Fréttablaðið - 21.05.2015, Page 58

Fréttablaðið - 21.05.2015, Page 58
21. maí 2015 FIMMTUDAGUR | SPORT | 50 ANNA ÚRSÚLA ÍSLANDSMEISTARI „FIMM“ ÁR Í RÖÐ EKKI MEÐ 2013 FRAM VARÐ MEISTARI Anna Úrsúla var í barneignarfríi frá því um miðjan janúar og var ekki með Val í úrslitakeppninni. Valsliðið tapaði án hennar í undanúrslitum á móti Stjörnunni. Fram vann Stjörnuna í úrslitunum. VALUR 2010 Valur vann Hauka 2-0 í undanúrslitum og Fram 3-1 í lokaúrslitum. Anna Úrsúla skoraði 25 mörk í 6 leikjum í úrslitakeppninni. Fyrsti Íslands- meistaratitili kvennaliðs Vals frá árinu 1983. Valur varð einnig deildarmeistari en tapaði bikarúrslitaleiknum á móti Fram. VALUR 2011 Valur vann Fylki 2-0 í undanúrslitum og Fram 3-0 í lokaúrslitum. Anna Úrsúla skoraði 25 mörk í 5 leikjum í úrslitakeppninni. Kvennalið Vals varði titilinn í fyrsta sinn frá 1974. Valur varð einnig deildarmeistari en tapaði bikarúrslita- leiknum á móti Fram. VALUR 2012 ÞREFALT Valur vann Stjörnuna 3-0 í undanúrslitum og Fram 3-2 í lokaúrslitum. Anna Úrsúla skoraði 33 mörk í 8 leikjum í úrslitakeppninni. Valur varð einnig bikarmeistari eftir 27-18 sigur á ÍBV í úr- slitaleik og Valsliðið varð einnig deildarmeistari. VALUR 2014 TVÖFALT Valur vann Hauka 2-0 í 8 liða úrslitunum, ÍBV 3-1 í undanúrslitum og Stjörnuna 3-2 í lokaúrslitum. Anna Úrsúla skoraði 54 mörk í 11 leikjum í úrslitakeppninni. Valur varð einnig bikarmeistari eftir 24-19 sigur á Stjörnunni í úrslitaleik. GRÓTTA 2015 ÞREFALT Grótta vann Selfoss 2-0 í 8 liða úrslitunum, ÍBV 3-2 í undanúrslitum og Stjörnuna 3-1 í lokaúrslitum. Anna Úrsúla skoraði 40 mörk í 11 leikjum í úrslitakeppninni. Grótta varð einnig deildarmeistari og bikarmeistari eftir 29-14 sigur á Val í úrslitaleik. Nýr og endurbættur vefur fasteignir.is HANDBOLTI Vörn er sögð vinna titla og sjaldan á það betur við en hjá handboltakonunni Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur sem varð á dög- unum Íslandsmeistari í fimmta sinn á sex árum. Í raun má segja að hún hafi verið Íslandsmeistari í fimmta skiptið í röð því vorið 2013 tók hún ekki þátt í úrslita- keppninni þar sem hún var ófrísk. Anna Úrsúla snéri hinsvegar aftur í handboltann ári seinna og end- urheimti titilinn með Valsliðinu. Síðast sumar fór hún síðan aftur heim í Gróttu og hjálpaði Gróttu að vinna sína þrjá fyrstu titla í kvennahandboltanum. Tapaði síðast vorið 2005 „Þetta var yndislegt og alveg magnað. Það er sem betur fer orðið mjög langt síðan að ég tapaði því það er ekki tilfinning sem þú vilt upplifa,“ segir Anna Úrsúla Guð- mundsdóttir. Anna Úrsúla hefur verið í sigur- liði í tólf einvígum í röð eða í öllum einvígum í úrslitakeppni kvenna frá og með 2010. Hennar lið var síðast „sent“ í sumarfrí 6. apríl 2005 þegar lið Gróttu/KR tapaði á móti Stjörnunni í átta liða úrslit- um. Það var engin úrslitakeppni 2006 til 2008 og þá komst Grótta ekki í úrslitakeppnina 2009. „Ég vil alls ekki fara að taka neina ábyrgð á þessu ein. Þetta snýst um liðið því ef að það er kar- akter í liðinu þá er allt mögulegt. Þetta byggist bara á því að trúa þessu og að þú getir þetta alveg því þá er allt hægt. Það er mjög margir sem flaska á því að hug- arfarið er bara svo ótrúlega stór hluti af þessu,“ segir Anna Úrsúla. Anna Úrsúla og Eva Margrét Kristinsdóttir mynda miðjuna í hinni frábæru vörn Gróttuliðsins og það sleppa ekki margir boltar framhjá þeim. „Við erum óhræddar við að öskra á hvora aðra ef það er eitt- hvað sem okkur líkar ekki við,“ segir Anna um samstarfið þeirra og hún hrósar líka Írisi í markinu. „Fyrir utan að vinna svakalega vel með vörninni þá er hún ótrú- legur markvörður,“ segir Anna. Anna Úrsúla og Írsi verða áfram á Nesinu næsta vetur. „Við erum báðar með samning við Gróttu og erum mjög sáttar við lífið. Þetta var ekki leiðinlegur vetur og það er um að gera að upplifa hann aftur,“ segir Anna sem varð þrí- tug fyrr í mánuðinum. Anna vann nú titilinn í fyrsta sinn með sínu uppeldisfélagi en Anna vill ekki segja að það hafi skemmtilegra að vinna með Gróttu heldur en Val. „Mér finnst ótrú- lega gaman að koma aftur í Gróttu og allt það. Að vinna titil með liði og vinkonum sínum sem maður er að æfa með á hverjum degi, það er allt- af ólýsanlegt,“ segir Anna Úrsúla og það leynir sér ekki að titilinn árinu áður er henni ofarlega í huga. Þykir vænt um 2014-titilinn „Mér fannst sérstaklega vænt um síðasta titilinn sem ég vann með Val. Þá var ég að koma til baka eftir barnsburð. Við vorum tvær þarna, ég og Rebekka (Skúladótt- ir), sem vorum að rífa okkur upp eftir barnsburð og vorum ótrú- lega stoltar af okkur. Við vorum kannski ekki í besta forminu okkar og þá fann maður kannski enn þá meira fyrir því hversu erfitt þetta var á meðan hitt var meira komið svolítið upp í vana. Þessir titlar eru samt alltaf eins. Fólk er að segja að titlarnir séu betri með uppeldisfélaginu og allt það og mér þykir ótrúlega vænt um þá. Allur þessi sviti, blóð og tár sem maður hefur upplifað með Val er ómetanlegt líka,“ segir Anna. Segist vera spes karakter Stress er eitthvað sem Anna Úrsúla segist ekki þekkja inn á vellinum. „Ég er mjög spes karakter því ég held að ég hafi aldrei verið stressuð í neinum íþróttaleik síðan ég fæddist en svo fæ ég með mesta prófstress dauðans. Málið er bara að þú gerir bara það inn á vellin- um sem þú getur gert. Ef þú legg- ur þig hundrað prósent fram þá er ekki hægt að kvarta yfir eða að vera stressuð yfir. Þú getur ekki stjórnað öllu öðru. Þegar þú átta þig á því þá er þetta bara gaman,“ segir Anna og hún var óhrædd að láta í sér heyra í vetur. „Ég held að hafi kannski talað fullt mikið að mati Kára. Ég tal- aði alveg óspart og tel að það sé Aldrei verið stressuð í íþróttaleik ALLTAF JAFN GAMAN Anna Úrsúla Guðmundsdóttir fagnar hér Íslandsmeistaratitlinum ásamt félögum sínum í Gróttuliðinu. Grótta vann þrjá titla í vetur sem voru þeir þrír fyrstu í sögu félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI stundum gott að fá nýja sýn á hlutina. Ég lét alveg í mér heyra hvort sem það var inn á vellin- um, á æfingum eða í leikhléum. Ég vona að hann erfi það ekki við mig því það var allt vel meint,“ segir Anna. Hún leggur líka áherslu á það að leikmaðurinn sem fær flesta sókn- armenn deildarinnar til að taka krók á leið sinni sér ekki sá sami og konan á bak við hann. „Þetta er eins og fólk segir þegar það kynn- ist mér: Ég hélt þú værir svo geð- veikt mikil tík og svo ertu bara indæl. Ég svara bara: Ég er ekki manneskjan sem ég er inn á vell- inum því þá er ég bara að keppa. Þetta eru svolítil hamskipti,“ segir Anna Úrsúla. ooj@frettabladid.is Lið með Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur innanborðs hefur unnið tólf einvígi í röð í úrslitakeppni kvennahandboltans og hún hefur orðið Íslandsmeistari í síðustu fi mm úrslitakeppnum sínum. Hún vann þrefalt með Gróttu í vetur. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 8 F B 0 6 4 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 2 -D 6 D C 1 7 6 2 -D 5 A 0 1 7 6 2 -D 4 6 4 1 7 6 2 -D 3 2 8 2 8 0 X 4 0 0 7 A F B 0 6 4 s _ 2 0 _ 5 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.