Morgunblaðið - 14.05.2015, Side 3
varð 10 stigum á eftir KR í B-
riðlinum. Liðið vann Fjölni í um-
spilinu um sæti en það kemur ekki á
óvart að því sé spáð falli aftur niður.
„Jóna þjálfari er gamall refur og
hefur alveg verið í þessari aðstöðu
áður, að vera spáð falli og svona.
Þær eru kannski ekki með marga
framúrskarandi leikmenn en hafa
samt leikmann eins og Önnu Birnu
Þorvarðardóttur sem gæti gert
mjög góða hluti ef hún heldur sér
heilli,“ sagði Edda. Hún tekur undir
að 17 ára sóknarmaðurinn Eva
Bergrín Ólafsdóttir sé einnig leik-
maður sem vert sé að fylgjast með:
„Hún er mjög efnileg en auðvitað
spurningarmerki gegn stórum og
fljótum varnarmönnum. En hún er
hættuleg, eldfljót og með góðan
skotfót.“
Afturelding með meirapróf
Afturelding er komin með meira-
próf í að halda sæti sínu í deildinni,
en liðinu er spáð botnsætinu í ár.
Liðið vann ekki leik í Lengjubik-
arnum í vor og skoraði aðeins eitt
mark í fimm leikjum. Afturelding
hélt Helen Lynskey sem skoraði sjö
mörk í 12 leikjum síðasta sumar og
það skiptir miklu máli fyrir liðið,
enda var Lynskey valin í úrvalslið
seinni hluta síðasta tímabils. Þá eru
nýkomnar í liðið kanadískur lands-
liðsmiðvörður og framherji.
„Þær hafa verið óheppnar á
undirbúningstímabilinu með meiðsli
og annað, og engir útlendingar
komnir,“ sagði Edda. „En það verð-
ur aldrei létt fyrir neinn að fara í
Mosfellsbæinn. Þær verða þéttar
fyrir og Teddi þjálfari kann alveg að
kenna þeim færslurnar,“ bætti hún
við.
Íslandsmeistari 2003 og ljóst að fram-
undan er ekkert annað en barátta fyr-
ir tilverurétti í deildinni.
„Við erum með ungt lið, nýkomnar
upp úr 1. deildinni, og við vitum alveg
að þetta verður mikil barátta. En það
eru allir klárir í það. Við erum komin
með tvo útlendinga og sá þriðji gæti
bæst við,“ sagði Edda, sem eins og áð-
ur segir er aðstoðarþjálfari KR.
Á meðal spennandi leikmanna í
KR-liðinu má nefna Sigríði Maríu Sig-
urðardóttur, U19-landsliðskonu, sem
skoraði grimmt í 1. deildinni í fyrra.
Það gerði Sonja Björk Jóhannsdóttir
einnig, hún er reynslumikil og þekkir
það að spila í efstu deild. Hrafnhildur
Agnarsdóttir er eini markvörður liðs-
ins sem stendur og ljóst að mikilvægt
er að hún standi sig.
Þrótti eðlilega spáð falli
Þróttur fylgdi KR upp úr 1. deild-
inni en átti erfiðara uppdráttar þar og
enda síðustu misseri eftir áralanga
titlasöfnun félagsins þar áður, og hætt
er við að erfitt verði fyrir liðið að rétta
úr kútnum strax. Dóra María Lár-
usdóttir er hætt og fleiri afar öflugir
leikmenn farnir á brott, og því hægt
að halda því fram að Valsliðið hafi
veikst enn frekar frá síðasta tímabili.
„Það getur brugðið til beggja vona
hjá Val. Það er náttúrlega þungt að
missa svona sterka pósta úr liðinu, en
það eru gríðarlega efnilegir leikmenn
að koma upp. Það er bara spurning
hvernig þeir koma til með að höndla
álagið og standa sína vakt. Þær hafa
fengið inn framherja sem virðist mjög
fín. Á miðjunni eru þær svo með þrjár
systur, Heiðu, Hörpu og Hildi Ant-
onsdætur, og þær eiga eftir að slást
vel á miðjunni,“ sagði Edda.
KR kemur upp með ungt lið
KR snýr nú aftur í efstu deild eftir
tveggja ára fjarveru. Liðið varð síðast
itt
“
nni úr sessi?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Uppleið Guðmunda Brynja Óladóttir og félagar í liði Selfoss náðu sínum besta árangri í fyrra þegar þær enduðu í fjórða
sæti og komust í bikarúrslitin. Nú eru þær taldar líklegar til að ná enn lengra og var spáð þriðja sæti í deildinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
úr Stjörnunni og Aldís Kara Lúðvíks-
í baráttu um stóru titlana í ár.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stöðugar Þór/KA hefur fest sig í sessi í efri hlutanum og varð Íslandsmeistari
2012. Liðið gæti saknað fyrirliðans, Örnu Sifjar Ásgrímsdóttur, í sumar.
AFP
tæðu til að fagna eftir leikinn gegn Real Ma-
Meistaradeildarinnar og mætir Barcelona.
Það verða fagnaðarfundir á ólympíu-
leikvanginum í Berlín hinn 6. júní
þegar Luis Suárez, framherji Barce-
lona, hittir „vini“ sína þá Patrice
Evra og Giorgio Chiellini þegar
Barcelona og Juventus eigast við í
úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Já
„gamla konan“, Juventus, gerði sér
lítið fyrir og sló ríkjandi Evr-
ópumeistara Real Madrid úr leik í
undanúrslitum Meistaradeildarinnar
og það á Santiago Bernabeu. 1:1 urðu
úrslitin og Ítalíumeistarar Juventus
unnu einvígið, 3:2.
Rimmur Suárez við þá Evra og
Chiellini eru frægar um víða veröld.
Suárez var dæmdur í átta leikja bann
þegar hann var sakaður um að hafa
beitt Evra kynþáttaníði og á HM í
Brasilíu í fyrra fékk Suárez níu leikja
og fjögurra mánaða bann fyrir að
naga öxl ítalska varnarmannsins í
leik Úrúgvæs og Argentínu.
Ítalir eru þekktir fyrir að verjast
vel og sýndu þá list vel í gærkvöld.
Þeir náðu að halda leikmönnum Real
Madrid vel niðri og með vinnusemi
og öguðum og skynsömum leik tókst
Juventus-mönnum að slá meistarana
úr leik og eru vel að því komnir að
vera komnir í úrslitaleikinn.
Cristiano Ronaldo kom Madridar-
liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu
en Alvaro Morataa skaut Juventus
áfram þegar hann jafnaði metin á
57. mínútu. Hann gerði sínum gömlu
félögum þar með stóran grikk en
hann yfirgaf félagið í fyrra. Morata
fæddist í Madrid og lék með félag-
inu frá 2010-14.
Þetta verður fyrsti úrslitaleikur
Juventus í Meistaradeildinni í tólf ár
en félagið státar af tveimur Evrópu-
meistaratitlum sem það vann 1985
og 1996.
Tímabilið hjá Real Madrid er að
verða að martröð en það stefnir allt
í titlalaust tímabil og það kæmi ekki
á óvart ef Carlo Ancelotti yrði látinn
taka pokann sinn um leið og tíma-
bilinu lýkur. gummih@mbl.is
Meistarar úr leik
Morata skaut gömlu félagana úr leik Juventus í úrslit
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2015
Finnski körfu-knattleiks-
þjálfarinn Pieti
Poikola hefur
verið ráðinn þjálf-
ari karlaliðs
Tindastóls fyrir
næsta keppnis-
tímabil en hann
tekur við af Spán-
verjanum Israel Martin sem hættir
eftir að hafa náð frábærum árangri
með liðið í vetur. Poikola er 38 ára
gamall og hefur þjálfað um árabil, en
Tampereen Pyrintö hefur þrívegis
orðið finnskur meistari á undan-
förnum sjö árum undir hans stjórn.
Hann hefur verið landsliðsþjálfari
Dana undanfarin tvö ár og mun þjálfa
það áfram þó hann sé jafnframt ráð-
inn til Tindastóls.
Hinn tuttuguára gamli
Kristmundur
Gíslason úr
Keflavík keppti í
gær á HM í taek-
wondo sem fram
fer í Tsjeljabinsk í
Rússlandi.
Kristmundur,
sem keppir í -74 kg flokki, mætti
Samuel Morrison frá Filippseyjum í
sínum fyrsta bardaga, í 64-manna úr-
slitum. Morrison fór með sigur af
hólmi, 8:6, og vann einnig sigur á
Bretanum Andrew Deer í 32-manna
úrslitum, 16:14. Hann féll svo úr leik í
16-manna úrslitunum. Meisam Rafiei
féll einnig úr leik í 64-manna úrslitum
í gær, í -58 kg flokki. Þriðji og síðasti
keppandi Íslands á HM er Björn Þor-
leifur Þorleifsson sem keppir í -80 kg
flokki. Hann mætir Richard Andre
Ordemann frá Noregi á mánudaginn.
Swansea hefur hafið viðræður viðknattspyrnustjórann Gary Monk
um að framlengja samning sinn við
félagið en núgildandi samningur hans
gildir til ársins 2017. Monk hefur
heldur betur náð fínum árangri með
velska liðið en margir höfðu efasemd-
ir um að þessi fyrrverandi leikmaður
liðsins ætti eitthvert erindi í stjóra-
starfið. Swansea, með Gylfa Þór Sig-
urðsson í broddi fylkingar, hefur
bætt stigamet félagsins í úrvalsdeild-
inni en þegar tvær umferðir eru eftir
er Swansea í áttunda sætinu með 56
stig. Monk tók við af Dananum Mich-
ael Laudrup eftir að hann honum var
sagt upp störfum í byrjun tímabilsins
í fyrra.
Franski lands-liðs-
markvörðurinn
Thierry Omeyer
framlengdi í gær
samning sinn við
franska liðið Paris
SG sem landsliðs-
maðurinn Róbert
Gunnarsson leik-
ur með. Omeyer, sem er 38 ára gam-
all og hefur verið talinn besti mark-
vörður heims, er nú
samningsbundinn Parísarliðinu til
ársins 2017. „Ég er mjög ánægður að
halda ævintýrinu áfram með Paris og
stoltur af því trausti sem félagið sýnir
mér,“ sagði Omeyer á vef franska
handknattleikssambandsins.
Björgólfur Takefusa, sóknarmað-urinn reyndi, hefur gengið frá
félagaskiptum yfir til Þróttar í
Reykjavík úr Fram og gæti því spilað
með liðinu í 1. deildinni í knattspyrnu
í sumar. Björgólfur var lánaður frá
Fram til Þróttar um mitt síðasta
sumar og skoraði þá þrjú mörk í níu
leikjum fyrir liðið í 1. deildinni. Hann
hóf ferilinn í meistaraflokki með
Þrótti árið 1998 og var annar tveggja
markakónga efstu deildar með liðinu
árið 2003 þegar hann skoraði 10
mörk. Björgólfur varð líka marka-
kóngur deildarinnar, með KR, árið
2009 þegar hann skoraði 16 mörk í
deildinni.
Fólk sport@mbl.is
STJARNAN: Ólafur Þór Guð-
björnsson (annað ár).
BREIÐABLIK: Þorsteinn Hall-
dórsson (fyrsta ár).
ÞÓR/KA: Jóhann Kristinn Gunn-
arsson (fjórða ár).
SELFOSS: Gunnar Rafn Borg-
þórsson (þriðja ár).
FYLKIR: Jörundur Áki Sveinsson
(fyrsta ár).
ÍBV: Ian Jeffs (fyrsta ár).
VALUR: Ólafur Brynjólfsson
(fyrsta ár).
AFTURELDING: Theódór Svein-
jónsson (annað ár).
KR: Björgvin Karl Gunnarsson
(þriðja ár).
ÞRÓTTUR: Guðrún Jóna Krist-
jánsdóttir (annað ár).
Þjálfararnir