Morgunblaðið - 08.05.2015, Side 23

Morgunblaðið - 08.05.2015, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ | 23 M ikil ös var í Dekkjahús- inu í Kópavogi er þess var freistað að fá sam- tal við forsprakkann Eið Örn Ármannsson í samtal. Örtröð af bílum þar sem skipta þurfti af vetrardekkjum yfir á sumardekk. Eiður sagði að svo þungt álag gæti verið til þess að þjónustan yrði ekki eins góð og hann vildi hafa hana. Gott að vera í Kópavogi „Þetta snýst um að hér renni allt eðlilega í gegn og allir séu ánægð- ir,“ sagði Eiður Örn. Hann segir Dekkjahúsið vera þriggja ára gamalt fyrirtæki sem verið sé að byggja upp. Er það til húsa þar sem Toyota var áður, í Auðbrekku 17, Dalbrekkumegin. „Það gengur vel því við erum á góð- um stað í Kópavogi. Fyrirtækið hef- ur í rauninni byggst upp af þátttöku kúnnans sem hefur stutt við bakið á okkur. Kópavogsbúar hafa verið iðnir við að hjálpa okkur að komast á koppinn. Við erum á góðu svæði hérna í Kópavogi, í Dalbrekkunni. Okkur hefur vegnað vel, það væri rangt að kvarta,“ segir Eiður Örn. Eins og er starfa 10 manns hjá Dekkjahúsinu en Eiður Örn segir þá alla jafna vera fjóra til fimm. Hin árstíðabundna vertíð sem nú stendur yfir, þar sem allir vilja sumardekkin undir á sama tíma, kallar á aukinn mannafla til að mæta álaginu. „Þótt við séum ungt fyrirtæki höfum við starfað í grein- inni í yfir 30 ár og reynsla starfs- manna því mikil.“ Dekkjahúsið gefur sig út fyrir að bjóða upp á hágæðadekk á áður óþekktu verði. „Við leggjum metnað okkar í að vera með góða vöru og góða vinnu á góðu verði,“ svarar Eiður Örn því innskoti. Hann segir hugmyndafræði fyrirtækisins hafa gengið upp og nefnir viðtökur dekkja sinna til marks um það. „Staðreyndin er sú að markaðurinn kallar á góða þjónustu og hagstætt vöruverð. Hafi menn það til að bera skapa þeir sér fastan sess.“ Best að koma og máta felgur Við flytjum sjálfir inn mestallt sjálf- ir sem við erum að selja, bæði jeppadekk og fólksbíladekk og einn- ig felgur. Við bjóðum dekk frá Grip- max, Aurora, Nokia og Highfly, sem eru í billegri kantinum.“ Þá tiltekur Eiður Örn felgur sér- staklega og segir ekki hafa verið mikið um það frá hruninu að bjóða nýjar felgur. Vilji bílaáhugamenn hressa upp á útlit bílsins með flott- um felgum sé hægt að máta nýjar felgur við bílinn hjá Dekkjahúsinu. „Þetta er eins og í tískuvöruverslun. Það er hægt að koma hingað með bílinn og fá að máta nýja felgu, rétt eins og gert er í mátunarklefanum,“ segir Eiður Örn. Og bætir því við, að evrópskar 15 til 20 tommu felgur frá framleiðendunum Viper, 4RAT- IS og Forzza njóti mikilla vinsælda. „Svörtu eða dökkgráu felgurnar koma sterkar inn núna í vor og gefa algjörlega nýtt útlit á bílinn, hvort sem er um smábíl eða jeppa að ræða. Þetta er eitthvað sem hefur verið ófáanlegt hér á landi hingað til og er gaman að bjóða,“ segir Eiður. – Eru þetta aðallega ungir strák- ar sem fá sér nýjar felgur á bílinn? „Nei, það hafa allir áhuga á að hressa upp á útlit bílsins, og upp- færa þann gamla, gera hann ögn flottari. Að setja undir hann fal- legar felgur er ódýr og góð leið til þess. Oft þarf ekki mikið meira til að fegra útlit bílsins,“ segir Eiður Örn. Gripmax öflugur framleiðandi Hann kemur aftur að dekkjunum og segir Dekkjahúsið nýlega byrjað að bjóða nýja tegund af dekkjum sem heita Gripmax. „Þau eru okkar nýjasta lína í dekkjum fyrir jeppa og jepplinga. Þau eru framleidd í Kína undir ströngustu gæðakröfum frá birgjum í Evrópu og þykja í senn ódýr og góð. Þau hafa selst vel og gefið góða raun í notkun. Gripmax er öflugur framleiðandi með gæðavöru á góðu verði. Hægt er að velja á milli fimm tegunda á dekkjum með mismunandi gripi, allt eftir því við hvaða aðstæður oftast er ekið. Gripmax hefur gefist gríðarlega vel og er hagstæður valkostur þegar kemur að vali á góðum og öruggum dekkjum á viðráðanlegu verði og er mjög spennandi valkostur fyrir bif- reiðaeigendur. Mér þykir mikið til þeirra koma en ég hef verið í þess- um bransa yfir 35 ár,“ segir Eiður Örn. Fyrirtæki hans býður einnig upp á hágæða dekk sem heita Au- rora. Skynjarar sem láta vita „Nú, við erum líka að flytja inn hjólkoppa sem við leggjum mikla áherslu á að selja á góðu verði. Þá bjóðum við líka upp á skynjara í felgur en allir bílar sem fluttir eru inn frá Evrópu og Ameríku eru með svokallað TPMS-skynjarakerfi sem nemur loftþrýsting í dekkj- unum gegnum ventlana. Sé loftið tekið að minnka í dekkjunum gefur búnaðurinn skilaboð þess efnis upp í mælaborðið. Það blikka viðvör- unarljós sem gefa til kynna að eitt- hvað þurfi að athuga með dekkin. Búnaður af þessu tagi hefur verið nokkuð lengi í amerískum bílum og samkvæmt nýlegum reglum frá Evrópusambandinu þurfa allir bílar í framtíðinni að vera með þessa skynjara. Þetta verður stöðugt al- gengara í nýjum bílum.“ – Hver er ávinningurinn af þessu fyrir bílstjórann? „Það er að færast í aukana að það fylgi ekkert varadekk bílum og til þess að koma ekki að dekki flötu daginn eftir eða lenda í einhverjum vandræðum vegna leka úr dekki þá sendir TPMS-kerfið skilaboð sem kallar á að menn hraði sér á næsta þjónustuverkstæði til að láta laga lekann. Þetta er líka gert til að menn missi ekki loft og keyri á sprungnu dekki og eyðileggi það. Sem getur verið dýrt spaug þegar við gætum til dæmis verið að tala um 20 tomma jeppadekk á hundrað þúsund krónur stykkið. Það getur verið dýrt spaug að eyðileggja það.“ agas@mbl.is Flottar felgur gefa bílnum nýtt útlit Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýjungar „Svörtu eða dökkgráu felgurnar koma sterkar inn núna í vor og gefa algjörlega nýtt útlit á bílinn, hvort sem er um smábíl eða jeppa að ræða. Þetta er eitthvað sem hefur verið ófáanlegt hér á landi hingað til og er gaman að bjóða,“ segir Eiður Ármannsson hjá Dekkjahúsinu í Kópavogi. Felgur sé ódýr leið til að fegra bílinn. Eiður Örn og félagar hjá Dekkjahúsinu taka þátt í sýningunni Allt á hjólum og er það við hæfi því fyrirtækið skaffar jú hjólin – og fallegar felg- ur líka. Gæði, reynsla og gott verð! REYKJAVÍK,Dvergshöfða 2,KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata, HAFNARFJÖRÐUR,Dalshrauni 17,REYKJANESBÆR,Krossmóa 4, SELFOSS,Hrísmýri 7,AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngási 13 Sími: 535 9000www.bilanaust.is Í SÓL OG SUMARYL! Á kagginn það allra besta skilið! VERSLANIR SJÖ MEÐMIKIÐ VÖRUÚRVAL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.