Fréttablaðið - 21.05.2015, Qupperneq 42
21. maí 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
Þetta er einstakt verk. Algert lykilverk í heimi óperunnar sem hrein-asta unun er að takast á við og ég vona að þetta verði mikil upplifun
fyrir íslenska áhorfendur annað
kvöld,“ segir ástralski tenórinn
Stuart Skelt on sem undirbýr tón-
leikauppfærslu með Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og Íslensku óperunni
á meistaraverki Benjamins Britten:
Peter Grimes.
Peter Grimes er einstakt verk
sem Britten samdi aðeins 32 ára að
aldri. Óperan segir sögu skipstjóra
sem verður fyrir þeirri ógæfu að
tveir ungir piltar sem vinna fyrir
hann láta lífið. Tónlistin er einstak-
lega falleg og spilar á breiðan til-
finningaskala, frá ljúfum stillum
til ólgandi fárveðurs.
Flutningur Stuarts Skelton á
aðalpersónu verksins hefur hlotið
fádæma lof víða um heim og átti
stóran þátt í því að Skelton var val-
inn söngvari ársins á International
Opera Awards á síðasta ári.
Upphaf ferilsins
Þrátt fyrir að vera ekki alinn upp
við óperu eða sígilda tónlist segir
Skelton að tónlistin hafi snemma
togað í hann. „Þegar ég var svona
sjö, átta ára gamall kom ég heim
úr skólanum og tjáði foreldrum
mínum að ég vildi fara að læra á
píanó. Þau urðu alveg steinhissa
á þessu tiltæki en voru samt til í
að gera sitt til þess að koma mér
af stað. Hringdu í gamla frænku,
fengu lánað hjá henni gamalt píanó
og sendu mig í tíma. Að auki var ég í
skóla sem tengdist kirkjunni og þar
var kór sem ég söng með alveg út
menntaskólaárin og þannig þróaðist
þetta eitt af öðru allt þar til ég sagði
mömmu og pabba að ég vildi fara til
Ameríku að læra söng. Aftur horfðu
þau bara á mig og spurðu: „Ertu
viss? Hvað þarftu að gera til þess
að þetta gangi upp? Nú, jæja, gott
og vel, en þú verður þá að leggja þig
allan í þetta.“
Þetta er eiginlega lýsandi fyrir
feril minn. Ég hef verið heppinn og
hitt á réttu tækifærin, réttu kenn-
arana og hlutverkin og hef feng-
ið með hæfilega blöndu af pressu
og umhyggju. Það hefur orðið mér
mikil gæfa.“
Skelton og Grimes
Peter Grimes kom inn í líf Skelt-
ons þegar hann var á samningi
við Óperuhúsið í Frankfurt. „Það
fylgdi samningnum að ég ætti að
syngja Peter Grimes. Þetta var ein-
stök reynsla. Ég náði strax einstöku
sambandi við verkið. Ég bara skynj-
aði að þetta er ópera sem ég vil bera
með mér alla ævi. Alltaf.
Það sem gerir Peter Grimes svo
einstaka óperu er að Britten skrif-
aði hana fyrir ákveðinn söngvara;
Peter Pears, lífsförunaut sinn og
samverkamann í tónlistinni. Þannig
að Britten var að skrifa fyrir alveg
ákveðna rödd og við vitum hvað þeir
vildu fá út úr þessu því þeir gerðu
saman upptöku af Grimes.
Það hafa stórkostlegir söngvarar
tekist á við hlutverkið en með ólík-
um hætti – komið að því úr ólíkum
áttum. Allar þær leiðir eru góðar og
gildar – bara ólíkar. En þetta hlut-
verk lifir orðið sínu sjálfstæða lífi
og hver og einn þarf að finna sína
leið og segja söguna á sinn hátt.
Trúa á þetta sjálfur til þess að
áhorfendur komi með í þetta ótrú-
lega ferðalag.
Eyjafjallajökull
Skelton segir að það sé óþarfi að ótt-
ast Grimes eins og margir söngvar-
ar geri. „Ef ég get sungið þetta, þá
geta allir gert það.
Það eru kaflar sem ná uppi í ell-
efu en svo koma þessir kyrru kaflar
þar sem tíminn stendur í stað en allt
ólgar undir niðri. Þá er að halda lok-
inu á ógninni sem lúrir þarna undir
þar til Grimes springur. Þetta hlut-
verk og þessi ópera öll er dálítið
eins og Eyjafjallajökull. Grimes er
eins og eldfjall áður en það gýs. Það
er alltaf alveg að rofna, alveg við
það að springa og allir eru alltaf að
reyna að stoppa þetta flæði. En það
er ekki hægt að stoppa náttúruafl
og því gerist hið óhjákvæmilega.
Grimes byrjar að endurtaka nafn
sitt í sífellu og fyrir mér er eins og
hann sé að hreinsa sig af sjálfum
sér. Moka út úr skrokknum eins og
eldfjall öllu því sem getur kallast
Peter Grimes þar til skelin ein er
eftir og þá er hann tilbúinn.
Grimes er náttúruafl. Afl sem
snýr aftur til þess sem skapaði hann
og mótaði. Aftur til stormsins. Það
er ekki tragískt fyrir mér heldur
náttúrulegt og fallegt.
Þannig að þessi ópera er eins og
skrifuð fyrir þetta landslag – þessa
náttúru og ykkar lífshætti. Þetta er
frábært verk til þess að flytja hér
og ég er orðinn gríðarlega spenntur.
Þetta er eins og skrifað fyrir Ísland
Óperan Peter Grimes eft ir Benjamin Britten verður fl utt í Hörpu annað kvöld. Ástralinn Stuart Skelton, einn virtasti og eft irsóttasti
óperusöngvari samtímans, fer með aðalhlutverkið og hann segir þessa einstaklega mögnuðu óperu fullkomna fyrir Ísland.
STÓRSTJARNA Stuart Skelton á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Þetta hlutverk
og þessi ópera öll
er dálítið eins og
Eyjafjallajökull.
★★★★★
Blæði
Íslenski dansflokkurinn
á Listahátíð Reykjavíkur
DANSVERKIN
LES MÉDUSÉES EFTIR DAMIEN JALET
TÓNLIST WINTER FAMILY & GABRIELE
MIRACLE
BÚNINGAR BERNHARD WILLHELM
SIN OG THE EVOCATION ÚR BABEL
(WORDS) EFTIR DAMIEN JALET & SIDI
LARBI CHERKAOUI
TÓNLIST PATRIZIA BOVI, MAHABUB
KHAN, SATTAR KHAN, VLADIMIR JOHAN-
SON, SOFYANN BEN, YOUSSEF & KHALED
BARGHOUTI
BÚNINGAR JÚLÍANNA STEINGRÍMSDÓTTIR
BLACK MARROW EFTIR ERNU
ÓMARSDÓTTUR & DAMIEN JALET
TÓNLIST BEN FROST
ÖNNUR TÓNLIST DANZEL
BÚNINGAR JÚLÍANNA STEINGRÍMSDÓTTIR
SVIÐSMYND ALEXANDRA MEIN, ERNA
ÓMARSDÓTTIR, DAMIEN JALET, JÚLÍANNA
STEINGRÍMSDÓTTIR & REBEKKA MORAN
LJÓS BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
DANSARAR CAMERON CORBETT,
EINAR NIKKERUD, ELÍN SIGNÝ WEYWADT
RAGNARS DÓTTIR, HALLA ÞÓRÐAR DÓTTIR,
HJÖRDÍS LILJA ÖRNÓLFSDÓTTIR, INGA
MAREN RÚNARSDÓTTIR, SERGIO PARÉS
AGEA & ÞYRI HULD ÁRNADÓTTIR
Sýning Íslenska dansflokksins
Blæði var ein af fáum danssýning-
um sem undirrituð hefur séð að und-
anförnu sem skildi eftir sterka löng-
un til að halda í upplifunina, sem
sýningin vakti, sem lengst. Ólíkt því
sem venjulega gerist gekk ég þögul
út af sýningunni án nokkurrar löng-
unar til hvers konar greiningar eða
vitrænnar umfjöllunar um það sem
ég hafði upplifað. Því það að sitja
agndofa í sætinu límd yfir því sem
fyrir augum ber, spennt yfir að sjá
hvað kemur næst er sjaldgæf upp-
lifun.
Verkin á sýningunni leiddu áhorf-
andann inn á nýjar og nýjar lendur
þar sem hljóð, hreyfingar, ljós og
efnisleg umgjörð mættust í kraft-
mikilli einingu. Á því ferðalagi var
mikilvægt að mæta hverjum stað
með opnu hjarta og hrífast með
þeirri orku sem leyst var úr læðingi
af auðmýkt og innlifun.
Það var ekki síst endurtekning og
sterk hrynjandi sem léku stórt hlut-
verk í öllum verkunum og héldu
athygli áhorfandans nánast óskiptri.
Það komu þó þeir staðir að athyglin
byrjaði að leysast upp og umhverf-
ið þrengdi sér inn í vitundina en
aldrei nema í augnablik og svo tók
sú veröld sem var í gangi á sviðinu
aftur við stjórnartaumunum og hélt
áhorfandanum föngnum svo mjög
að á tímabilum óttaðist maður að
maður gleymdi að anda.
Endurtekningin er mjög sterk
sem miðlunarform en það er hár-
fín lína hversu lengi má vinna með
það sama, áður en það hefur gefið
allt sem það hefur að gefa auk þess
sem áhorfendur hafa misjafnt þol
gagnvart endurtekningunni. Þögn-
in/kyrrstaðan sem Erna og Dami-
an nýttu í Black Marrow eru líka
áhrifamiklir þættir í listsköpun en
eins og endurtekningin viðkvæmir
í notkun. En stundum er bara þess
virði að vera þolinmóður og leyfa
listinni að lifa þótt maður viti ekki
hvert hún leiðir manna.
Gagnrýni sem þessi snýst venju-
lega um að velta upp ýmsum spurn-
ingum um efni, framsetningu,
samhengi, sögn og … en hér eru
spurningar sem þessar merkingar-
lausar því fyrir gagnrýnandann var
sýningin svo djúp listræn upplifun
að annað skiptir ekki máli.
Það er samt ekki hægt að skila af
sér þessum texta án þess að fram
komi að frammistaða dansaranna
var frábær. Verkin kölluðu öll á
gífur lega líkamlega getu, nákvæmni
og kraft og leysti hópurinn hverja
þraut af fagmennsku. Það var gott
að sjá Þyri Huld aftur í flokknum
og Einar var frábær. Í dúettinum
Sin sýndu þau nautnafulla og kraft-
mikla tjáningu í áhrifaríkri fléttu
hreyfinga. Frammistaða Elínar
Signýjar lofar góðu um framtíð-
ina og Hjördís Lilja, Halla og Inga
Maren sýna meiri og meiri þroska í
hverri nýrri sýningu, nýr karldans-
ari flokksins, Sergio Parés Agea,
vekur forvitni og Cameron klikkar
ekki frekar en fyrri daginn.
Sviðsmyndin í Black Marrow var
líka stórbrotin í einfaldleik sínum.
Svart plastið undirstrikaði hug-
myndina um olíu á sama tíma og það
minnti okkur á ruslið og sóunina
sem fylgir mannkyninu. Tónlist
Bens Frost við verkið var ótrúlega
áhrifamikil sem og tónlistin í öllum
hinum verkunum. Búningarnir í Les
Méduséés gáfu verkinu sterkan svip
og lýsingin á sýningunni í heild var
eftirtektarverð. Sesselja G. Magnúsdóttir
NIÐURSTAÐA Sumt á ekki að ræða
heldur bara upplifa.
Að lifa og njóta
MENNING
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
3
-2
A
C
C
1
7
6
3
-2
9
9
0
1
7
6
3
-2
8
5
4
1
7
6
3
-2
7
1
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K