Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.05.2015, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 21.05.2015, Qupperneq 6
21. maí 2015 FIMMTUDAGUR Samningur SAH afurða um sölu á gærum og lambakjöti til Asíu gæti farið út um þúfur vegna verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun. Til stóð að flytja 70.000 gærur út til Asíu þann 26. maí næstkomandi en ekki hefur enn fengist undanþága dýralækna til að votta afurðirnar. Því er ekki hægt að flytja vörurnar út. „Okkur hefur verið hafnað í tvígang um undanþágu frá verkfalli dýralækna vegna útflutnings- ins. Þetta er auðvitað erfitt fyrir okkur sem höfum skuldbundið okkur til að selja afurðir á tilskildum tíma til kaupandans,“ segir Gunnar Tryggvi Hall- dórsson, framkvæmdastjóri SAH afurða á Blönduósi. Fréttablaðið sagði frá því fyrir nokkru að samningar hefðu tekist milli SAH afurða og asísks fyrirtækis um kaup og sölu á 160 tonnum af lambakjöti og 70.000 gærum. Einnig voru uppi hug- myndir um að hægt væri að selja meira af afurðum í haust. Gunnar Tryggvi segir að eftir 26. maí þurfi SAH afurðir að greiða skaðabætur til fyrirtækisins vegna tafa á sendingunni. „Tafabætur reiknast sem hlutfall af heildar- söluverðmæti á viku og því þarf ekki að líða langur tími þar til þetta fer að hafa mikil áhrif á verðið sem við erum að fá fyrir afurðirnar,“ segir hann. Gunnar Tryggvi segir að ef ekki rætist úr verkfalli gæti kaupandinn farið að snúa sér að öðrum mörkuðum. - sa 1. Hvenær hóf Helgi Vilhjálmsson rekstur sælgætisverksmiðjunnar Góu? 2. Hver er forstöðumaður Náttúru- minjasafns Íslands? 3. Hvenær á ótímabundið verkfall hjúkrunarfræðinga að hefjast? SVÖR: 1. 1968. 2. Hilmar J. Malmquist. 3. 27. maí. Fréttablaðið leitar að sögum sem tengjast verkfallsaðgerðum. Láttu okkur endilega vita af skemmtilegum, eða miður skemmtileg- um, sögum með því að senda okkur póst á ritstjorn@frettabladid.is. BANDALAG HÁSKÓLAMANNA (BHM) Ótímabundið verkfall hjá hluta aðildarfélaga | Stendur enn yfir Í DAG ER 45. DAGUR Í VERKFALLI FIMM ÞEIRRA: 1 Félag geislafræðinga Hefur meðal annars áhrif á starfsemi Landspítalans. Ekki er hægt að framkvæma margvíslegar rannsóknir sem krefjast röntgen- myndatöku. 2 Félag lífeindafræðinga Áhrif á framkvæmd rannsókna á Landspítalanum. Lífeindafræðingar starfa á rannsóknastofum sjúkrahúsa og fyrirtækja í erfðagreiningu og lyfjaiðnaði, auk stofnana sem þjóna landbúnaði. 3 Félag íslenskra náttúrufræðinga á Landspítala Koma að frumu- og sam- eindalíffræði, eðlis- og efnafræði, lífeðlis- og lífefnafræði, erfðafræði og líftækni, örveru- og veirufræði, ónæmisfræði, blóðbankafræði, vefjafræði, meinafræði, faralds fræði, tölfræði og kerfislíffræði. 4 Ljósmæðrafélag Íslands á Landspítala | ÞRI., MIÐ. OG FIM. Raskar starfi kvennadeildar, en undanþágur hafa verið veittar, svo sem vegna keisaraskurðaðgerða. 5 Stéttarfélag lögfræðinga hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu Ekki er hægt að ganga frá alls kyns opinberum skiptum, gjaldþrota- eða skiptum dánarbúa, skilnuðum, hjónavígslum og fleiri hlutum. ● Ljósmæðrafélag Íslands á Sjúkrahúsinu á Akureyri Ótímabundið verk- fall hófst 9. apríl. Verkfall á mánudögum og fimmtudögum. Aðgerðir eru því á 43. degi. HAFA VERIÐ Í VERKFALLI FRÁ 20. APRÍL - 32. DAGUR 1 Félag íslenskra náttúrufræðinga á Matvælastofnun Meðal annars áhrif á eftirlit með plöntu heilbrigði, matvælaöryggi og neytendavernd. 2 Stéttarfélag háskólamanna á matvæla- og næringarsviði á Matvæla- stofnun Raskar margvíslegu eftirliti og rannsóknum. 3 Dýralæknafélag Íslands Stórfelld áhrif á matvælaframleiðslu. Uppáskrift dýralækna og eftirlit þarf við slátrun og einnig vegna innflutnings. Í PÍPUNUM: Hjúkrunarfræðingar: Ótímabundið verkfall hefst 27. maí. SGS: Verkfall 28.-29. maí og ótímabundin vinnustöðvun frá 6. júní. VR, LÍV og Flóa- bandalag: 28.-29. maí er verkfall hjá hópbifreiðafyrirtækjum, 30.-31. maí er verkfall á hótelum, gisti- og baðstöðum, 31. maí-1. júní er verkfall í flugafgreiðslu, 2.-3. júní er verkfall hjá skipafélögum og í matvöruverslunum, 4.-5. júní er verk- fall hjá olíufélögum, 6. júní hefst ótímabundið verkfall félaganna. VERKFALLSAÐGERÐIR Í GANGI Á LAND- SPÍTALANUM Róðurinn þyngist dag frá degi á Landspítal- anum eftir því sem verk- föllum vindur fram og stefn- ir væntanlega í ófremdar- ástand verði af verkfalli hjúkrunar- fræðinga 27. maí næstkom- andi. FRÉTTA- BLAÐIÐ/ERNIR REYNSLUSÖGUR ÁHRIF YFIRSTANDANDI AÐGERÐA Samningur SAH afurða í hættu VERKFALL Um 7.200 skjöl bíða þing- lýsingar hjá Sýslumanninum á höf- uðborgarsvæðinu vegna verkfalls félagsmanna BHM sem starfa hjá embættinu. Ekki er til nákvæm sundurliðun á tegund skjala en gera má ráð fyrir að meirihluti skjalanna tengist fasteignaviðskiptum. Engum samningum vegna fasteignakaupa hefur verið þinglýst frá því 1. apríl. „Þetta er auðvitað farið að valda miklum óþægindum, bæði fyrir kaupendur og seljendur,“ segir Ingi- björg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala. Þar sem kaupsamn- ingum og lánaskjölum er ekki þing- lýst meðan á verkfalli stendur eru lán vegna kaupa ekki greidd út af lánastofnunum á meðan. „Við höfum gripið til þess ráðs til að reyna að halda í horfinu, svo það hallist ekki á hjá kaupanda og seljanda, að fólk semji um það að greiðslur sem áttu að hafa bor- ist beri þá 6 prósent vexti sem eru lægstu vextir miðað við vaxta- töflu Seðlabankans á óverðtryggð- um lánum,“ segir Ingibjörg. „Fólk hefur sýnt þessu mikinn skilning og er sátt við þessa lausn miðað við aðstæður, hvorugur aðili getur haft áhrif á framgang mála,“ segir hún. Ingibjörg segir einkennilegt að bara lögfræðingar hjá Sýslumann- inum á höfuðborgarsvæðinu séu í verkfalli en ekki úti á landi og spyr hvers vegna verkfallinu sé ekki dreift milli embætta. „Hér bítur það grimmast. Maður trúir ekki öðru en að þetta fari að leysast. Annars þarf yfirvaldið að fara að grípa til einhverra ráðstaf- ana því þetta er orðið svo mikið tjón. Bæði í þessum geira og víðar,“ segir hún. „Það er ekki í lagi að lama fjár- málageirann með þessum hætti. Það má gera ráð fyrir að um 20 milljarð- ar sem varði kaupsamningsfjárhæð- irnar séu í frystingu. Varlega áætl- að eru 50 til 70 prósent af því lán sem standa föst,“ segir Ingibjörg. Það er ljóst að töluverðan tíma mun taka að vinna upp þau mál sem bíða afgreiðslu eftir að verk- falli lýkur. Það eru þó ekki bara fasteignakaupendur og -seljendur sem lenda í vandræðum. Öll önnur erindi sem snúa að þinglýsingum bíða líka og hefur aðeins eitt mál fengið undanþágu hjá sérstakri undanþágunefnd. „Það mun taka tíma að vinna þetta niður,“ segir Þuríður Árnadóttir, sviðsstjóri og staðgengill sýslumannsins á höfuð- borgarsvæðinu. Mál eru móttekin þar sem starfsfólk í afgreiðslu og á skrifstofu er ekki í verkfalli en þau eru ekki afgreidd. „Það er allt stopp. Eina starfsemin sem er að mestu óbreytt er afgreiðsla vegabréfa og ökuskírteina,“ segir Þuríður. viktoria@frettabladid.is 7.200 skjöl bíða þing- lýsingar sýslumanns Allt er stopp á fasteignamarkaðnum þar sem kaupsamningum hefur ekki verið þinglýst frá 1. apríl. Formaður Félags fasteignasala segir verkfallið vera farið að valda miklum óþægindum fyrir fjölda fólks sem fær ekki lán afgreidd þar sem skjöl eru ekki þinglýst. BLAÐAÐ Í BUNKANUM Þuríður Árnadóttir, staðgengill sýslumannsins á höfuðborg- arsvæðinu, kíkir á hluta skjala sem bíða þinglýsingar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM KJARAMÁL „Það stenst ekki skoð- un að tilboð þeirra muni gagnast okkar félagsmönnum,“ sagði Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, um tilboð Samtaka atvinnu- lífsins (SA) í yfirstandandi kjara- viðræðum. VR, Flóabandalagið og LÍV sendu frá sér tilkynningu í gær þar sem fullyrt er að tilboð SA um 23,5 prósenta hækkun dag- vinnulauna muni ekki gagnast launafólki. „Í okkar félögum er fólk í mis- munandi stöðu og sumir munu hreinlega bera skarðan hlut frá borði,“ segir Ólafía. Í gær sendu SA frá sér tilkynn- ingu um að launþegasamtökin þrenn hafi ekki komið til móts við SA með neinum gagntilboðum. Ólafía segir þetta ekki rétt held- ur hafi samtökin lagt til breyt- ingar á vinnutímaákvæðum en SA hafi hafnað því tilboði. „Við viljum vinna inn í þetta norræna vinnufyrirkomulag með breyting- um á vinnutímaákvæðum. Til að skapa fjölskylduvænan atvinnu- markað. En það gerist ekki með þeim hætti sem þeir hafa lagt fram,“ segir hún. „Ég vonast til að fólk fari að setjast niður til að semja til að stefna fólki frá því að fara inn í verkföll. En þá þarf fólk líka að byrja að vera sanngjarnt,“ bætir Ólafía við. Þorsteini Víglundssyni, fram- kvæmdastjóra Samtaka atvinnu- lífsins, þykir það miður að sam- tök hans séu sökuð um blekkingar. „Þessar breytingar kæmu meginþorranum vel. Okkar til- boð er upplegg að mikilli breyt- ingu á vinnumarkaði. Þetta kemur dagvinnufólki langbest og við erum með þessu að færa okkur nær kerfi sem þekkist í okkar nágrannalöndum,“ segir hann. Um leið sé ljóst að skoða þurfi sértilvik og í tilboðinu séu ákvæði um að enginn eigi að tapa á breyt- ingum sem lagðar séu til. Þorsteinn segir að sér þyki ásakanir af hálfu verkalýðsfélag- anna ótímabærar þar sem ekki liggi fyrir útfærslur fyrir þá hópa sem hagnist minna á tilboði SA. - srs SA segja ásakanir launþegahreyfingarinnar ekki eiga sér stoð: Gagnrýna tilboð atvinnurekenda ÞORSTEINN VÍGLUNDSSON ÓLAFÍA B. RAFNSDÓTTIR Þetta er auðvitað farið að valda miklum óþægindum, bæði fyrir kaupendur og seljendur. Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala | FRÉTTIR | VERKALÝÐSBARÁTTAN 6 VEISTU SVARIÐ FALLEGT FYRIR HEIMILIÐ NÝJAR HOME VÖRUR Hengirúm 15.995 kr. Blómahengi 3.495 kr. Motta 2.795 kr. Skál 3.495 kr. Trébretti 1.795 kr. Eldhúsrúllustandur 4.495 kr. Pálmaskraut 4.495 kr. Kringlan | 588 2300 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 2 -3 D C C 1 7 6 2 -3 C 9 0 1 7 6 2 -3 B 5 4 1 7 6 2 -3 A 1 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.