia sem kost- ar frá 3.740.000 kr. Að þessari upp- talningu lokinni verður að segjast sem er að grunnverðið á Mondeo er nokkuð gott og veitir hann góða samkeppni á markaði. malin@mbl.is Innréttingin er stílhrein og ekki yfir neinu þar að kvarta. Margir takkar og allt til alls í þessum góða bíl. Rennilegur séður frá öllum hliðum.Ökumaður ætti ekki að geta kvartað yfir rýminu sem honum er úthlutað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.