Morgunblaðið - 10.03.2015, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. MARS 2015
6 BÍLAR
B
ílasýningin í Genf stendur
nú yfir í 85. sinn í Pa-
lexpo-höllinni rétt við
flugvöll borgarinnar. Sýn-
ingin er glæsilegri en nokkru sinni
og inniheldur meðal annars sér-
staka sýningu um mótorsport í 100
ár. Það er úraframleiðandinn TAG
Heuer sem setti upp næstum
1.000 fermetra bás til að fagna 30
ára samstarfi sínu við McLaren-
liðið. Á básnum má sjá keppn-
istæki úr formúlu 1, heimsmeist-
arakeppninni í ralli, þolaksturs-
keppnum auk bíla úr frægum
keppnum eins og Carrera Panam-
ericana og Goodwood. Mikið er um
frumsýningar að þessu sinni og of
langt mál að fara yfir þær allar en
þar sem mikið var um frumsýn-
ingar á sportbílum þótti rétt að
fara yfir það helsta þar, enda voru
þeir hver öðrum fallegri og eft-
irtektarverðari. Það er engu líkara
en bílaframleiðendur hafi litið á
þessa sýningu sem fegurð-
arsamkeppni bíla 2015, svo mikill
er kynþokkinn sem þarna var til
sýnis.
Koenigsegg drottnar
Koenigsegg Regera er eins og
bíll úr framtíðinni enda er allt við
hann eins og í vísindaskáldsögu,
einnig hestaflatalan. Regera er
nefnilega með fjórum mótorum;
þremur rafmótorum sem skila
samtals 700 hestöflum og V8-
bensínvél með tveimur for-
þjöppum sem skilar allt að 1.000
hestöflum. Mótorarnir eru aðeins
20 sekúndur að skila þessum
1.400 kg bíl í 400 kílómetra hraða.
Já, þú last þetta rétt, í 400 km á
klukkustund, sem er nokkurn veg-
inn þriðjungur af hljóðhraða. Bíllinn
er líka eins og geimskip því að fjar-
stýrðar dyrnar velta 90 gráður upp
þegar þær eru opnaðar með smá-
forriti úr snjallsímanum, sem líka
getur stillt fyrir þig vindskeiðarnar
og loftinntökin. Auðvitað er einnig
hægt að gera það með höndunum
á gamla mátann. Hurðirnar eru úr
koltrefjum eins og margt annað í
bílnum. Aðeins 80 Regera-
sportbílar verða framleiddir og þeir
fyrstu komast í hendur eigenda
sinna á næsta ári. Þeir verða þó að-
eins við hæfi konunga og olíufursta
enda þýðir Regera að drottna á
sænsku. Verðmiðinn er líka ekki á
færi neinna meðaljóna því að
stykkið kostar 256 milljónir króna.
Sá fyrsti og síðasti
Síðasti Bugatti Veyron-bíllinn
hefur verið framleiddur og til að
halda upp á það voru sá fyrsti og sá
síðasti til sýnis í bás Bugatti. Alls
voru 450 Veyron-bílar framleiddir,
sem passar vel við hámarkshraða
bílsins. Sá sem keypti þann síðasta
býr í Mið-Austurlöndum, hvar ann-
ars staðar? Samkvæmt frétta-
tilkynningu frá Bugatti er verið að
vinna að verðugum arftaka sem á
að gera enn betur, en það eru stór
orð að standa við.
Engar græjur, ekki
einu sinni teppi
Lamborghini Aventador var
sýndur í nýrri og hrárri útgáfu er
kallast Superveloce en þar hefur
allt verið gert til að létta bílinn enn
frekar. Alls hafa 50 kíló fengið að
fjúka, meðal annars með því að
sleppa teppunum í innréttingunni
og óþarfa eins og hljómtækjum en
einnig með því að gera allt sem
hægt var úr koltrefjum. Yfirbygg-
ing, vindskeið, sæti, hurðir, bretti,
allt þetta er úr koltrefjum og meira
til. Bíllinn skilar 750 hestöflum úr
V12-vélinni og er hann því aðeins
2,8 sekúndur í hundraðið, 6,66%
fljótari en Ferrari 488 sem er þó
enginn aukvisi.
Úr annarri vídd
Frumsýning Quant F vakti verð-
skuldaða athygli í Genf því að þar
er eins og kominn sé bíll frá 22.
öldinni. Þessi ofurrafbíll fær
orkuna úr tveimur tönkum með
mismunandi hlöðnum jónum og
orkan er næg til að koma honum í
meira en 300 km hraða á klukku-
stund, og það á aðeins 2,8 sek-
úndum. Þessi tækni sást fyrst á
Genf-sýningunni í fyrra í Quant E
sem var tilraunabíll en ætlunin er
að gera Quant F að framleiðslubíl.
Það sem er sérstakt við geymsu
orkunnar er að vökvinn geymir
meiri orku sem endist þar af leið-
andi lengur og er drægnin hvorki
meira né minna en 800 km. Ekki
skemmir heldur fyrir að hægt er að
ná fullri hleðslu á aðeins örfáum
mínútum. Eini gallinn við bílinn er
að það er engin hleðslustöð til fyrir
svona fullkominn bíl, allavega ekki
enn sem komið er.
Fullkomnun í hönnun
Ferrari 488 GTB er arftaki Ferrari
458 og það er allt meira við þennan
bíl. Það er meira afl, meiri hraði og
enn meira flæðandi línur. Vélin er
V8 og 3,9 lítrar með tveimur for-
þjöppum og skilar hún yfir 600
hestöflum en það er samt ekki það
sem er merkilegt við bílinn. Mark-
miðið var að fá 50% meiri vind-
pressu en í 458 Italia og það án
þess að auka við loftmótstöðuna.
Það tókst, og er bíllinn því með full-
komnasta loftflæði allra Ferrari-
Sportbílarnir í Genf svíkja ekki frekar en fyrri daginn
Leiftrandi kynþokki á hverjum
Aston Martin DBX er rafdrifinn sportbíll með meira pláss en gengur og
gerist enda er hann stílaður inn á óhefðbundinn markaðshóp – konur.
Audi R8 er glæsilegur bíll en hvort það réttlætir að
önnur kynslóð hans sé nánast óbreytt útlitslega frá
þeirri fyrstu fer líklega eftir því hver horfir. Reyndar
voru þrír nýir R8 kynntir í Genf, V10, LMS og svo sá
rafdrifni sem hér er sýndur, E-Tron.
Superveloce er ný útgáfa af Lamborghini Aventador og
hefur allt verið gert til að létta hann. Hestöflin eru 750 og
upptakið í 100 km aðeins 2,8 sekúndur.
Þessi búrgúndí-
rauði Bugatti Veyron
er sá síðasti af 450 sem
Bugatti-merkið framleiðir.
Hann hefur verið keyptur af
ónefndum kaupanda frá Mið-
Austurlöndum.