Morgunblaðið - 29.05.2015, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 29.05.2015, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 2015 KARLAR: Ari Bragi Kárason, FH (100 m hlaup, 4x100 m) Arnar Pétursson, ÍR (3.000 m hindrunarhlaup) Bjartmar Örnuson, UFA (800 m hlaup) Einar Daði Lárusson, ÍR (110 m grind., hástökk, stangarstökk) Guðmundur Heiðar Guðmundsson, FH (110 m grind., 400 m grind.) Guðmundur Sverrisson, ÍR (spjótkast) Guðni Valur Guðnason, ÍR (kringlukast) Gunnar Guðmundsson, ÍR (4x400 m) Hilmar Örn Jónsson, FH (kringlukast) Hlynur Andrésson, ÍR (1.500 m hlaup, 5.000 m hlaup) Ingvar Hjartarson, Fjölni (5.000 m hlaup) Ívar Kristinn Jasonarson, ÍR (200 m hlaup, 400 m grind., 4x100 m, 4x400 m) Jóhann Björn Sigurbjörnsson, UMSS (100 m hlaup. 4x100 m, 4x400 m) Juan Ramon Borges, ÍR (4x100 m) Kári Steinn Karlsson, ÍR (10.000 m hlaup) Kolbeinn Höður Gunnarsson, UFA (200 m hlaup, 400 m hlaup, 4x100 m, 4x400 m) Kormákur Ari Hafliðason, FH (4x400 m) Krister Blær Jónsson, ÍR (stangarstökk) Kristinn Þór Kristinsson, HSK (800 m hlaup, 1.500 m hlaup) Kristinn Torfason, FH (langstökk) Óðinn Björn Þorsteinsson, ÍR (kúluvarp) Sindri Hrafm Guðmundsson, Breiðabliki (spjótkast) Stefán Jósepsson, UFA (þrístökk) Stefán Velimir, FH (kúluvarp) Styrmir Daði Steinunnarson, HSK (hástökk) Sæmundur Ólafsson, ÍR (3.000 m hindrunarhlaup) Trausti Stefánsson, FH (400 m hlaup, 4x400 m) Tristan Freyr Jónsson, ÍR (4x100 m) Þorsteinn Ingvarsson, ÍR (langstökk, þrístökk) Þórarinn Þrándarson, FH (10.000 m hlaup) KONUR: Agnes Erlingsdóttir, HSK (400 m grind.) Andrea Kolbeinsdóttir, ÍR (5.000 m hlaup) Aníta Hinriksdóttir, ÍR (800 m hlaup, 1.500 m hlaup, 4x400 m) Anna Berglind Pálmadóttir, UFA (10.000 m hlaup) Arna Stefanía Guðmundsdóttir, FH (100 m grind., 400 m grind., 4x100 m, 4x400 m) Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni (kringlukast, spjótkast) Ásgerður Jena Ágústsdóttir, UFA (kúluvarp) Bogey Ragnheiður Leósdóttir, ÍR (stangarstökk) Dóróthea Jóhannesdóttir, ÍR (langstökk) Guðbjörg Bjarkardóttir, FH (4x100 m) Hafdís Sigurðardóttir, UFA (100 m hlaup, 200 m hlaup, 4x100 m, 4x400 m, langstökk, þrístökk) Helga Guðný Elíasdóttir, Fjölni (5.000 m hlaup) Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir, ÍR (100 m hlaup, 200 m hlaup, 4x100 m) Hulda Þorsteinsdóttir, ÍR (stangarstökk) Irma Gunnarsdóttir, Breiðabliki (100 m grind., 4x100 m, kúluvarp) Kristín Karlsdóttir, FH (kringlukast) María Birkisdóttir, ÍR (800 m hlaup, 1.500 m hlaup) María Ósk Felixdóttir, ÍR (sleggjukast) María Rún Gunnlaugsdóttir, Ármanni (spjótkast) Melkorka Rán Hafliðadóttir, FH (4x400 m) Rannveig Oddsdóttir, UFA (10.000 m hlaup) Selma Líf Þórólfsdóttir, UFA (hástökk) Steinunn Erla Davíðsdóttir, UFA (400 m hlaup, 4x100 m, 4x400 m) Thelma Lind Kristjánsdóttir, ÍR (þrístökk) Vigdís Jónsdóttir, FH (sleggjukast) Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir, UMSS (hástökk) Þórdís Eva Steinsdóttir, FH (400 m hlaup, 4x400 m) Íslensku keppendurnir FRJÁLSAR Kristján Jónsson kris@mbl.is Frjálsíþróttakeppnin er einn af há- punktum Smáþjóðaleikanna sem hér verða haldnir í næstu viku. Nú þegar Ísland er á heimavelli þá er skemmtileg sú staðreynd að fjöldi efnilegs íþróttafólks er að skapa sér nafn í frjálsum hérlendis. Sér vart fyrir endann á þeim uppgangi. Ragnheiður Ólafsdóttir segir raunar að lands- liðið sem Ísland teflir fram nú sé eitt það sterkasta sem við höfum átt. Ragnheiður er yfirþjálfari landsliðsins á Smáþjóðaleikunum ásamt Jóni Oddssyni. „Við erum með töluverðar vænt- ingar um að gera góða hluti og höf- um aldrei verið með jafn fjölmennt lið á Smáþjóðaleikunum. Við höfum sjaldan verið með eins sterkt lið og svo frambærilega einstaklinga. Við erum mjög spennt,“ sagði Ragnheið- ur þegar Morgunblaðið spjallaði við hana í gær. Íslendingar hafa átt velgengni að fagna á Smáþjóðaleikunum og eru þar í fremstu röð í mörgum greinum. Erfitt er fyrir Ragnheiði að segja til um sigurmöguleika í frjálsum þar sem ekki hefur borist listi yfir afrek keppinautanna á þessu ári. Smá- þjóðaleikarnir eru snemma á keppn- istímabilinu og sjálfsagt eru margir keppendur sem ekki hafa ennþá keppt utanhúss á árinu. Fyrirfram segist Ragnheiður reikna með mestri samkeppni frá Kýpur og Lúxemborg í frjálsíþróttakeppninni en ekki sé hægt að slá neinu föstu um það. „Ég held að mér sé óhætt að segja Kýpur, eða þannig hefur það alla vega verið. Þeir hafa átt gríðarlega góða spretthlaupara, millivega- lengdahlaupara og jafnvel stökkv- ara. Fljótt á litið þá sýnist mér Lúx- emborg vera með mjög sterkt lið. Athygli mín beinist aðeins að þeim og miðað við það sem ég hef gluggað í eru þeir sterkir á pappírunum. Aðrar þjóðir blanda sér frekar í bar- áttuna í stökum greinum.“ Stutt í Evrópukeppnina Almennt séð þarf fólk að hugsa um sjálft sig í frjálsum enda um ein- staklingsgreinar að ræða. Þegar kemur að Smáþjóðaleikum er hins vegar um meiri liðakeppni að ræða. Þannig er því einnig farið í Evrópu- keppni landsliða sem fer fram eftir tæpan mánuð. Þar komst Ísland upp um deild í fyrra. „Þetta er góð byrjun á sumrinu og þarna fær okkar fólk tækifæri til að sanna sig fyrir Evrópukeppnina. Einhverjir eru öruggir í þann hóp en aðrir eru að berjast um sæti í liðinu sem keppir þar. Í Evrópukeppninni er eitt sæti í boði í hverri grein en á Smáþjóðaleikunum sendum við tvo í hverja grein. Við erum því að tefla fram helmingi fjölmennara landsliði en í Evrópukeppninni. Í þessum tveimur keppnum er einkennandi að liðsheildin skiptir gríðarlegu máli. Breiddin þarf að vera góð og það skiptir máli að eiga frambærilegt fólk í öllum greinum. Slíkt myndar góða stemningu og gott að vera sýni- leg á heimavelli. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbúninginn af sjálf- boðaliðum og því er mikill léttir að vita að leikarnir verða að veruleika. Þetta var í járnum um tíma virtist vera,“ sagði Ragnheiður ennfremur í samtali við Morgunblaðið. Hún lét þess getið að fyrir utan hana og Jón þá kæmu fleiri að stjórn hópsins og flestir keppendur hafa sína persónulegu þjálfara með sér. Er það hægt í krafti þess að Ísland er á heimavelli og almenn ánægja með það fyrirkomulag, að sögn Ragnheiðar. Töluverðar væntingar  Höfum sjaldan átt eins sterkt landslið í frjálsum að mati Ragnheiðar Ólafsdóttur landsliðsþjálfara  Búast má við mestri samkeppni frá Kýpur og Lúxemborg Morgunblaðið/Eva Björk Fljótar Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir og Hafdís Sigurðardóttir verða áberandi í frjálsíþróttakeppni Smáþjóðaleikanna. Frjálsíþróttir » Frjálsíþróttakeppni Smá- þjóðaleikanna fer fram á Laug- ardalsvellinum. » Keppt er frá 15.30 til 20.35 þriðjudaginn 2. júní, frá 16 til 19.50 fimmtudaginn 4. júní og frá 14 til 17.45 laugardaginn 6. júní. » Allar níu þjóðirnar senda keppendur í frjálsíþróttum en auk Íslands eru það Andorra, Kýpur, Liechtenstein, Lúx- emborg, Malta, Mónakó, San Marínó og Svartfjallaland. Morgunblaðið/Ómar Sprettur Kolbeinn Höður Gunnarsson, Jóhann Björn Sigurbjörnsson og Ari Bragi Kárason eru í íslenska liðinu. Ragnheiður Ólafsdóttir Á þessum árstíma eru uppi vangaveltur eins og fyrri daginn um hvort Gylfi Þór Sigurðsson eigi að nýta meðbyrinn og fara í eitthvað sem kallað er „stærra lið“. Þetta stef er svo sem þekkt og getur átt við um fleiri íslenska leikmenn sem hafa notið vel- gengni. Almennt séð er það slæm hugmynd í hópíþróttum að færa sig um set þegar vel geng- ur, en auðvitað ekki algilt. Þar sem ég vil íslenska lands- liðinu allt hið besta, þá vil ég í eigingirni minni að Gylfi sé hjá liði þar sem hann er mikilvægur hlekkur í keðjunni og spilar svo gott sem alla leiki. Leikæfing og sjálfstraust er þá til staðar þegar kemur að mikilvægum lands- leikjum. En einhverra hluta vegna kem ég aldrei að ákvörð- unartökunni þegar Gylfi skiptir um félag, eða skiptir ekki, og fylgist því með úr fjarlægð. Með hagsmuni landsliðsins í huga tel ég því best að Gylfi haldi kyrru fyrir hjá liði og efni- legum þjálfara sem metur hann að verðleikum. Málið er þó ekki alveg svo einfalt. Ég get nefni- lega alveg óskað Gylfa þess að fá að upplifa það að berjast um titla í boltanum. Hann hefur unnið fyrir því enda harðduglegur og agaður íþróttamaður. Til þess gæti hann þurft að komast í bet- ur mannað lið, jafnvel þó svo að þar myndi hann spila minna en hann gerir hjá Swansea. Gylfi er á 26. aldursári og hefur aldrei verið í þeirri stöðu að berj- ast um titla á atvinnumannsferl- inum. Verði breyting þar á þá getur slíkur reynsluheimur kom- ið sér gríðarlega vel fyrir lands- liðið í baráttunni við þekktari fót- boltaþjóðir. Þegar öllu er á botninn hvolft þá veit ég því eig- inlega ekki hvort ég er að koma eða fara … fyrir Gylfa hönd. Heil- hveitis Reykás-heilkenni. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Chicago Bulls, gamla stórveldið í bandarísku NBA- deildinni í körfu- knattleik, rak í gær þjálfarann Tom Thibodeau úr starfi en hann hefur stýrt liðinu síðustu fimm tímabilin. Undir stjórn Thibodeau vann Chicago 255 leiki en tapaði 139. Liðið vann miðriðilinn í Austurdeildinni tímabilin 2010-11 og 2011-12 og Thibodeau var útnefndur þjálfari ársins árið 2011 en sem ný- liði tókst Chicago að vinna 62 leiki á því tímabili. „Þegar Tom var ráðinn 2010 var hann rétti maðurinn fyrir liðið og okkar stefnu og á síðustu fimm árum hefur liðið náð ágætum árangri und- ir stjórn Tom. En þegar við horfum fram í tímann og metum hvernig við eigum að halda áfram að þróa liðið og bæta það þá teljum við að það sé best að gera breytingar,“ sagði Gar Forman, framkvæmdastjóri Chi- cago, þegar hann tilkynnti þá ákvörðun að segja Thibodeau upp störfum. Thibodeau var aðstoð- arþjálfari hjá Boston, SA Spurs, Minnesota, Philadelphia, New York og Houston áður en hann tók við þjálfun Chicago. gummih@mbl.is Chicago Bulls rak þjálfarann frá störfum Tom Thibodeau

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.