Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2009, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2009, Side 2
miðvikudagur 3. júní 20092 Fréttir Orkuveita Reykjavíkur lét kanna möguleikann á því eftir efnahags- hrunið í haust að selja Gagnaveitu Reykjavíkur til símafyrirtækisins Vodafone gegn eignarhluta í fyrirtæk- inu. Í október réð Orkuveitan ráðgjaf- arfyrirtækið Gannet Consulting ehf., sem er í eigu Arnþórs Halldórsson- ar, til að vinna skýrslu um möguleik- ann á því að selja Gagnaveituna inn í Vodafone. Þetta kemur fram í verk- samningi á milli Orkuveitunnar og Gannet og í skýrslu ráðgjafarfyrirtæk- isins sem DV hefur undir höndum. Arnþór þessi er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri símafyrirtækisins Hive sem síðar sameinaðist símafyrirtæk- inu Sko og úr varð Tal sem er í eigu eignarhaldsfélagsins Teymis. Voda- fone er einnig í eigu Teymis. Í byrjun mars á þessu ári var Arnþór tilnefnd- ur af Teymi til að taka sæti í stjórn Tals. Stjórnarformaður Orkuveitunn- ar, Guðlaugur G. Sverrisson, segir að fyrirtækið hafi látið vinna skýrsl- una vegna þess að þurft hafi að láta kanna þennan möguleika eftir efna- hagshrunið vegna þess að mikil óvissa hafi skapast á markaði. Stjórn Orkuveitunnar var hins vegar ekki höfð með í ráðum þegar ákvörðun var tekin um að kaupa þessa ráðgjaf- arþjónustu, að sögn Guðlaugs. Verk- ið var auk þess ekki boðið út þar sem áætlaður kostnaður þess var rúm- lega tvær milljónir króna og því var það ekki útboðsskylt. Guðlaugur segir að ekkert hafi enn verið gert til að koma eignar- hlutanum úr eigu Orkuveitunnar og til annarra aðila. Hann segir að staða Gagnaveitunnar muni hugsanlega skýrast á næstunni þegar framtíð Vodafone liggur fyrir en Landsbank- inn, sem er stærsti kröfuhafi Teymis, reynir nú að selja 57 prósent í síma- fyrirtækinu. Meðal þeirra fjölmörgu sem lýst hafa yfir áhuga á Vodafone er færeyska símafyrirtækið Føroya Tele. Guðlaugur segir að framtíð Gagnaveitunnar kunni meðal annars að velta á því hvernig staðið verður að þessari sölu og hver kaupi meiri- hluta í félaginu. Gagnaveitan metin á átta milljarða króna Í skýrslu Gannet, sem dagsett er í desember í fyrra, kemur fram að ein af ástæðunum fyrir því af hverju skoða ætti slík- an samruna sé sú að um 67 til 70 prósent af tekjum Gagnaveitunnar komi frá leigu símafyrirtæk- isins á ljósleiðaranet- unum Dark Fiber og Metro-net. Guðlaugur segir að ein af ástæð- unum fyrir því að sam- runi Gagnaveitunn- ar og Vodafone var skoðað- ur hafi ver- ið hversu háð Gagna- veit- an var Vodafone um viðskipti. Hann segir að þetta hafi verið gert því Orku- veitan hafi haft áhyggjur af því hvaða áhrif það hefði á Gagnaveituna ef Vodafone yrði gjaldþrota. Höfundur skýrslunnar, Arnþór Halldórsson, kemst að þeirri niður- stöðu að besta mögulega niðurstað- an sé að sameina Vodafone, Gagna- veitu Reykjavíkur og símafyrirtækið Nova, sem er í eigu fjárfestingafélags- ins Novators, sem Björgólfur Thor Björgólfsson á. Arnþór segir í skýrsl- unni, þar sem hann ræðir um hvern- ig best sé að ganga frá viðskiptunum með Gagnaveituna, að „... gert sé ráð fyrir að GR verði keypt á bókfærðu verði (um það bil 8 milljarða króna eða 67 milljónir Bandaríkjadala).“ Í skýrslunni segir að gert sé ráð fyrir því að Voda- fone greiði fyrir Gagnaveituna með því að taka yfir 6 milljarða af skuldum Gagnaveitunn- ar og að Orkuveitan eignist hluta- fé í hinu nýja sameinaða fyrirtæki að upphæð tveir milljarðar króna. Heildarhlutur Orkuveitunnar í hinu sameinaða fyrirtæki átti að vera 35 til 45 prósent samkvæmt skýrslunni en þar er látið í það skína að aðkoma Orkuveitunnar að félaginu eigi ein- ungis að vera tímabundin. Salan á Gagnaveitunni hefði í reynd verið fyrsta skrefið í áttina að einkavæð- ingu Orkuveitunnar, svipað og sam- eining REI og Geysis Green Energy á haustmánuðum 2007 ef borgarráð hefði samþykkt hana. Stjórnarmennirnir vissu ekkert Aðrir stjórnarmenn Orkuveitu Reykjavíkur vissu ekki af því að Gannet hefði verið ráðið til að vinna skýrsluna þar sem rætt er um samruna Gagna- veitunnar og Vodafone. Þetta segja þau Júlíus Vífill Ingv- arsson, Sigrún Elsa Smára- dóttir og Svandís Svavars- dóttir, sem hætti í stjórninni fyrir skömmu þegar hún settist á þing og tók við ráðherraembætti. Sigrún Elsa seg- ist ekkert hafa vitað um skýrsluna og sameiningarhug- myndirnar og að henni komi þetta mjög á óvart. „Ég veit ekki betur en að loforð liggi fyr- ir því að Orkuveit- an verði hvorki PLOTTAÐ UM EINKAVÆÐINGU ORKUVEITU REYKJAVÍKUR Orkuveita Reykjavíkur lét kanna möguleikann á því eftir efnahags- hrunið að selja Gagnaveitu Reykjavíkur inn í Vodafone sem er í eigu Teymis. Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir að það hafi ekki verið slegið út af borðinu að selja Gagnaveituna. Stjórnarmenn Orkuveitunnar vissu ekki um skýrslu sem skrifuð var um sam- eininguna. Sá sem skrifaði skýrsluna hefur unnið fyrir félög í eigu hluthafa Teymis og var nýverið skipaður í stjórn Tals fyrir hönd Teymis. Stjórnarmenn Orkuveitunnar undrast hugmyndirnar. InGI F. VIlhjálmSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is „Ég veit ekki betur en að loforð liggi fyrir því að Orkuveitan verði hvorki einkavædd að öllu leyti né að hluta.“ Ráðgert að einkavæða Gagnaveituna Samkvæmt gögnum sem dv hefur undir höndum íhugaði Orkuveita reykjavíkur að selja gagnaveitu reykjavíkur til vodafone. Staða vodafone nú kemur í veg fyrir að þetta geti gengið upp en mögulegt er að gagnaveitan verði seld annað. mynd heIða helGadóttIR haldið leyndri Þáverandi stjórnarmenn í Orkuveitu reykja- víkur, Sigrún Elsa Smáradóttir og Svandís Svavarsdóttir, vissu ekki af skýrslunni um samruna gagnaveitu reykjavíkur og vodafone.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.