Fréttablaðið - 21.05.2015, Side 32

Fréttablaðið - 21.05.2015, Side 32
FÓLK| TÍSKA Birta Blín Ísrúnardóttir hefur alltaf haft mikinn áhuga á tísku og öllu sem henni tengist. Hún klárar nám í klæðskurði í Tækni- skólanum nú í vor en útskrifaðist úr kjólasaumi frá sama skóla í fyrra. „Mér finnst gaman að fylgjast með hvernig fólk klæðir sig og spá í nýja strauma og stefnur sem eru í gangi. Mér hefur alltaf fundist búningahönnun spenn- andi en á erfitt með að velja milli hennar og fatahönnunar sem ég stefni á að fara í háskólanám í. Mér fannst klæðskurðar- og kjólasaumsnámið vera góður grunnur fyrir það. Ég er með þeim yngstu í náminu, byrjaði þegar ég var fimmtán ára og það var svolítið skrítið að koma inn í svona fullorðinn hóp beint úr grunnskóla. Það gekk mjög vel en ég hef þurft að leggja mig mikið fram. Ég tók bæði stúdentinn og námið í kjólasaumi í einu og það var mjög krefjandi og ekki hægt að vera í neinu öðru með því.“ DÖKKUR STÍLL Stíll Birtu Blínar er frekar dramatískur að eigin sögn. „Ég er yfirleitt dökk- klædd. Hversdags er ég oftast í ein- hverju víðu, kjólum eða síðum peys- um og hermannaklossum við. Þegar ég fer út á lífið er ég í svipuðum stíl en fínni, til dæmis í einhverju svörtu gegnsæju. Mér finnst Audrey Hepburn alltaf vera glæsileg og Kurt Cobain finnst mér töff. Hans stíll höfðar mikið til mín. Ég horfi til þess hvernig hann klæddi sig og geri það persónulegt og kvenlegra. Uppáhaldshönnuðurinn minn er Vivienne Westwood. Hún er svo töff og stíllinn hennar er flottur. Auk þess á hún sér merkilega sögu. Annars sæki ég innblástur fyrir það sem ég hanna mjög mikið í tónlist og umhverfið og daglegt líf. Það er svo margt sem getur verið spennandi, alls kyns litlir hlutir,“ segir hún og brosir. KJÓLFÖT OG SMÓKING Birta Blín var í starfsnámi hjá hönnuð- inum Sruli Recht í sjö mánuði. Henni fannst starfið spennandi og þar nældi hún sér í helling af reynslu. „Drauma- starfið er að vera fatahönnuður og hanna mínar eigin línur. Í dag gefst lít- ill tími til að sauma annað en það sem námið krefst af mér. Ef ég hefði tíma myndi ég sauma öll fötin mín sjálf. Ég er nýbúin að skila af mér kjólfötum og smóking og nú er ég að undirbúa mig undir sveinsprófið en í því sauma ég smókingjakka.“ Þegar Birta Blín hefur lokið náminu ætlar hún að taka sér frí frá skóla í eitt ár. „Ég ætla að ferðast og reyna að fá einhverja vinnu úti sem tengist því sem ég hef lært. Ég er byrjuð að þreifa aðeins fyrir mér í því en hef ekki feng- ið neitt staðfest. Eftir ársfríið langar mig að fara í háskóla úti í fatahönnun. Mig hefur alltaf langað til að læra í London en er líka að spá í Ástralíu núna,“ segir Birta Blín glöð í bragði. DRAMATÍSK Birta Blín lýsir stílnum sínum sem dökkleitum og drungalegum. MYND/GVA HEILLUÐ AF TÍSKU FATAHÖNNUN Birta Blín sækir innblástur fyrir hönnun sína í tónlist og um- hverfið. Hún útskrifast úr klæðskurði á morgun og stefnir á frekara nám. Leikkonan Amanda Holden er einn dómara í hinum geysivinsælu þáttum, Britain’s Got Talent, sem sýnd- ir eru á Stöð 2. Leikkonan hefur ákveðið að hætta sem dómari eftir næstu þáttaröð. Amanda hefur verið dómari þáttanna frá upphafi en þeir hófust árið 2007. Aðrir dóm- arar eru Simon Cowell, sem jafnframt er hugmyndasmiður keppninnar, Alesha Dixon, söngkona og dansari, og David Walliams sem þekktastur er úr þáttunum Little Britain. Amanda, sem er 44 ára, þykir sanngjarn dómari og hefur komið mörgum óþekktum Bretum upp á stjörnuhimininn, þar á meðal Susan Boyle sem flestir þekkja. Hún segist ætla að taka sér gott frí þegar dóm- arastörfum lýkur. Amanda er þekkt leik- og söngkona í Bretlandi og hefur leikið í fjölmörgum sjónvarps- þáttum og bíómyndum. HÆTTIR Í BRITAIN’S GOT TALENT Í EDINBORG Amanda þykir einstaklega glæsileg. Tískuáhugafólk tekur vel eftir hverju hún klæðist. Hér mætir hún til leiks í áheyrnarprufu í Edinborg í Skotlandi. Í MANCHESTER Dómararnir ferðast um Bretland í leit að nýrri stórstjörnu og vekja hvarvetna mikla athygli. NÝBÝLAVEGI 20 SÍMI 554-5022 8 rétta hlaðborð í hádeginu TILBOÐ KR. 1.590.- OPIÐ KL. 11:00-14:00 Hlaðborðið er alla virka daga. ekki um helgar. kinahofid.is w w w .s u p er b ee ts .i s - vi te x. is Betra blóðflæði betri heilsa með SuperBeets rauðrófu kristal Superbeets Nitric Oxide allt að 5 sinnum öflugra 1. dós superbeets jafngildir 30 flöskum af 500 ml rauðrófusafa Nitric Oxide Nóbelsverðlaun 1998 Sameind ársins 1992 Uppgötvun á Nitric Oxide var upphafið á framleiðslu rislyfja Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum Upplýsingar í síma 896 6949 og www.vitex.is Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum NÝTT w w w .z en b ev .i s - U m b o ð : vi te x eh f Betri og dýpri svefn Engin eftirköst eða ávanabinding Melatónin Upplýsingar í síma 896 6949 og www.vitex.is úr graskersfræjum ZenBev - náttúrulegt Triptófan Vísindaleg sönnun á virkni sjá vitex.is Tvær bragðtegundir sítrónu og súkkulaði Melatónín er talið minnka líkur á blöðruhálskirtilskrabbameini sjá vitex.is Breyting nítrats úr fæðu í Nitric Oxide byrjar í munni, þess vegna er SuperBeets tekið inn í vökvaformi, en ekki töfluformi. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 0 -D F 3 C 1 7 6 0 -D E 0 0 1 7 6 0 -D C C 4 1 7 6 0 -D B 8 8 2 8 0 X 4 0 0 2 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.