Fréttablaðið - 21.05.2015, Side 54

Fréttablaðið - 21.05.2015, Side 54
21. maí 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46 BAKÞANKAR Frosta Logasonar Múrarinn Einar Guðmundsson hélt í mótorhjólaferð til Nepals ásamt tveimur félögum sínum fyrir rúmum tveimur árum. Á vegi þeirra varð barnaheim- ili í Katmandú sem breytti lífi þeirra og ferðin, sem átti að vera ævintýraferð á mótorhjólum, tók skyndilega aðra stefnu og hafði öðruvísi áhrif á líf hópsins en upp- haflega stóð til. Eftir að hafa heimsótt barna- heimilið og séð aðstæður þar ákvað hópur af Íslendingum að taka við rekstri heimilisins, en fá og léleg rúm voru á barnaheimilinu og kennsla af skornum skammti. „Húsnæðið var mjög lélegt, ekk- ert rennandi vatn og ekkert raf- magn. Það sem við gerðum fyrst var að leigja hús fyrir börnin, keyptum gaseldavél og fleiri rúm,“ segir Einar. Eftir komuna heim til Íslands ákvað hópurinn að láta til sín taka, stofnaði félagasamtökin Iceland- Nepal og tók við rekstri barna- heimilisins þar sem 13 munaðar- laus börn búa auk starfsmanna. Sem stendur eru 33 íslenskar stuðningsfjölskyldur sem leggja 5.000 krónur á mánuði til barna- heimilisins en allur peningur fer milliliðalaust til heimilis- ins og vinnur félagið í samstarfi við félagsmálayfirvöld í Nepal. Stefnan er sett á að ná 41 stuðn- ingsfjölskyldu, með þeim fjölda er rekstrargrundvöllur heimilis- ins tryggður og Einar segir stuðn- ingsfjölskyldurnar svo sannar- lega hafa áhrif til hins betra á líf barnanna: „Stuðningsfjölskyld- urnar hafa gjörbreytt lífi barnanna. Nú er fæðan próteinrík, börnin eru öll í skóla. Vatnið þarna er ódrekkandi þannig að það er búið að kaupa hreinsibúnað fyrir það. Einnig fatnað, mat og læknis- þjónustu, það hafa komið upp veik- indi og faraldrar, til dæmis kúa- bóla um daginn sem nú er hægt að meðhöndla.“ Í kjölfar mannskæðra jarð- skjálfta í Nepal fyrir stuttu sem ollu gríðarmiklu mannfalli og eyðileggingu urðu einnig skemmd- ir á barnaheimilinu, líkt og svo víða annars staðar. „Það ríkti mikil neyð og skortur fyrir þessa jarðskjálfta. Á góðum degi í Katmandú er rafmagn í fjóra tíma á dag og lítið af renn- andi vatni,“ segir Einar og heldur áfram: „Húsið sem barnaheimilið er í núna varð fyrir skemmdum í jarðskjálftanum og öll aðföng hafa hækkað í verði. Þau eru búin að sofa utandyra í fleiri, fleiri nætur.“ Í ljósi þessa mun útvarpsstöð- in Radio Iceland efna til tón- leikaveislu í samstarfi við félaga- samtökin til þess að styrkja barnaheimilið. Fram koma meðal annars hljómsveitirnar Esja, Dikta og Q4U auk þess sem Smutty Smith mun þeyta skífum og stjórna upp- boði þar sem hann selur frægustu ljósmyndirnar úr ljósmyndasafni sínu af sumu þekktasta tónlistar- fólki heims. Miðar eru fáanlegir inn á Midi. is og er aðgangseyrir frjáls fram- lög en tónleikaveislan fer fram á Gauknum á laugardag og hefst klukkan 17.00 og stendur til klukk- an 01.00. Einnig er hægt að afla sér frek- ari upplýsinga á síðunni Facebook. com/Iceland-Nepal þar sem allar upplýsingar eru birtar. gydaloa@frettabladid.is Reka barnaheimili í Nepal í kjölfar mótorhjólaferðar Félagasamtökin Ísland-Nepal og útvarpsstöðin Radio Iceland efna til tónleika til styrktar barnaheimili í Kat- mandú í Nepal. Samtökin voru stofnuð í kjölfar mótorhjólaferðar sem breytti lífi þeirra sem í hana fóru. HVETUR FÓLK TIL AÐ MÆTA Einar er einn stofnenda Íslands-Nepals og hvetur hann alla sem geta til þess að mæta á tónleikana. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Húsnæðið var mjög lélegt, ekkert rennandi vatn og ekkert rafmagn. Það sem við gerðum fyrst var að leigja hús fyrir börnin, keyptum gaseldavél og fleiri rúm. Myndbandið af geðstirðu leður-mótorhjólalöggunni sem birtist á Facebook í vikunni vakti hjá mér margs konar hugrenningatengsl. Margir gagnrýndu framferðið enda þykja umrædd vinnubrögð ekki vera lögreglunni til sóma. ATBURÐURINN minnti mig á atvik sem ég lenti í skömmu eftir að ég fékk bílpróf og þeystist um götur Reykjavíkur, óslíp- aður og reynslulaus. Ég var að keyra niður Ártúnsbrekkuna þegar ég sá skrítinn lögreglubíl aka samhliða mér og ökumaður hans gaf mér merki um að ég ætti að nema staðar. Um var að ræða VW Caddy lögreglubíl með einungis tveimur sætum og svona hundahúsi að aftan. Lögregluhundur í umferðareftirliti. ÞEGAR ég hafði lagt bílnum kom lögregluþjónninn að mér í miklu upp- námi. Ég tók eftir að yfir bláu lög- regluskyrtunni klæddist hann flís- peysu og ég sá ekki betur en hún væri merkt raftækjaversluninni Elko. Þegar ég skrúfaði niður rúðuna frussaði maðurinn yfir mig spurn- ingunni hvort ég vissi á hvaða hraða ég æki þarna í brekkunni. ÞVÍ næst öskraði hann að þetta væri örugglega kolólöglegur hraði þar sem hann hefði sjálfur verið á hámarks- hraða en samt ekki náð að halda í við mig. Hann tók niður nafn, kennitölu og símanúmer og sagðist ætla að fara með sinn bíl niður á Reykjavíkur- flugvöll þar sem hann yrði mældur í sérstökum flugmæli. Þannig kæmist hann að því hversu hratt ég hefði ekið og mér yrði svo send viðeigandi sekt eftir því. Allt mjög eðlilegt eða þannig. ÉG heyrði aldrei neitt frá lögreglu- embættinu og ég fékk enga sekt vegna málsins. Ég áttaði mig á því að þarna hefði sennilega verið um að ræða samviskusaman löggæslu- mann á frívakt sem hefði tekið málin í sínar hendur þegar honum misbauð framferði ungs ökumanns á götum borgarinnar. ÞAÐ var allt í senn traustvekjandi og óhugnanleg tilhugsun. Þakklátastur var ég þó fyrir að hann skyldi hrein- lega ekki æla yfir mig eins og virðist vera orðin lenska hjá kjörnum full- trúum á Alþingi í dag. Sennilega hefði enginn verið bættari eftir það. Illa fyrirkallaðir almannaþjónar - Fréttablaðið - Morgunblaðið BYGGÐ Á SJÓNVARPSÞÁTTUNUM NJÓSNADEILDIN ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK S siAM EMPIRE MAD MAX 8, 10:30(P) PITCH PERFECT 2 5:30, 8, 10:30 BAKK 5:50, 8 AVENGERS 2 3D 10:10 ÁSTRÍKUR 2D 5:50 „Þetta er allt að bresta á,“ segir Egill Ólafur Thorarensen er hann tjáir Fréttablaðinu hvaða lista- menn eru væntanlegir til lands- ins að spila á Secret Solstice í júní. Nú þegar hafa risastór nöfn á borð við The Wailers, Kelis, Wu- Tang Clan, Foreign Beggars og fleiri boðað komu sína. „Íslandsvinurinn og partíljón- ið Bam Margera mætir, en hann mun koma fram með hljómsveit sinni, Earth Rocker. Bam Marg- era er líklega best þekktur fyrir að vera meðlimur Jackass-hóps- ins og fyrir Viva La Bam-þætt- ina sína en hann hefur lagt tón- listina fyrir sig undanfarin ár,“ segir Egill. „Auk hans hafa litríka og lífs- glaða nu-disco sveitin Hercu- les & Love Affair og Serge Dev- ant frá New York-borg tilkynnt komu sína, en Devant hefur gefið út remix fyrir tónlistarmenn eins og Lana Del Ray og unnið með mönnum eins og Jamie Jones og Lee Foss,“ upplýsir Egill. Þá mun hipphopparinn Stormzy einnig láta til sín taka á sviðinu. „Svo ættu drum&bass-áhuga- menn að geta hoppað hæð sína í loft upp vegna þess að Sinistarr frá Detroit ætlar að mæta í dal- inn.“ Urmull af íslensku tónlistar- fólki mun að sama skapi stíga á svið. „Lára Rúnarsdóttir, prúð- skeggjaði rafpopparinn Bernd- sen, SesarA og Reykjavíkurdæt- ur voru að bætast í hópinn og svo smá danstónlistarstemning, en Orang Volante, Hidden People, og RVK DNB hópurinn mæta,“ segir Egill. - ga Bam Margera mætir líka á Secret Solstice Eft irlegukindurnar dregnar fram í dagsljósið, enda aðeins þrjátíu dagar í að Laugardalurinn iði af gleði. STYTTIST Stútfull dagskrá liggur nú fyrir, bæði innlendir og erlendir tón- listarmenn á heimsmælikvarða eru á leiðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 2 -3 D C C 1 7 6 2 -3 C 9 0 1 7 6 2 -3 B 5 4 1 7 6 2 -3 A 1 8 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.