Morgunblaðið - 08.05.2015, Síða 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ
Ú
rval bifreiða hjá Bernhard ehf.
hefur sjaldan verið fjölbreyttara
en einmitt nú. Hlynur Pálmason
sölufulltrúi segir söluna hafa
verið að aukast jafnt og þétt síð-
ustu ár, bæði í magni og einnig að dreifast
á fleiri gerðir bíla. „Við sjáum töluverðan
mun á sölunni miðað við sama tíma í fyrra
og verðum varir við að margir við-
skiptavinir eru að skipta út fólksbílum af
árgerðum 2004-2006. Í atvinnubílum er líka
ágætis aukning og m.a. hafa Peugeot-
sendibílarnir átt vinsældum að fagna.“
CR-V í sérflokki
Þrátt fyrir breytingar á bílamarkaðinum
síðustu ár eru ákveðnir bílar sem halda
enn sérstöðu sinni, eins og borgarjeppinn
Honda CR-V. „Hann hefur í gegnum árin
verið okkar vinsælasti bíll. Það eykur enn
frekar á vinsældir Honda CR-V að bíllinn
heldur áfram að sanka að sér verðlaunum
og var að koma út í nýrri uppfærslu,“ segir
Hlynur. „CR-V var valinn jepplingur árs-
ins 2014 á Íslandi og hefur allt frá því
hann kom fyrst á markað árið 1997 verið
okkar mest seldi bíll. Orðspor hans er gott
og segir sína sögu að af öllum þeim bílum
sem hafa selst frá árinu 1997 til dagsins í
dag eru um 95%-97% enn á götunni.“
Jepplingar eins og CR-V henta íslenska
markaðinum mjög vel. Hátt er undir bílinn
svo hann ræður vel við akstur út fyrir
borgarmörkin og snjóþunga að vetri til en
hefur sömu aksturseiginleika og fólksbíll
þegar kemur að daglegum hversdagsakstri.
„Með nýjustu uppfærslu fjórðu kyn-
slóðar CR-V verður Honda Connect að
staðalbúnaði í flestum útfærslum en um er
að ræða margmiðlunartölvu í mælaborðinu
með sjö tommu snertiskjá. Kerfið tengist
hljómtækjum bílsins, hefur að geyma
Garmin-leiðsögukerfi með Íslandskorti,
hefur innbyggðan harðan disk og getur tal-
að við snjalltæki farþega yfir BlueTooth-
tengingu,“ útskýrir Hlynur.
Ein mesta nýjungin er þó ný 1,6 lítra
160ha dísilvél með 350 NM togi og níu
þrepa sjálfskiptingu.
Með svona mörg þrep í sjálfskiptingunni
segir Hlynur að gírskiptingar verði alveg
fumlausar og varla hægt að finna fyrir
þeim. Hjálpar fullkomin sjálfskiptingin líka
til við að auka sparneytni vélarinnar en að
jafnaði nær CR-V 6l /100 km í innanbæj-
arakstri með þessari nýju vél og skiptingu
samkvæmt framleiðanda. „Þá hafa verið
gerðar smávægilegar útlitsbreytingar á
fram- og afturenda bílsins,“ bætir Hlynur
við.
Peugeot 308 í uppáhaldi
Bernhard er einnig með umboð fyrir Peu-
geot. Peugeot býður upp á fjölbreytt úrval
bifreiða allt frá 108-smábíl upp í sjö manna
5008. Allir eru þeir umhverfisvænir og
eyðslugrannir og er Peugeot sá framleið-
andi í Evrópu sem er með hvað lægstu elds-
neytiseyðslu og lægsta gildi af CO2. Síðustu
ár hefur 308 verið í miklu uppáhaldi meðal
viðskiptavina. Var bíllinn valinn bíll ársins á
Íslandi 2015 og segir Hlynur að titillinn sé
mjög verðskuldaður. „Bæði er hönnunin
gríðarlega falleg, bíllinn mjög hljóðlátur og
einstaklega sparneytinn. Þá býður Peugeot
308 upp á nokkrar útfærslur af skemmti-
legum vélum, fæst bæði beinskiptur og
sjálfskiptur og er með spjaldtölvu í mæla-
borðinu sem hýsir bæði akturstölvu og
stjórntæki fyrir miðstöð og hljómtæki.“
Á stóru bílasýningunni í Fífunni um
helgina mun Bernhard m.a. kynna Peugeot
308 í skutbílsútfærslu. „Þá frumsýnum við
bíl sem margir hafa beðið spenntir eftir,
nýja Peugeot 208 GTi, smáan en kröftugan
bíl sem er undir sjö sekúndum í hundraðið,
og á verði sem kemur á óvart.“
Peugeot 208 GTi er arftaki hins goð-
sagnakennda 205 GTi sem kom upprunalega
á Evrópumarkað árið 1984. Bíllinn er sport-
legur út í eitt og kemur meðal annars með
sportsætum sem staðalbúnað. ai@mbl.is
Honda Connect staðalbúnaður í nýja CR-V
Bernhard kynnir nýjustu út-
færsluna af Honda CR-V-
jepplingnum vinsæla. Frum-
sýnir um helgina Peugeot 208
GTi, arftaka hins goðsagna-
kennda 205 GTi
Samgöngur Hlynur segir söluna hafa farið vel af stað það sem af er árinu. Klassík CR-V er mest seldi Honda-bíllinn á Íslandi og hefur skilað góðri endingu.
Morgunblaðið/Eggert
Ríkulegur Ný kynslóð CR-V er með margmiðlunartölvu og snertiskjá, og m.a. búinn Garmin leiðsögukerfi með Íslandskorti.
Kaggi 208 GTi er öflugur bíll sem margir bíða spenntir eftir að prófa. Afturhluti CR-V þykir mjög hentugur borgarjeppi.
Hraði Sala á mótorhjólum hefur verið róleg síð-
ustu ár, mögulega vegna leiðinlegs sumarveðurs.