Fréttablaðið - 21.05.2015, Síða 58
21. maí 2015 FIMMTUDAGUR
| SPORT | 50
ANNA ÚRSÚLA ÍSLANDSMEISTARI „FIMM“ ÁR Í RÖÐ
EKKI MEÐ 2013 FRAM VARÐ MEISTARI
Anna Úrsúla var í barneignarfríi frá því
um miðjan janúar og var ekki með Val í
úrslitakeppninni. Valsliðið tapaði án hennar í
undanúrslitum á móti Stjörnunni. Fram vann
Stjörnuna í úrslitunum.
VALUR 2010
Valur vann Hauka 2-0 í undanúrslitum og Fram
3-1 í lokaúrslitum. Anna Úrsúla skoraði 25 mörk
í 6 leikjum í úrslitakeppninni. Fyrsti Íslands-
meistaratitili kvennaliðs Vals frá árinu 1983.
Valur varð einnig deildarmeistari en tapaði
bikarúrslitaleiknum á móti Fram.
VALUR 2011
Valur vann Fylki 2-0 í undanúrslitum og Fram
3-0 í lokaúrslitum. Anna Úrsúla skoraði 25 mörk
í 5 leikjum í úrslitakeppninni. Kvennalið Vals
varði titilinn í fyrsta sinn frá 1974. Valur varð
einnig deildarmeistari en tapaði bikarúrslita-
leiknum á móti Fram.
VALUR 2012 ÞREFALT
Valur vann Stjörnuna 3-0 í undanúrslitum og
Fram 3-2 í lokaúrslitum. Anna Úrsúla skoraði 33
mörk í 8 leikjum í úrslitakeppninni. Valur varð
einnig bikarmeistari eftir 27-18 sigur á ÍBV í úr-
slitaleik og Valsliðið varð einnig deildarmeistari.
VALUR 2014 TVÖFALT
Valur vann Hauka 2-0 í 8 liða úrslitunum,
ÍBV 3-1 í undanúrslitum og Stjörnuna 3-2 í
lokaúrslitum. Anna Úrsúla skoraði 54 mörk í 11
leikjum í úrslitakeppninni. Valur varð einnig
bikarmeistari eftir 24-19 sigur á Stjörnunni í
úrslitaleik.
GRÓTTA 2015 ÞREFALT
Grótta vann Selfoss 2-0 í 8 liða úrslitunum,
ÍBV 3-2 í undanúrslitum og Stjörnuna 3-1 í
lokaúrslitum. Anna Úrsúla skoraði 40 mörk í 11
leikjum í úrslitakeppninni. Grótta varð einnig
deildarmeistari og bikarmeistari eftir 29-14
sigur á Val í úrslitaleik.
Nýr og endurbættur vefur
fasteignir.is
HANDBOLTI Vörn er sögð vinna titla
og sjaldan á það betur við en hjá
handboltakonunni Önnu Úrsúlu
Guðmundsdóttur sem varð á dög-
unum Íslandsmeistari í fimmta
sinn á sex árum. Í raun má segja
að hún hafi verið Íslandsmeistari
í fimmta skiptið í röð því vorið
2013 tók hún ekki þátt í úrslita-
keppninni þar sem hún var ófrísk.
Anna Úrsúla snéri hinsvegar aftur
í handboltann ári seinna og end-
urheimti titilinn með Valsliðinu.
Síðast sumar fór hún síðan aftur
heim í Gróttu og hjálpaði Gróttu
að vinna sína þrjá fyrstu titla í
kvennahandboltanum.
Tapaði síðast vorið 2005
„Þetta var yndislegt og alveg
magnað. Það er sem betur fer orðið
mjög langt síðan að ég tapaði því
það er ekki tilfinning sem þú vilt
upplifa,“ segir Anna Úrsúla Guð-
mundsdóttir.
Anna Úrsúla hefur verið í sigur-
liði í tólf einvígum í röð eða í öllum
einvígum í úrslitakeppni kvenna
frá og með 2010. Hennar lið var
síðast „sent“ í sumarfrí 6. apríl
2005 þegar lið Gróttu/KR tapaði á
móti Stjörnunni í átta liða úrslit-
um. Það var engin úrslitakeppni
2006 til 2008 og þá komst Grótta
ekki í úrslitakeppnina 2009.
„Ég vil alls ekki fara að taka
neina ábyrgð á þessu ein. Þetta
snýst um liðið því ef að það er kar-
akter í liðinu þá er allt mögulegt.
Þetta byggist bara á því að trúa
þessu og að þú getir þetta alveg
því þá er allt hægt. Það er mjög
margir sem flaska á því að hug-
arfarið er bara svo ótrúlega stór
hluti af þessu,“ segir Anna Úrsúla.
Anna Úrsúla og Eva Margrét
Kristinsdóttir mynda miðjuna í
hinni frábæru vörn Gróttuliðsins
og það sleppa ekki margir boltar
framhjá þeim.
„Við erum óhræddar við að
öskra á hvora aðra ef það er eitt-
hvað sem okkur líkar ekki við,“
segir Anna um samstarfið þeirra
og hún hrósar líka Írisi í markinu.
„Fyrir utan að vinna svakalega
vel með vörninni þá er hún ótrú-
legur markvörður,“ segir Anna.
Anna Úrsúla og Írsi verða áfram
á Nesinu næsta vetur. „Við erum
báðar með samning við Gróttu og
erum mjög sáttar við lífið. Þetta
var ekki leiðinlegur vetur og það
er um að gera að upplifa hann
aftur,“ segir Anna sem varð þrí-
tug fyrr í mánuðinum.
Anna vann nú titilinn í fyrsta
sinn með sínu uppeldisfélagi en
Anna vill ekki segja að það hafi
skemmtilegra að vinna með Gróttu
heldur en Val. „Mér finnst ótrú-
lega gaman að koma aftur í Gróttu
og allt það. Að vinna titil með liði og
vinkonum sínum sem maður er að
æfa með á hverjum degi, það er allt-
af ólýsanlegt,“ segir Anna Úrsúla
og það leynir sér ekki að titilinn
árinu áður er henni ofarlega í huga.
Þykir vænt um 2014-titilinn
„Mér fannst sérstaklega vænt um
síðasta titilinn sem ég vann með
Val. Þá var ég að koma til baka
eftir barnsburð. Við vorum tvær
þarna, ég og Rebekka (Skúladótt-
ir), sem vorum að rífa okkur upp
eftir barnsburð og vorum ótrú-
lega stoltar af okkur. Við vorum
kannski ekki í besta forminu
okkar og þá fann maður kannski
enn þá meira fyrir því hversu
erfitt þetta var á meðan hitt var
meira komið svolítið upp í vana.
Þessir titlar eru samt alltaf eins.
Fólk er að segja að titlarnir séu
betri með uppeldisfélaginu og allt
það og mér þykir ótrúlega vænt
um þá. Allur þessi sviti, blóð og
tár sem maður hefur upplifað
með Val er ómetanlegt líka,“ segir
Anna.
Segist vera spes karakter
Stress er eitthvað sem Anna
Úrsúla segist ekki þekkja inn á
vellinum.
„Ég er mjög spes karakter því
ég held að ég hafi aldrei verið
stressuð í neinum íþróttaleik síðan
ég fæddist en svo fæ ég með mesta
prófstress dauðans. Málið er bara
að þú gerir bara það inn á vellin-
um sem þú getur gert. Ef þú legg-
ur þig hundrað prósent fram þá er
ekki hægt að kvarta yfir eða að
vera stressuð yfir. Þú getur ekki
stjórnað öllu öðru. Þegar þú átta
þig á því þá er þetta bara gaman,“
segir Anna og hún var óhrædd að
láta í sér heyra í vetur.
„Ég held að hafi kannski talað
fullt mikið að mati Kára. Ég tal-
aði alveg óspart og tel að það sé
Aldrei verið stressuð í íþróttaleik
ALLTAF JAFN GAMAN Anna Úrsúla Guðmundsdóttir fagnar hér Íslandsmeistaratitlinum ásamt félögum sínum í Gróttuliðinu. Grótta vann þrjá titla í vetur sem voru þeir þrír fyrstu í sögu félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
stundum gott að fá nýja sýn á
hlutina. Ég lét alveg í mér heyra
hvort sem það var inn á vellin-
um, á æfingum eða í leikhléum.
Ég vona að hann erfi það ekki við
mig því það var allt vel meint,“
segir Anna.
Hún leggur líka áherslu á það að
leikmaðurinn sem fær flesta sókn-
armenn deildarinnar til að taka
krók á leið sinni sér ekki sá sami
og konan á bak við hann. „Þetta er
eins og fólk segir þegar það kynn-
ist mér: Ég hélt þú værir svo geð-
veikt mikil tík og svo ertu bara
indæl. Ég svara bara: Ég er ekki
manneskjan sem ég er inn á vell-
inum því þá er ég bara að keppa.
Þetta eru svolítil hamskipti,“ segir
Anna Úrsúla. ooj@frettabladid.is
Lið með Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur innanborðs hefur unnið tólf einvígi
í röð í úrslitakeppni kvennahandboltans og hún hefur orðið Íslandsmeistari í
síðustu fi mm úrslitakeppnum sínum. Hún vann þrefalt með Gróttu í vetur.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
8
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
2
-D
6
D
C
1
7
6
2
-D
5
A
0
1
7
6
2
-D
4
6
4
1
7
6
2
-D
3
2
8
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
5
C
M
Y
K