Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2009, Page 16
FIMMTUDAGUR 19. MARs 200916 Ættfræði Sigurður Úlfarsson húsgagnasmíðameistari og kennari Sigurður fæddist í Fljótsdal í Fljóts- hlíð og ólst þar upp við öll almenn sveitastörf. Hann var í Barnaskóla Fljótshlíðar, stundaði síðar nám við Iðnskólann í Reykjavík, lærði hús- gagnasmíði hjá Lofti Sigurðssyni, húsgagnasmíðameistara í Reykja- vík, lauk sveinsprófi í þeirri iðngrein 1941, öðlaðist meistararéttindi 1944, og lauk kennaraprófi 1960. Sigurður stundaði landbúnað- arstörf til sautján ára aldurs, flutti til Reykjavíkur 1937 og hefur átt þar heima síðan. Sigurður starfrækti, ásamt öðrum, húsgagnavinnustofu í Reykjavík 1945-58, hóf kennslu við Gagnfræðaskóla verknáms 1958, kenndi síðar við Ármúlaskólann og loks við KHÍ 1979-89. Sigurður sat í stjórn Sveinafélags húsgagnasmiða í þrjú ár, var for- maður prófnefndar í húsgagnasmíði í tíu ár, sat í stjórn Félags gagnfræða- skólakennara og í stjórn Smíða- kennarafélags Íslands um árabil. Fjölskylda Sigurður kvæntist 17.7. 1943 Mar- gréti Kristínu Björnsdóttur, f. 30.1. 1924, húsmóður. Hún er dóttir Björns Rögnvaldssonar, bygginga- meistara í Reykjavík, og Ingibjargar Sigríðar Steingrímsdóttur húsmóð- ur. Börn Sigurðar og Margrétar Kristínar eru Björn Úlfar Sigurðs- son, f. 1.11. 1944, húsgagnasmíða- meistari og kennari í Reykjavík, kvæntur Júlíu Ósk Halldórsdóttur, f. 6.6. 1943, og eiga þau þrjú börn; Sigríður Margrét Sigurðardóttir, f. 20.12. 1954, kennari í Reykjavík, gift Ágústi Benediktssyni, f. 10.5. 1956, kennara og eiga þau þrjú börn. Hálfsystkini Sigurðar, samfeðra, eru öll látin. Móðir þeirra var Guð- laug Brynjólfsdóttir, f. 21.4. 1871, d. 17.2. 1910, húsfreyja. Hálfsystk- ini hans voru Óskar Úlfarsson, f. 27.12. 1889; Guðjón Úlfarsson, f. 24.5. 1891; Jón Úlfarsson, f. 22.7. 1892; Ingibjörg Úlfarsdóttir, f. 13.10. 1893; Brynjólfur Úlfarsson, f. 18.2. 1895; Ágúst Úlfarsson, f. 9.6. 1896; Guðrún Úlfarsdóttir, f. 29.10. 1897; Ingunn Úlfarsdóttir, f. 6.1. 1899; Guðbjörg Úlfarsdóttir, f. 7.9. 1901; Þórunn Úlfarsdóttir, f. 31.1. 1903; Elín Úlfarsdóttir, f. 15.2. 1904; Sæ- mundur Úlfarsson, f. 27.8. 1905; Sig- urþór Úlfarsson, f. 3.2. 1907; Magn- ús Úlfarsson, f. 27.8. 1908. Alsystkini Sigurðar: Guðlaug Elín Úlfarsdóttir, f. 24.1. 1918, nú látin; Kristján Úlfarsson, f. 17.10. 1921, nú látinn. Foreldrar Sigurður voru Úlfar Jónsson, f. 24.9. 1864, d. 20.4. 1932, óðalsbóndi í Fljótsdal í Fljótshlíð, og s. k. h., Kristrún Kristjánsdóttir, f. 8.12. 1878, d. 13.3. 1971, húsfreyja. Ætt Föðurbróðir Sigurðar var Kristj- án, afi Hafsteins Guðmundssonar prentsmiðjustjóra. Úlfar var sonur Jóns, b. í Fljótsdal, bróður Þuríðar, ömmu Ólafs Túbals listmálara. Jón var sonur Jóns, b. í Kaldrananesi í Mýrdal Jónssonar og Vigdísar Þor- leifsdóttur, lrm. í Skaftafelli Sigurðs- sonar, sýslumanns á Smyrlabjörg- um í Suðursveit Stefánssonar. Móðir Úlfars var Guðbjörg, systir Magnúsar, afa Ólafs Túbals. Annar bróðir Guðbjargar var Oddur, lang- afi Davíðs Oddssonar, fyrrv. forsæt- isráðherra. Guðbjörg var dóttir Eyj- ólfs, b. í Fljótsdal Oddssonar. Móðir Eyjólfs var Margrét Ólafsdóttir, b. á Fossi á Rangárvöllum Bjarnasonar, ættföður Víkingslækjarættar Hall- dórssonar. Kristrún var dóttir Kristjáns, b. á Árgilsstöðum í Hvolhreppi Jóns- sonar, b. í Fagurhlíð í Landbroti Eyj- ólfssonar, og Guðnýjar Jónsdóttur, b. í Efri-Vík Guðbrandssonar. Móð- ir Guðnýjar var Guðlaug Oddsdóttir, systir Guðríðar, langömmu Jóhann- esar Kjarvals. Móðir Kristrúnar var Eyrún Jónsdóttir, b. á Árgilsstöðum Bergsteinssonar, bróður Þuríðar, langömmu Bergsteins brunamála- stjóra og Sigurðar hrl. Gizurarsona, Ólafs G. Einarssonar, fyrrv. mennta- málaráðherra og Boga Nilssonar, fyrrv. ríkissaksóknara. Móðir Eyrún- ar var Þuríður Eyjólfsdóttir, systir Guðbjargar í Fljótsdal. Sigurður verður að heiman á af- mælisdaginn. Dögg fæddist í Reykja- vík en ólst upp í Grundarfirði. Hún var í Grunnskóla Eyr- arsveitar, lauk versl- unarprófi frá VÍ, lauk stúdentsprófi frá MH og lauk prófum í kvik- myndaleikstjórn frá CECC í Barcelona á Spáni 2005. Dögg vann í fiski í frystihús- inu í Grundarfirði á unglingsár- unum, var háseti á togaranum Ingimundi frá Grundarfirði um skeið, starfaði við framleiðslu- deild CECC í eitt ár og er nú klippari í Reykjavík. Dögg hefur gert átta stutt- myndir, þrjár heimildarmyndir og nokkur tónlistarmyndbönd. Dögg er meðlimur HK Utd. í blaki. Fjölskylda Eiginmaður Daggar er Daníel Schreider, f. 21.9. 1974, tónlistarmaður. Systur Daggar eru Lilja Mósesdóttir, f. 11.11. 1961, doktor í hagfræði í Reykjavík; Hildur Mósesdóttir, f. 6.2. 1963, bókari í Reykjavík; Ásta Mósesdóttir, f. 19.12. 1966, bókari í Reykjavík. Foreldrar Daggar eru Mós- es Guðmundsson, f. 22.3. 1942, verkstjóri og einn eigenda frysti- húss Guðmundar Runólfssonar í Grundarfirði, og Dóra Haralds- dóttir, f. 11.12. 1943, stöðvarstjóri Póstsins í Grundarfirði. Jarþrúður fæddist í Reykjavík en ólst upp í Kópavoginum og í Hvalfirðinum. Hún var í Snælandsskóla, stund- aði nám við MS, lauk stúdentsprófi frá MH og er nú að ljúka BA-prófi í heimspeki við HÍ. Þá stundaði hún píanó- nám við Tónlistarskóla Kópa- vogs frá sex ára aldri og þar til hún varð sautján ára og stund- aði nám í tónsmíði við Listahá- skólann. Jarþrúður vann við hótel í Kaupmannahöfn eitt sumar, var förðunarfræðingur í eitt skipti hjá tímaritinu Bleikt og blátt, hefur sungið, leikið á hljóm- borð og saxafón með ýms- um hljómsveitum, var hljóðmaður við Þjóð- leikhúsið, hefur sam- ið leikhústónlist og var blaðamaður á Frétta- blaðinu um skeið. Fjölskylda Sonur Jarþrúðar er Kristján Gabríel Þór- hallsson, f. 5.2. 2001. Systur Jarþrúðar eru Guðrún Karlsdóttir, f. 27.4. 1969, sóknar- prestur í Grafarvogi; Erla Karls- dóttir, f. 17.2. 1972, mastersnemi í guðfræði við HÍ. Foreldrar Jarþrúðar eru Karl Magnús Kristjánsson, f. 30.4. 1948, fjármálastjóri Alþingis, og Helga Einarsdóttir, f. 1.4. 1949, leikskólakennari. Dögg Mósesdóttir kvikmyndagerðarkona í reykjavík Jarþrúður Karlsdóttir tónlistarmaður í reykjavík „Það þýðir lítið að tala við mig. Ég veit ekkert um þetta afmæli, væni minn. Ég get ekkert sagt þér hvað ég er að fara að gera á afmælisdaginn. Ég hef ekki grænan grun. Konan hefur verið að skipuleggja einhverja heljarinnar óvissuferð í margar vik- ur en ég veit ekkert hvað er í bígerð. Ég var bara beðinn um að taka mér fjögurra til fimm daga frí í vinnunni og hafa tannburstann til reiðu – verð svo líklega bara settur upp í bíl eða flugvél eða eitthvert annað farar- tæki – en veit svo ekkert hvert skal halda eða í hverju ég lendi. Þetta er allt í hennar höndum og á hennar ábyrgð. Ég verð því bara að treysta á guð og konuna,“ segir Hjörtur Lín- dal Hauksson, tæknifræðingur hjá Nova, sem varð þrítugur í dag, og er því lagður af stað án þess að vita hvert ferðinni er heitið. Kona Hjartar sem ber ábyrgð- ina á þessari algjöru afmælisóvissu heitir Ragnhildur Heiðarsdóttir, MA-nemi í læknisvísindum við HÍ. Hún er ekki nýgræðingur í að skapa svona óvissu en Hjörtur fékk einmitt eina óvissuferð er hann lauk tækni- fræðináminu. En skyldi hann vera smeykur? Á hann kannski von á ein- hverjum lífsháska? „Ja, jú, alveg eins. Þá er bara að taka því sem að höndum ber af æðruleysi og með karlmennsku. Ég verð hvort sem er orðinn svo háaldraður á afmælisdaginn - kom- inn á fertugsaldurinn. Það tekur því ekki fyrir slík gamalmenni að kvarta undan lífsháska.“ 30 ára í dag 30 ára í dag Tvísýnt um tæknifræðing: afmælisóvissuferð 30 ára n Jose C. Barastegui Ramirez Hjarðarhaga 60, Reykjavík n Jose Yandy Machado Cajide Gunnarsbraut 32, Reykjavík n Ragnheiður Laufd. Erlingsdóttir Akurhvarfi 5, Kópavogur n Tomasz Baranowski Setbergi 33, Þorlákshöfn n Ársól Margrét Ólafíudóttir Sólheimum 25, Reykjavík n Elva Björk Runólfsdóttir Nökkvavogi 15, Reykjavík n Selma Dögg Valgarðsdóttir Brávallagötu 20, Reykjavík n Elísabet Stefánsdóttir Gnoðarvogi 80, Reykjavík n Atli Örn Gunnarsson Markholti 12, Mosfellsbær n Margrét Edda Ragnarsdóttir Suðurhvammi 9, Hafnarfjörður n Ólöf Ósk Magnúsdóttir Hrygg 2, Selfoss n Örvar Þór Sigurðsson Grundarvegi 5, Njarðvík 40 ára n Adrianus Vos Fálkagötu 10, Reykjavík n Hugrún Sigurjónsdóttir Kársnesbraut 51a, Kópavogur n Svanhildur E Benjamínsdóttir Búlandi 20, Reykjavík n Elísabet Mary Þrastardóttir Túngötu 12, Sand- gerði n Gestur Hjörvar Magnússon Friggjarbrunni 4, Reykjavík n Jensína Kristín Böðvarsdóttir Sunnuvegi 13, Reykjavík n Stefanía Rós Gísladóttir Hraunbæ 154, Reykjavík n Þröstur Þórhallsson Gvendargeisla 24, Reykjavík n Þórey Sigríður Erlingsdóttir Laufengi 27, Reykjavík n Guðrún Helga Aðalsteinsdóttir Tröllateigi 1, Mosfellsbær 50 ára n Doris Charlotte Maag Búðarnesi, Akureyri n Wieslawa Tusinska Gerðavegi 5, Garður n Josef Englert Hverfisgötu 117, Reykjavík n Kristjana V Jónatansdóttir Suðurgötu 34, Reykja- nesbær n Hjálmur Pétursson Borgarási, Flúðir n Sigríður Jóna Jóhannesdóttir Smáratúni 6, Reykjanesbær n Sigrún Þorsteinsdóttir Borgartúni 1, Hella n Jón Grétarsson Víðivöllum 11, Selfoss n Haraldur Guðmundsson Stakkanesi, Hólmavík n Ásrún Jörgensdóttir Skálanesgötu 10, Vopna- fjörður 60 ára n Alda Jónsdóttir Álakvísl 54, Reykjavík n Sigurbjörn Helgason Bólstaðarhlíð 64, Reykjavík n Jóna Sigurlína Pálmadóttir Brautarholti 10, Ísafjörður n Jónbjörn Pálsson Hlégerði 2, Kópavogur n Ólafur Guðmundsson Álfaskjóli, Reykholt n Ósk Svavarsdóttir Heiðarvegi 17, Reyðarfjörður n Helgi Árnason Stekkum 23, Patreksfjörður n Hafdís Ágústsdóttir Asparási 4, Garðabær n Karl Jónsson Strandaseli 2, Reykjavík 70 ára n Karla Karlsdóttir Hrísalundi 4g, Akureyri n Hjörtur Böðvarsson Gránufélagsgötu 26, Akureyri n Elín Guðmundsdóttir Efstaleiti 12, Reykjavík n Ingibjörg Sigurþórsdóttir Esjuvöllum 12, Akranes n Erla Dýrfjörð Ekrugötu 3, Kópasker n Stefán Ingi Benediktsson Hjallalundi 18, Akureyri 75 ára n Runólfur Aðalbjörnsson Sunnubraut 1, Blönduós n Ragnar Björnsson Þórsgötu 21a, Reykjavík n Hermann Stefánsson Eskihlíð 20a, Reykjavík 80 ára n Guðbrandur Kjartan Þórðarson Norðurbrún 1, Reykjavík n Svava Baldvinsdóttir Hlíðarvegi 45, Siglufjörður n Ástráður Ólafsson Grenigrund 24, Selfoss n Ólafur Tryggvason Álfkonuhvarfi 55, Kópavogur n Björg Kristjánsdóttir Klapparstíg 1a, Reykjavík n Þorbjörg Helgadóttir Skarðshlíð 6b, Akureyri n Gísli Friðjónsson Meistaravöllum 7, Reykjavík n Sigvaldi Guðmundsson Hafrafelli, Króksfjarðarnes 102 ára n Ástríður Eyjólfsdóttir Kleppsvegi Hrafnistu, Reykjavík Til hamingju með afmælið! 90 ára í dag Hjörtur Líndal Tæknifræðingurinn og afmælisóvissuferðarskipuleggjandinn, ásamt tveimur barnanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.