Morgunblaðið - 29.05.2015, Page 1

Morgunblaðið - 29.05.2015, Page 1
FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015 ÍÞRÓTTIR Fótbolti Valur tyllti sér á topp Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu í gær. Selfoss gerði góða ferð í Garðabæinn og lagði Íslandsmeistara Stjörnunnar. Nýliðar KR sóttu stig gegn Blikum 2-3 Íþróttir mbl.is FRÉTTASKÝRING Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Ásýnd knattspyrnuíþróttarinnar er í húfi í dag þegar 209 fulltrúar jafn- margra aðildarþjóða Alþjóða knatt- spyrnusambandsins, FIFA, ganga til kosninga í Zürich um hvort Sepp Blatter eða Ali bin al Hussein eigi að sitja í forsetastólnum næstu fjögur ár. Öll spjót standa á Blatter í kjölfarið þess að sjö stjórnarmenn í FIFA voru handteknir í Zürich á mið- vikudagsmorguninn og bandaríska alríkislögreglan, FBI, gaf út hand- tökuskipanir á sjö aðila til viðbótar, sem tengjast FIFA eða umsvifum sambandsins á einn eða annan hátt. Þessir fjórtán eru allir frá Ameríku, flestallir frá ríkjum í Mið- og Suður- Ameríku en einnig frá Bandaríkj- unum. Einn er reyndar breskur rík- isborgari en með aðsetur vestanhafs. Einn hinna handteknu er Jeffrey Webb frá Cayman-eyjum, einn vara- forseta FIFA og forseti knattspyrnu- sambands Norður- og Mið-Ameríku. Blatter hefur sjálfur bent á hann sem vænlegan eftirmann sinn. Um leið settu svissnesk lögreglu- yfirvöld kraft í rannsókn á meintum mútum tengdum úthlutun HM 2018 í Rússlandi og 2022 í Katar með hús- rannsóknum í landinu þar sem lögð voru höld á ýmis gögn. Hafnaði ósk Platini Blatter hefur til þessa þótt traust- ur í sessi og hann tók fálega í ósk Michels Platini, forseta UEFA, í gær um að draga sig í hlé. Platini hefur undanfarin misseri gagnrýnt Blatter hart fyrir að ganga á bak orða sinna um að láta staðar numið að þessu kjörtímabili liðnu. Blatter lýsti því yf- ir í fyrrakvöld að hann styddi rann- sóknina og vildi að allt yrði gert til að hreinsa til hjá sambandinu. Nema að víkja sjálfur og hann virðist telja sig öruggan um endurkjör þrátt fyrir ágjöf síðustu daga. Í opnunarræðu FIFA-þingsins í gær var engan bil- bug á honum að finna. Hann væri enginn sökudólgur þó spillingin hefði blómstrað á hans vakt. Fyrst Blatter er sjálfur ekki tilleið- anlegur til að láta af embætti er frek- ar ólíklegt að honum verði velt úr sessi í dag. Í forsetatíð hans hafa greiðslur FIFA til aðildarlanda stór- aukist, og þær hafa nýst sérstaklega vel til að byggja upp íþróttina í Afr- íku, Asíu og víðar. Fyrir vikið er hann með nánast óhagganlegan stuðning í þessum heimsálfum en Afríka og Asía eiga 103 af 209 fulltrúum á þinginu. Þar að auki nýtur hann yf- irgnæfandi stuðnings í allri Ameríku. Meirihluti næst með 105 atkvæðum. Sameinuð Evrópa ekki nóg Evrópuþjóðirnar eru að mestu sameinaðar um að styðja keppinaut hans, jórdanska prinsinn Ali bin al Hussein. Geir Þorsteinsson, formað- ur KSÍ, sagði við mbl.is eftir fund Evrópuþjóðanna í Zürich í gær að niðurstaða fundarins hefði verið sú að UEFA myndi styðja Ali. Kosning- arnar væru leynilegar en það lægi fyrir að Ísland og aðrar Norð- urlandaþjóðir myndu greiða Ali sitt atkvæði og allir sem talað hefðu á fundinum í gær styddu hann. Evrópa á 53 atkvæði í kjörinu og því aðeins innan við fjórðung. John Delaney, framkvæmdastjóri írska knattspyrnusambandsins, sagði við Sky Sports að ógerlegt væri að full- yrða að allar 53 þjóðirnar styddu Ali, og eflaust myndu einhverjar hlaupa undan merkjum og fylgja Blatter. Það þurfa því ansi margar þjóðir úr öðrum heimsálfum að skipta um skoðun til að Blatter verði felldur í kjörinu. Stórfyrirtækin vega þungt Hinar gríðarlegu tekjur FIFA hafa nýst Svisslendingnum vel til að festa sig rækilega í sessi. Að því leyti eru hinsvegar blikur á lofti. Svert ásýnd FIFA virðist hafa hreyft við helstu styrktaraðilum sambandsins, sem hafa dælt til þess fjármagni í gegnum auglýsingar og aðra styrki. Visa reið á vaðið og kveðst ætla að endurskoða stuðning sinn við FIFA vegna at- burða síðustu daga. Stórfyrirtæki á borð við Coca-Cola, Adidas, Nike, Budweiser, Kia Motors og McDo- nalds hafa lýst yfir áhyggjum af gangi mála, enda lítið spennandi að tengjast íþróttinni ef hún fær á sig ímynd spillingar og helstu forvíg- ismenn hennar verða settir á bakvið lás og slá. Þarna er kannski lykillinn að mögulegri endurnýjun og „núll- stillingu“ á Alþjóða knattspyrnu- sambandinu. Óttinn við minnkandi tekjur gæti mögulega reynst hollust- unni við Blatter yfirsterkari. Ásýnd íþróttarinnar í húfi í forsetakjörinu  Ólíklegt að Sepp Blatter verði velt úr sessi á FIFA-þinginu AFP Þingið Sepp Blatter í ræðustóli við setningu FIFA-þingsins í gær.  Olga Færseth skoraði þrennu fyrir íslenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu þegar það sigraði Ungverjaland 5:0 á útivelli í undankeppni Evrópu- mótsins 29. maí 2005.  Olga fæddist 1975 og lék fyrst með Keflavík en síðan með Breiðabliki, KR, ÍBV og Selfossi. Hún er markahæsta knattspyrnukona Íslands frá upphafi og gerði 323 mörk í deildakeppninni, þar af 269 í 217 leikjum í efstu deild sem hvorttveggja er met. Þá er Olga sjöunda markahæsta landsliðskona Ís- lands með 14 mörk í 54 landsleikjum. ÍÞRÓTTA- MAÐUR- DAGSINS Rafael Benítez verður kynntur til leiks sem nýr þjálfari Real Madrid næsta miðviku- dag. Spænska blaðið Marca hefur heimildir fyrir þessu en Benítez greindi frá því í gær að hann mundi hætta sem þjálfari ítalska liðsins Napoli eftir tímabilið. Benítez, sem er þekktastur fyrir störf sín hjá Liverpool þar sem hann var við stjórn- völinn frá 2004-10 og gerði Liverpool að Evrópumeisturum árið 2005, er ekki alveg ókunnugur Real Madrid. Hann spilaði með varaliði félagsins og var svo þjálfari þess frá 1993-95. Hann hefur þjálfað Napoli frá árinu 2013. gummih@mbl.is Benítez tekur við Real Rafael Benítez Róbert Gunnarsson átti flottan leik með Paris SG þegar liðið lagði Saint Raphael, 27:22, í næst síðustu umferð frönsku úrvals- deildarinnar í handknattleik í gær. Róbert skoraði fimm mörk og var næst markahæst- ur Parísarliðsins á eftir dönsku stórskytt- unni Mikkel Hansen sem skoraði 7 mörk. Með sigrinum komst Paris SG í toppsæti deildarinnar en liðið er stigi á undan Mont- pellier fyrir lokaumferðina. Í lokaumferðinni sækir Paris SG lið Tremblay heim en liðið er í 10. sæti deildarinnar. Arnór Atlason skor- aði tvö af mörkum Saint Raphael í leiknum en liðið er í 3. sæti. gummih@mbl.is Róbert var öflugur Róbert Gunnarsson Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins styttist óðfluga í það að Ögmundur Krist- insson, einn landsliðsmarkvarða Íslands í knattspyrnu, semji við sænska liðið Hamm- arby en liðið leikur í efstu deild og er sem stendur í 11. sæti af 16 eftir 10 umferðir. Samningaviðræður Ögmundar eru langt á veg komnar og aðeins ákveðin formsatriði eftir en allar líkur eru á því að hann skrifi undir í næstu viku. Ögmundur hefur lítið fengið að spreyta sig með danska úrvals- deildarliðinu Randers á tímabilinu sem er að ljúka í Danmörku en þangað kom hann um mitt síðasta sumar frá Fram. peturhreins@mbl.is Viðræður langt komnar Ögmundur Kristinsson Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is „Tilfinningin er frábær og ég er bara algjörlega í skýjunum,“ sagði spjót- kastarinn Ásdís Hjálmsdóttir við Morgunblaðið í gærkvöld skömmu eftir að hafa borið sigur úr býtum á Riga Cup mótinu í Lettlandi. Það var ekki nóg með að Ásdís sigraði á mótinu heldur tryggði hún sér þátt- tökurétt á HM í Peking síðar í sumar og á Ólympíuleikunum í Ríó á næsta ári. Ásdís kastaði spjótinu lengst 62,14 metra og það er næst lengsta kast hennar á ferlinum en Íslands- met hennar er 62,77 metrar sem hún setti á Ólympíuleikunum í London 2012. Lágmarkið fyrir Ólympíu- leikana var 62 metrar og 61 metri á HM. „Stefnan hjá okkur var að ná alla vega lágmarkinu fyrir HM sem allra fyrst og taka þar með pressuna af. Ég vissi að ég væri í formi til að ná lágmarkinu fyrir Ríó líka og það var bara spurning um að hitta á kast- ið,“ sagði Ásdís, sem kemur heim í dag og hún verður í eldlínunni í spjótkastkeppni Smáþjóðaleikanna á þriðjudaginn og keppir svo í kringlu- kasti á fimmtudaginn. „Þessi árang- ur gefur góð fyrirheit fyrir sumarið og gefur manni aukið sjálfstraust. Það eru ekki nema þrír og hálfur mánuður síðan ég sat með brotna hönd með tárin í augunum á slysa- varðstofunni og ég fékk álagsbrot í fótinn í haust sem gerði það að verk- um að ég gat ekki æft sem skyldi. Það er því virkilega ánægjulegt að vera komin í þessa stöðu og nú er fátt sem myndi gleðja mig meira en að slá Íslandsmetið,“ sagði Ásdís. Næst lengsta kastið á ferlinum  Ásdís Hjálmsdóttir tryggði sér sæti á HM og ÓL með kasti upp á 62,14 m Ljósmynd/Þórir Ó.Tryggvason Ánægð Ásdís Hjálmsdóttir gerði það gott í Ríga í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.