Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Qupperneq 6
fimmtudagur 19. mars 20096 Fréttir Nethyl 2, sími 587-0600, www.tomstundahusid.is Fjarstýrðir rafmagns- og bensínbílar í úrvali Siðlausar arðgreiðslur „Það vekur ugg að í ársreikning- um HB-Granda er beitt sömu aðferðum við að blása út eignir og beitt var í fjölmörgum fyrirtækj- um og fjármálastofnunum, sem hrunið hafa á síðustu mánuðum. Óefnislegar eignir eru metn- ar langt umfram raunverulegt verðmæti, sem verður til þess að verðmæti og eignastaða fyrirtæk- isins líta út fyrir að vera mun betri en raun er.“ Þetta segir í ályktun miðstjórnar ASÍ sem telur tillögur HB-Granda um hundruð milljóna króna arðgreiðslur til eigenda siðlausar við núverandi aðstæð- ur. ASÍ skorar á stjórnina að draga tillöguna til baka ella greiði starfs- fólki umsamdar launahækkanir án tafar. Káfaði á fatlaðri konu Héraðsdómur Austurlands dæmdi karlmann í tveggja mánaða skilorðsbundið fang- elsi til tveggja ára fyrir kynferð- islega áreitni gagnvart konu sem býr við andlega fötlun. Var maðurinn dæmdur fyrir að hafa káfað á brjóstum, fót- leggjum og lærum konunnar. Hinn brotlegi varð fyrir heilaskaða í slysi árið 1979. Var fenginn geðlæknir til að meta sakhæfi hans og komst sá að því að maðurinn væri fyllilega sakhæfur. Hvert orð metið á hálfa milljón Ef miðað er við útreikninga fjár- málaráðuneytisins, sem telur að stjórnlagaþing muni kosta ís- lenska ríkið frá 1,1 milljarði króna til 2,2 milljarða, er hægt að verð- leggja hvert orð íslensku stjórn- arskrárinnar á bilinu 291.000 til 582.000 króna. Verkefni stjórlagaþingsins er að endurskoða stjórnarskrána eins og hún leggur sig en með greinarheitum og öllu heila klabbinu er stjórnarskráin 3.775 orð. Þingmenn hafa karpað um kostnaðinn sem þessari hug- mynd fylgir og hafa sér í lagi sjálfstæðismenn lagst hart gegn slíkum fjárútlátum á tímum þrenginga. Ríflega þrjú hundruð manns leituðu á náðir Fjölskylduhjálpar í gær. Þar af voru um áttatíu prósent útlendingar sem flestir eru atvinnulausir og hafa úr litlu að moða á þessum síðustu og verstu tímum. Hassjan Mahmutov er fertugur rafvirki frá Eist- landi sem gerir hvað sem er fyrir peninga til að senda börnum sínum í Eistlandi. ætlar ekki að flýja undan kreppunni „Ég kom til Íslands fyrir einu ári og sex mánuðum. Ég lærði rafvirkj- un í Eistlandi og kom hingað til að vinna við það. Fyrst vann ég í Raf- virkni og síðan í Raflist. Svo skall kreppan á og núna er litla vinnu að fá. Ég skúra í versluninni Evans í Kringlunni á kvöldin. Ég fæ enga vinnu sem rafvirki nema skipta um perur og svoleiðis. Ég geri allt fyr- ir peninga,“ segir Hassjan Mahmu- tov. Hassjan er einn af þeim tæp- lega þrjú hundruð karla og kvenna sem mættu í vikulega úthlutun Fjölskylduhjálpar í gær. Um áttatíu prósent af þeim sem fengu mat hjá Fjölskylduhjálp í gær eru útlend- ingar sem hafa misst vinnuna á síð- ustu mánuðum. Sendir peninga heim Hassjan talar litla íslensku en er að læra. Hann lætur ekki kreppuna buga sig og ætlar ekki að flytja aftur til Eistlands. „Í Eistlandi er líka kreppa og enga vinnu að fá. Ég hugsa að kreppan á Íslandi verði búin eftir eitt ár en í Eistlandi er kreppan rétt að byrja og gæti tekið tíu ár,“ segir Hassjan sem á tvö lítil börn í heima- landi sínu. „Þetta er fjórða skiptið sem ég kem hingað í Fjölskylduhjálp. Ég þarf að spara þá litlu peninga sem ég fæ því börnin mín vantar líka peninga í Eistlandi. Kannski sæki ég þau eftir eitt ár.“ Útlendingar og Íslend- ingar aðskildir Í Fjölskylduhjálp í gær var ákveð- ið að vera með tvær raðir, eina fyr- ir útlendinga og eina fyrir Íslend- inga. Á þetta ráð var brugðið því mikil örtröð skapaðist í síðustu viku sem endaði með því að einstæðar, íslenskar mæður voru teknar fram fyrir útlendingana því þær óttuðust að maturinn myndi klárast. Að sögn Ásgerðar Jónu Flosa- dóttur, formanns Fjölskylduhjálp- ar Íslands, þarf enginn frá að hverfa á úthlutunardegi hjá samtökunum. Hún segir að alltaf sé nóg af mat fyrir þau hundruð manna sem nýta sér þessa aðstoð. Sjálfboðaliðar Fjölskylduhjálp- ar glímdu einnig við tungumála- vandamál þar sem margir þeirra Pólverja sem nýta sér aðstoðina tala hvorki ensku né íslensku. Nú er það vandamál leyst þar sem einn Pólverji starfar í gæslunni og ein pólsk stúlka við að skrá útlending- ana inn. Ásgerður var mjög sátt við út- hlutunardaginn í gær þar sem hann gekk með eindæmum vel. „Þetta er búið að ganga eins og smurð vél. Það myndaðist aldrei flöskuháls og það má líkja starfseminni hér við færiband í verksmiðju,“ segir Ásgerður sem telur flesta sem leita til Fjölskylduhjálpar vera atvinnu- lausa. „Pólverjarnir sem koma hingað eru að stærstum hluta karl- menn og allir atvinnulausir.“ Bjartsýnn Arturas Vachmeninas er sautján ára Lithái sem hefur búið í eitt ár á Íslandi. Hann heimsækir Fjöl- skylduhjálp vegna peningaskorts en er bjartsýnn á framtíðina. „Ég var að vinna á Burger King en það varð gjaldþrota þannig að ég er atvinnulaus núna. Ég kom hing- að til að lifa. Ég ætlaði að vinna í ár og á næsta ári ætla ég að fara í skóla að læra íslensku. Ég bý með móður minni sem er búin að búa hér í þrjú ár. Samt eigum við ekki næga pen- inga. En mér líst vel á framtíðina á Íslandi. Ég er þúsundþjalasmiður og get unnið við hvað sem er.“ lilja KatrÍn gunnarSdóttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is „Ég fæ enga vinnu sem rafvirki nema skipta um perur og svoleiðis.“ Mestmegnis karlmenn flestir þeirra útlendinga sem leita til fjölskylduhjálpar eru atvinnulausir karlmenn. MYnd HEiÐa HElgadóttir Skiptir um perur Hassjan er lærður rafvirki en fær aðeins vinnu við að skipta um perur og álíka smáræði þessa dagana. MYnd HEiÐa HElgadóttir Þúsundþjalasmiður arturas er bjartsýnn og ætlar sér að læra íslensku næsta ár. MYnd HEiÐa HElgadóttir ólöf ósk Erlendsdóttir dæmd í þriggja mánaða fangelsi: tæmdi nær næstu íbúð Ólöf Ósk Erlendsdóttir var í gær dæmd í þriggja mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ítrek- uð auðgunar- og fíkniefnabrot. Ólöf komst í fréttirnar árið 2007 eftir að hún skýrði opinberlega frá kynferðislegri misbeitingu Guðmundar Jónssonar, þáverandi forstöðumanns meðferð- arheimilisins Byrgisins, í sinn garð. Í fórum hennar fundust alls tæpt gramm af hassi, 1,6 grömm af tób- aksblönduðu hassi og 8,73 grömm af amfetamíni. Þá var hún einnig dæmd fyrir nokkur þjófnaðarbrot og vörslu þýfis. Brotin framdi hún á árunum 2007 og 2008. Ólöf þarf ennfremur að greiða Verði Íslandstryggingum ríflega 1,4 milljónir króna í skaðabætur vegna stórfellds þjófnaðar í Fannarfelli í Reykjavík 25. febrúar 2007. Í dómnum kemur fram að hún hafi nánast tæmt íbúð nágranna síns í fjöl- býlishúsinu. Hún braust inn í íbúðina og bar þaðan út yfir í eigin íbúð skart- gripi, hárblásara, sléttujárn, hárkollu, ýmiskonar snyrtivörur, ýmsan kven- fatnað, 12 pör af skóm, hljómflutn- ingstæki, sjónvarp, reiðufé, iPod-spil- ara, sængur, kodda, rakspíra, rakvél og margt fleira. Í dómnum segir að sannað hafi verið með skýlausri játningu Ólafar að hún hafi gerst sek um það sem hún var ákærð fyrir. Ólöf Ósk á baki langan sakafer- il, samkvæmt sakavottorði hefur hún hlotið fimm dóma frá árinu 2004 fyrir fíkniefnabrot. Sama ár var hún einnig dæmd í 30 daga skilorðsbundið fang- elsi fyrir þjófnað. Þá var hún dæmd 8. nóvember 2007 í 18 mánaða fangelsi fyrir húsbrot, frelsissviptingu, rán og fíkniefnabrot valgeir@dv.is, mikael@dv.is ólöf ósk Erlendsdóttir Hlaut þriggja mánaða fangels- isdóm fyrir fjölmörg afbrot.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.