Morgunblaðið - 14.05.2015, Síða 2
ÍSLANDSMÓTIÐ
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Pepsi-deild kvenna í knattspyrnu rúll-
ar af stað með heilli umferð í dag.
Stjarnan á titil að verja líkt og í fyrra,
eftir að hafa haft talsverða yfirburði
síðasta sumar. Í árlegri spá fyrirliða,
þjálfara og forráðamanna félaganna
er Breiðabliki hins vegar spáð Ís-
landsmeistaratitlinum, en áratugur er
liðinn síðan Blikar
fögnuðu honum
síðast.
„Þetta verður
ekki þannig sumar
að eitthvert lið fari
taplaust í gegnum
mótið. Ég á ekki
von á að neitt lið
stingi af og held að
þetta verði mjög
skemmtilegt fót-
boltasumar. Deild-
in gæti hins vegar orðið svolítið tví-
skipt,“ sagði Edda Garðarsdóttir,
landsliðskonan fyrrverandi sem nú er
aðstoðarþjálfari hjá nýliðum KR eftir
að hafa gegnt sama starfi hjá Val í
fyrra. Morgunblaðið fékk Eddu til að
rýna í liðin 10 í Pepsi-deildinni, í þeirri
röð sem þeim var spáð sæti.
Pressa á árangur hjá Blikum
Blikakonur fengu silfur á síðustu
leiktíð og hafa síðan þá fengið til sín
þrjá öfluga leikmenn frá Val, þeirra á
meðal landsliðskonuna Hallberu Guð-
nýju Gísladóttur. Helstu félagaskipti
liðanna má sjá hér á síðunni. Þor-
steinn Halldórsson er tekinn við sem
þjálfari en hann stýrði síðast 2. flokki
karla hjá KR í fyrra.
„Málfríður er held ég bara stærsti
fengurinn fyrir Blikana, án þess að ég
sé að tala hinar niður. Henni fylgir
gríðarlegur leikskilningur og hún er
mjög sterkur karakter. Hallbera er
auðvitað eldfljót og með sterkan
vinstri fót, en það er bara vonandi að
hún haldist heil því hún hefur glímt
við einhver meiðsli síðasta mánuðinn.
Blikar eru með bestu aðstöðuna á
landinu og það er pressa á að ná
árangri þarna. Þetta er bara eins og
verksmiðja sem framleiðir leikmenn
og þær eru heppnar með það,“ sagði
Edda.
Stjarnan brothætt
en fengið sterka pósta
Stjarnan missti í vetur landsliðs-
miðvörðinn Glódísi Perlu Viggósdótt-
ur en einnig hina ítölsku Mörtu Car-
issimi og Elvu Friðjónsdóttur. Í
staðinn komu nokkrir lykilmenn úr
lægra skrifuðum liðum og kanadískur
miðvörður.
„Stjarnan er með reyndari leik-
menn, hefur unnið fleiri titla í meist-
araflokki og ég hef meiri trú á þeim en
Blikum,“ sagði Edda en flestir eru á
því að titilbaráttan muni standa á milli
þessara tveggja liða.
„Ég hef mikla trú á Stjörnunni.
Auðvitað skiptir miklu að þær skuli
missa Glódísi því þær Anna Björk
[Kristjánsdóttir] náðu mjög vel saman
í miðri vörninni. Adda [Ásgerður Stef-
anía Baldursdóttir] hefur verið „rusla-
kall“ hjá þeim og stór hlekkur í vel-
gengni liðsins, þó að Harpa
[Þorsteinsdóttir] sé alltaf að-
alstjarnan. Adda var ekkert með á
undirbúningstímabilinu. Svo missa
þær Mörtu Carissimi sem var kynngi-
mögnuð í fyrra. Þegar þetta safnast
saman er ekki skrýtið að þær hafi ver-
ið svolítið brothættar á undirbúnings-
tímabilinu. En þær hafa líka fengið
sterka pósta, Óli er náttúrlega í KSÍ-
fer svona að láni þá vill maður sér-
staklega sanna sig. Það er líka vænt-
anlega ekkert mikið annað að gera í
Vestmannaeyjum,“ sagði Edda í léttu
gríni.
„Það er hræðilegt fyrir hin liðin að
koma þarna til Eyja, því þetta hefur
verið ægilegt vígi, þó að svo væri
kannski ekki í fyrra. Við mættum
þeim í æfingaleik á dögunum og þetta
lið lítur ágætlega út, með fína erlenda
leikmenn, og ég held að þær sakni
Vesnu ekki mikið,“ bætti hún við, en
Vesna Smiljkovic er gengin í raðir
Vals. Þá hefur ÍBV endurheimt Bryn-
dísi Láru Hrafnkelsdóttur markvörð
sem fór til Noregs, og mun hún berj-
ast um stöðu í liðinu við hina ensku
Holly Clarke.
Valur er í vandræðum
Valur átti sitt versta tímabil frá
upphafi í fyrra þegar liðið hafnaði í 7.
sæti. Mikið hefur gengið á á Hlíðar-
drjúg í vörninni, rosalegur leiðtogi og
fyrirmynd fyrir margar stelpur þarna
fyrir norðan. Það verður ekkert auð-
velt að fylla hennar skarð,“ sagði
Edda.
Fylkir svakalegt baráttulið
Jörundur Áki Sveinsson og Þóra B.
Helgadóttir, fyrrverandi landsliðs-
markvörður, stýra nú Fylki. Þóra er
nú hætt í markinu og markamaskínan
Anna Björg Björnsdóttir lagði skóna
á hilluna. Félagið hefur hins vegar
fengið leikmenn á borð við Berglindi
Björgu Þorvaldsdóttur, Ólínu G. Við-
arsdóttur og systurnar Söndru Sif og
Selmu Sól Magnúsdóttur:
„Þóra kemur með gríðarlega
reynslu að borðinu ásamt Jöra. Það er
einhvers konar smábæjarsjarmi yfir
Fylkisliðinu, þetta er svakalegt bar-
áttulið og maður finnur styrk liðs-
heildarinnar hjá þeim. Þær munu
gera ágætis hluti. Það er slæmt fyrir
þær að missa Önnu en Berglind Björg
þarf bara að koma nálægt teignum til
að skapa færi. Maður getur alltaf
treyst á að hún búi til vandræði ná-
lægt markinu, og hún á eftir að skila
inn mörkum,“ sagði Edda.
ÍBV með líklega markaskorara
Eyjamenn höfnuðu í 6. sæti í fyrra.
Leikmaður karlaliðsins, Ian Jeffs, er
orðinn aðalþjálfari en með Jón Ólaf
Daníelsson áfram á hliðarlínunni með
sér. Shaneka Gordon og Kristín Erna
Sigurlásdóttir mynda baneitrað fram-
herjapar og markadrottning 1. deildar
í fyrra, Esther Rós Arnarsdóttir, hef-
ur bæst í hópinn.
„Esther er stór og sterk stelpa og
ég efa ekki að hún á eftir að setja inn
nokkur mörk í sumar. Þegar maður
klíkunni og hefur kynnst þessum
yngri landsliðsmönnum sem koma síð-
an til hans,“ sagði Edda létt.
Selfoss gæti orðið þriðja liðið
Edda segir eitt lið til viðbótar geta
blandað sér í titilbaráttuna, Selfoss.
Selfyssingar náðu sínum besta
árangri frá upphafi í fyrra þegar liðið
varð í 4. sæti og lék til úrslita í bik-
arnum.
„Það var einhver X-faktor-lykt af
Selfyssingum allt síðasta sumar. Þær
eru náttúrlega með sveitastelpur
þarna innan um sterka útlendinga og
það er góð blanda. Svo er Gunnar
Borgþórsson ótrúlega skipulagður og
skemmtilegur þjálfari. Ef útlending-
arnir sem þær fá eru jafn vel heppn-
aðir og þeir sem komu í fyrra gætu
þær alveg orðið þriðja liðið í toppbar-
áttunni,“ sagði Edda.
Þór/KA sterkari en vantar Örnu
Þór/KA landaði bronsverðlaunum í
fyrra en endaði 16 stigum á eftir
Stjörnunni með markatöluna +4. Lið-
ið varð Íslandsmeistari 2012 en hefur
ekki náð að fylgja því eftir. Katrín Ás-
björnsdóttir og Arna Sif Ásgríms-
dóttir eru farnar í atvinnumennsku en
liðið hélt markverðinum Roxanne
Barker og Kaylu Grimsley. Þá er
framherjinn öflugi Sandra María Jes-
sen komin af stað aftur eftir að hafa
misst af síðasta tímabili vegna hné-
meiðsla.
„Mér sýnist menn fyrir norðan hafa
lært aðeins af reynslunni í fyrra og
kannski tekið upp annað veski líka.
Þær eru sterkari en í fyrra og þetta
var svolítið strögl þá, en ég held að
þær fari ekki í neina titilbaráttu. Þær
vantar Örnu Sif. Hún er ótrúlega
„Á ekki von á að nei
lið stingi af í sumar“
Pepsi-deild kvenna hefst með heilli umferð í dag Tekst Blikum að velta Stjörnun
Toppslagur Anna María Baldursdóttir ú
dóttir úr Breiðabliki verða væntanlega í
Edda
Garðarsdóttir
Fögnuður Leikmenn Juventus höfðu ást
drid. Juvents tryggði sér sæti í úrslitum
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
Meistaradeild Evrópu
Undanúrslit, seinni leikur:
Real Madrid – Juventus .......................... 1:1
Cristiano Ronaldo 23. – Alvaro Moratta 57.
Juventus áfram, 3:2 samanlagt, og mætir
Barcelona í úrslitaleik 6. júní.
Noregur
Aalesund – Sarpsborg............................. 2:2
Daníel Leó Grétarsson var á varamanna-
bekk Aalsund en Aron Elís Þrándarson var
ekki í hópnum.
Lilleström – Molde .................................. 2:1
Finnur Orri Margeirsson lék allan tím-
ann fyrir Lilleström en Árni Vilhjálmsson
var ekki í hópnum. Rúnar Kristinsson
þjálfar Lilleström og Sigurður Ragnar
Eyjólfsson er aðstoðarþjálfari.
Start – Bodö/Glimt.................................. 1:1
Matthías Vilhjálmsson lék allan tímann
fyrir Start, Guðmundur Kristjánsson fyr-
irliði fór af velli á 38. mínútu en markvörð-
urinn Ingvar Jónsson sat á bekknum.
Haugesund – Viking ............................... 0:2
Indriði Sigurðsson fyrirliði lék allan tím-
ann, Steinþór Freyr Þorsteinsson lék
fyrstu 72 mínúturnar og lagði upp eitt
mark og Jón Daði Böðvarsson kom inná á
64. mínútu og skoraði annað markið. Björn
Daníel Sverrisson er frá keppni vegna
meiðsla.
Staðan:
Rosenborg 8 6 1 1 26:8 19
Stabæk 8 6 1 1 13:3 19
Odd 8 4 2 2 14:10 14
Vålerenga 8 4 2 2 16:13 14
Molde 7 4 1 2 17:9 13
Sarpsborg 8 3 4 1 12:7 13
Viking 8 4 1 3 11:10 13
Mjøndalen 8 3 3 2 13:14 12
Aalesund 8 3 2 3 11:17 11
Strømsgodset 8 2 3 3 13:16 9
Start 8 2 3 3 12:15 9
Haugasund 8 2 2 4 5:16 8
Lillestrøm 7 1 4 2 10:10 7
Sandefjord 8 2 0 6 10:17 6
Tromsø 8 1 1 6 12:19 4
Bodø/Glimt 8 0 2 6 11:22 2
B-deild:
Sandnes Ulf – Fredrikstad ..................... 6:1
Hannes Þór Halldórsson lék allan tím-
ann í marki Sandnes Ulf.
Kína
Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit:
Guizhou Zhicheng – Jiangsu Sainty ..... 1:5
Viðar Örn Kjartansson skoraði fyrsta
mark Jiangsu og lék í 64 mínútur en Sölvi
Geir Ottesen var ekki með.
KNATTSPYRNA
Þýskaland
Melsungen – Erlangen ....................... 37:23
Sigurbergur Sveinsson skoraði eitt mark
fyrir Erlangen.
Balingen – Magdeburg ...................... 25:32
Geir Sveinsson þjálfar Magdeburg.
Staða efstu liða:
Kiel 32 28 1 3 978:750 57
RN Löwen 31 26 1 4 927:757 53
Flensburg 32 21 5 6 918:793 47
Magdeburg 32 22 2 8 957:870 46
Melsungen 32 16 4 12 950:884 36
A-deild kvenna:
Leipzig – Koblenz/Weibern............... 41:29
Þorgerður Anna Atladóttir hjá Leipzig
er frá keppni vegna meiðsla.
Hildur Þorgeirsdóttir skoraði eitt mark
fyrir Koblenz/Weibern.
Frakkland
Cesson Rennes – St. Raphael ............ 23:23
Arnór Atlason leikur með liði St. Rapha-
el.
Nimes – Istres ...................................... 35:27
Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði þrjú
mörk fyrir Nimes.
Toulouse – Sélestat ............................ 31:29
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði þrjú
mörk fyrir Sélestat.
HANDBOLTI
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit, 5. leikur:
Cleveland – Chicago......................... 106:101
Staðan er 3:2 fyrir Cleveland, sjötti leik-
ur er í Chicago í kvöld og hefst á miðnætti.
Vesturdeild, undanúrslit, 5. leikur:
Houston – LA Clippers.................... 124:103
Staðan er 3:2 fyrir Clippers, sjötti leikur í
Los Angeles í nótt og hefst kl. 02.30.
KÖRFUBOLTI
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi-deildin:
Vodafone-völlur: Valur – Afturelding ..... 14
Kópavogsvöllur: Breiðablik – Þróttur..... 14
Samsung-völlur: Stjarnan – KR .............. 14
Fylkisvöllur: Fylkir – Selfoss................... 14
Boginn: Þór/KA – ÍBV......................... 15.30
Í KVÖLD!
STJARNAN – Komnar: Guðrún K.
Sigurðardóttir (ÍA), Sigríður Þ.
Birgisdóttir (Aftureld.), Ana Cate
(FH), Beverly Leon (Band.) Shan-
non Woeller (Bodö). Farnar: Marta
Carissimi (Verona), Maegen Kelly
(Åland), Glódís Viggósdóttir (Esk-
ilstuna), Elva Friðjónsdóttir (Gamla
Uppsala), Danka Podovac (Öster-
sund).
BREIÐABLIK – Komnar: Hallbera
Gísladóttir (Val), Málfríður Erna
Sigurðardóttir (Val), Svava Rós
Guðmundsdóttir (Val). Farnar:
Berglind Þorvaldsdóttir (Fylki).
ÞÓR/KA – Komnar: Gígja V.
Harðardóttir (Val), Sarah Miller
(Bandaríkj.), Klara Lindberg (Sví-
þjóð). Farnar: Freydís Anna Jóns-
dóttir (FH), Arna Sif Ásgrímsdóttir
(Gautaborg), Katrín Ásbjörnsdóttir
(Klepp), Hafrún Olgeirsdóttir
(Völsungi), Tahnai Annis (Bandar.)
SELFOSS – Komnar: Heiðdís
Sigurjónsdóttir (Hetti), Chante
Sandiford (Zorkij), Summer Willi-
ams (N-Írlandi), Donna Henry
(Neunkirch). Farnar: Alexa Gaul
(Sand), Dagný Brynjarsdóttir (Bay-
ern), Blake Stockton (Medkila).
FYLKIR – Komnar: Berglind
Björg Þorvaldsdóttir (Breiðabliki),
Bryndís Hrönn Kristinsdóttir (ÍBV),
Margrét B. Ástvaldsdóttir (Þrótti),
Ólína G. Viðarsdóttir (Val), Sandra
Sif Magnúsdóttir (FH). Farnar: Ca-
rys Hawkins (Perth Glory).
ÍBV – Komnar: Cloe Lacasse
(Kanada), Holly Clarke (Bandar.),
Esther Rós Arnarsdóttir (Breiða-
bliki). Farnar: Nadia Lawrence (Wa-
les), Bryndís H. Kristinsdóttir
(Fylki), Vesna Elísa Smiljkovic
(Val).
VALUR – Komnar: Anna Garð-
arsdóttir (HK/Vík.), Heiða Dröfn
Antonsdóttir (Fylki), Inga Dís Júl-
íusdóttir (Aftureld.), Jóhanna
Gústavsdóttir (Sarpsborg), Maria
Haseta (FH), Vesna Elísa Smiljko-
vic (ÍBV), Katia Maanane (Le
Mans). Farnar: Birna Kristjáns-
dóttir (Grand Bodö), Hallbera G.
Gísladóttir (Breiðabliki), Málfríður
Erna Sigurðardóttir (Breiðabliki),
Ólína G. Viðarsdóttir (Fylki), Svava
Rós Guðmundsdóttir (Breiðabliki),
Gígja Harðardóttir (Þór/KA),
Agnes Árnadóttir (KR).
AFTURELDING – Komnar: Lovísa
Guðmundsdóttir (Fjölni), Sasha
Andrews (Band.), Elise Koutsakis
(Band.) Farnar: Lilja Valþórsdóttir
(Breið.), Steinunn Sigurjónsdóttir
(Breið.), Courtney Conrad (Issy),
Heiðrún Sigurðardóttir (Frankfurt),
Inga Dís Júlíusdóttir (Val), Sigríður
Birgisdóttir (Stjörn.)
KR – Komnar: Guðrún Anna
Atladóttir (FH), Íris Valmunds-
dóttir (Fjölni), Kelsey Loupee
(Band.), Chelsea Leiva (Band.),
Chelsea Raymond (Band.), Agnes
Árnadóttir (Val). Farnar: Ástrós
Guðlaugsdóttir (FH), Emily Kruger
(Band.)
ÞRÓTTUR – Komnar: Sigurrós
Guðmundsdóttir (Keflavík), Madis-
on Solow (Band.), Jade Flory
(Band.), Mckenzie Sauverwein
(Band.) Farnar: Kristín Guðmunds-
dóttir (FH), Maggý Lárents-
ínusdóttir (FH), Margrét B. Ást-
valdsdóttir (Fylki).
Helstu breytingar á liðunum