Fréttablaðið - 21.05.2015, Qupperneq 14
21. maí 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 14
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
Akureyri • Sími 461 1099
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
69
0
60
Frá kr.
65.900
Stökktu á
Krít,
Salou eða
Tenerife
Salou frá kr. 65.900
Krít frá kr. 109.900
Tenerife frá kr. 89.900
Netverð á mann frá kr. 65.900 m.v.2-4 í íbúð/herbergi.
Stökktu 22/29. maí og 5. júní í 7 nætur.
Einnig í boði stökktu m/hálft fæði innifalið.
Netverð á mann frá kr. 109.900 m.v.2-3 í íbúð/herbergi.
Stökktu 1. júní í 10 nætur.
Netverð á mann frá kr. 89.900 m.v.2-4 í íbúð/herbergi.
Stökktu 6. júní í 14 nætur.
Einnig í boði stökktu m/allt innifalið.
m/morgunmat innifalinn!
m/morgunmat innifalinn!
Að segja að óvissa ríki um þing-
lok er eins og að standa í miðju
kríuvarpi með ótal sár á höfðinu
og fullyrða að krían sé á engan
hátt árásargjarn fugl þegar
kemur að því að verja varpið
sitt. Það segir sitt um ástandið
að samkvæmt dagskrá áttu þing-
störf í gær að hefjast klukkan
10 á umræðum um störf þings-
ins og í kjölfarið að koma sérstök
umræða um húsnæðismál. Fyrsti
dagskrárliðurinn hófst klukkan
15.08.
Og talandi um áætlun, sam-
kvæmt starfsáætlun á að fresta
þingi eftir rúma viku, föstudag-
inn 29. maí. Það þarf töluverða
glámskyggni til að sjá að ekki
mun takast að afgreiða öll mál
sem fyrir þinginu liggja fyrir
þann tíma.
Ríkisstjórnin hefur lagt fram
118 frumvörp á yfirstandandi
þingi. Af þeim hafa 42 verið sam-
þykkt sem lög, en 72 eru enn
óafgreidd á ýmsum stigum.
Sprengja í þingið
Hafi menn haft vonir um að það
tækist að ljúka þingstörfum í
friði og spekt urðu þær að engu
þegar breytingartilllaga atvinnu-
veganefndar varðandi Rammann
leit dagsins ljós. Með tillögunni
tókst að sameina stjórnarandstöð-
una þannig að nú vinnur hún sem
einn maður.
„Við fáum eina umræðu til
að ræða þessar miklu breyting-
ar á Rammanum. Á sama tíma
eru stjórnarflokkarnir að boða
breytingar á málinu. Þetta eru
vond vinnubrögð ofan á enn verri
vinnubrögð,“ segir Katrín Júlíus-
dóttir, þingmaður Samfylkingar-
innar.
„Við munum mótmæla þess-
um vinnubrögðum og sameinuð
berjumst við í stjórnarandstöð-
unni gegn þessum tillögum eins
lengi og með þarf. Þó vonum við
að menn sjái að sér og dragi þess-
ar breytingatillögur til baka og
haldi sig við upphaflega tillögu
ráðherra og láti verkefnisstjórn
rammaáætlunar um að sinna
sínum lögbundna faglega ferli.“
Jón Gunnarsson, formaður
atvinnuveganefndar, segir hins
vegar að málið snúist ekki um
form heldur efni.
„Það liggur alveg fyrir að það
er grundvallarágreiningur um
hvert skal stefna í nýtingu á
orkuauðlindum okkar. Það er fólk
hér á Alþingi sem hefur engan
áhuga á að halda áfram virkjana-
framkvæmdum, á meðan aðrir
telja það nauðsynlegan þátt til að
efla íslenskt samfélag og skapa
aukin tækifæri fyrir ungt fólk að
það verði haldið áfram á þess-
um vettvangi. Til þess er horft
öfundaraugum til okkar um allan
heim, þeirra tækifæra sem fyrir
okkur liggja.“
Og spurður um hvort það komi
til greina að gefa eftir til að liðka
fyrir þinglokum, svarar hann:
„Það hefur nú þegar verið dreg-
inn til baka umdeildasti virkj-
anakosturinn í þessu af okkar
hálfu sem er Hagavatnsvirkjun.
Það virðist ekki hafa nein áhrif á
þeirra málflutning og virðist ekki
skipta þau neinu máli. Þannig að
ég veit ekkert hversu langt þarf
að ganga til að semja við þau um
þessi mál. En á þessari stundu,
þá sýnist mér ekkert annað vera
í spilunum hér annað en að við
ljúkum málum með þessum hætti
og meirihluti þingsins fái að taka
sína ákvörðun, eins og gerðist hér
á síðasta kjörtímabili þegar þau
voru með algjörlega sambærilega
tillögu inni í þinginu.“
Við fáum
eina umræðu
til að ræða
þessar miklu
breytingar á
Rammanum.
Á sama tíma
eru stjórnarflokkarnir að
boða breytingar á málinu.
Katrín Júlíusdóttir,
þingmaður Samfylkingar.
Á þessari
stundu, þá
sýnist mér
ekkert annað
vera í spil-
unum hér
annað en að
við ljúkum málum með
þessum hætti.
Jón Gunnarsson,
formaður atvinnuveganefndar.
ÞINGSJÁ
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
GJALLARHORNIÐ
STJÓRNARFRUMVÖRP
Á YFIRSTANDANDI ÞINGI
42 SAMÞYKKT 76 ÓAFGREIDD
4 BÍÐA
FYRSTU
UMRÆÐU
46 Í NEFND 22 BÍÐA
ANNARRAR
UMRÆÐU
4 BÍÐA
ÞRIÐJU
UMRÆÐU
Vigdís Hauksdóttir
í umræðum
um atkvæðagreiðslu
En það er afar ein-
kennilegt að upplifa að hér
er rammaáætlun til umræðu
undir hverjum einasta dag-
skrárlið, hvort sem það er í
fundarstjórn forseta, atkvæða-
greiðslu, störfum þingsins eða
fyrirspurnum til ráðherra.
Bjarni Benediktsson
í umræðum
um atkvæðagreiðslu
Getur þingið leitt fram
vilja meirihlutans í málinu?
Það er sú spurning sem ég
held að þjóðin sé að spyrja
sig. Er mögulegt fyrir þingið
að afgreiða eitt mál eftir
vikuumræðu eða svo eða
getur þingið það ekki?
Steingrímur J.
Sigfússon
í umræðum um fundarstjórn
forseta.
Forseti á dögunum
úrskurð upp kvað,
um efni af flóknara tagi.
Ef horft er hjá lögum má
hugsa sér að
það hæpna sé kannski í lagi.
Stál í stál á Alþingi
Engir samningar hafa náðst um þinglok. Stemningin á Alþingi er við frostmark.
Þingmenn snupra hver annan úr pontu og með frammíköllum. Ramminn tappar
allt starf og enginn samningsvilji virðist vera um að gefa eftir í því máli.
ræður voru haldnar
á þriðjudaginn um
fundarstjórn forseta
92
Allt í lás
Á meðan ekki semst um Ramm-
ann virðist því ljóst að allt er
botnfrosið. Fjöldi stórra mála
bíður, Bankasýslan, makríllinn,
samgöngu áætlun, ívilnanir til
nýfjárfestinga, lyfjalög, meðferð
sakamála og lögreglulög, almanna-
tryggingar, fjárfestingasamningur
við Thorsil um kísilverksmiðju,
opinber fjármál, staðgöngumæðr-
un, tekjustofnar sveitarfélaga,
Fiskistofa og svo mætti lengi telja,
enda málin mörg.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
1
-3
D
0
C
1
7
6
1
-3
B
D
0
1
7
6
1
-3
A
9
4
1
7
6
1
-3
9
5
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K