Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2009, Blaðsíða 6
miðvikudagur 3. júní 20096 Fréttir
inu. Gísli Árni Eggertsson, skrif-
stofustjóri Íþrótta- og tómstunda-
„Við lítum svo á að börnin séu
að taka þátt í formlegu frístunda-
starfi á frístundaheimilunum en
þar fer fram margs konar starf-
semi sem er sniðin að aldri þeirra
og þörfum. Þá taka ekki öll börn
sem sækja frístundaheimilin þátt
í öðru frístundastarfi og þótti
ástæða til að gefa foreldrum þeirra
möguleika á að nýta kortið til að
greiða niður dægradvölina. Það
skal þó tekið fram að full vistun á
frístundaheimili kostar um 8.000
„Það er staðreynd að nú er skilvíst
fólk í erfiðleikum sem aldrei hefur
lent í vanskilum áður,“ segir Guðgeir
Eyjólfsson, sýslumaður í Kópavogi.
Hjá sýslumannsembættum og
tollstjóraembættinu ber mönnum
saman um að vanskil færist mjög
í vöxt þessa dagana. Þetta þurfi þó
ekki að koma fram í talnagögnum, að
minnsta kosti ekki strax, vegna þess
að embættin reyni að milda inn-
heimtuaðgerðir í ljósi þrenginganna
í efnahagslífinu eftir því sem reglur
leyfa.
„Við merkjum aukninguna. Hins
vegar vitum við ekki við hverju er að
búast. Ástandið er eins og tölurnar
gefa til kynna hvað svo sem verður á
næstu mánuðum,“ segir Rúnar Guð-
jónsson, sýslumaður í Reykjavík.
Fjárnámsbeiðnir hjá Sýslumann-
inum í Reykjavík eru orðnar 8.700
það sem af er ári. Þetta eru tæplega
eitt þúsund fleiri fjárnámsbeiðnir en
á sama tímabili í fyrra, en þá voru
þær 7.760.
Vaxandi fjöldi af skilvísu fólki lendir nú í vanskilum í kjölfar bankahrunsins. Vand-
inn er þó minni en ætla mætti þegar litið er til gagna frá sýslumannsembættum
og öðrum innheimtumönnum ríkisins. Þeir hafa svigrúm til að fresta íþyngjandi
innheimtuaðgerðum og gefa fólki í vanskilum kost á að gera greiðsluáætlun.
Aukin vAnskil
skilvísrA
„Við merkjum aukninguna. Hins
vegar vitum við ekki við hverju
er að búast. Ástandið er eins og
tölurnar gefa til kynna hvað svo
sem verður á næstu mánuðum.“
Jóhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Rúnar bendir á að fasteignir, sem
seldar hafa verið nauðungarsölu það
sem af er ári, séu meira en tvöfalt
fleiri nú en á sama tíma í fyrra. Nú
hafa 106 fasteignir verið seldar nauð-
ungarsölu en voru 46 á sama tíma í
fyrra.
hóflegri innheimtuaðgerðir
Embætti Tollstjórans í Reykjavík sér
um innheimtu opinberra gjalda. Þótt
atvinnulausum hafi fjölgað um 12
þúsund á aðeins örfáum mánuðum
og erfiðleikar fjölda einstaklinga og
fyrirtækja séu miklir hefur fjárnáms-
beiðnum ekki fjölgað að sama skapi
hjá embættinu. Fjárnámsbeiðnir
voru 2.283 frá janúarbyrjun til apr-
ílloka en voru 2.224 á sama tímabili
í fyrra. Þá hefur þeim málum bók-
staflega fækkað sem lokið hefur ver-
ið með fjárnámi. Frá janúarbyrjun til
marsloka á þessu ári var lögtak gert
í 1.140 tilvikum en 1.640 tilvikum á
sama tíma í fyrra. Þetta endurspegl-
ar að mati sérfróðra að innheimtuað-
gerðir eru mildari en við venjulegar
aðstæður. Lengri frestur er gefinn en
áður. Samkvæmt upplýsingum emb-
ættisins á þetta einnig við um eldri
skattaskuldir einstaklinga. Í stað þess
að innheimta slíkar skuldir með stað-
greiðslunni er einstaklingum gert
kleift að semja um uppgreiðslu eldri
skattskulda í samræmi við greiðslu-
getu og framfærslu. „Þetta eru verk-
lagsreglur og við höfum breytt þeim
nokkuð í tengslum við ástandið,“
segir hjá Tollstjóraembættinu.
unnið að kerfisbreytingu
Unnið er að umfangsmikilli kerfis-
breytingu varðandi greiðsluforgang,
en venjan er að innborganir af hálfu
skuldara fari fyrst í kostnað, þá vexti
og dráttarvexti og að síðustu er af-
gangur innborgunar notaður til að
greiða niður höfuðstól skuldar. Þessu
er ætlunin að breyta. Af innborgun-
inni verður nú sem fyrr tekin frá upp-
hæð sem hrekkur fyrir innheimtu-
kostnaði. Því næst verður hluti
hennar notaður til að greiða niður
höfuðstól skuldarinnar. Þannig eru
vextir og dráttarvextir látnir mæta
afgangi. Með breytingunum gengur
hraðar á höfðuðstól skulda og það
ætti að draga úr vaxtakostnaði og
vera skuldurum til hagsbóta. Sam-
kvæmt upplýsingum Tollstjóraemb-
ættisins felur þetta í sér umfangs-
mikla kerfisbreytingu, meðal annars
breytingar á hugbúnaðarkerfum toll-
stjóra og annarra innheimtumanna
ríkisins.
Fleiri missa fasteignir sínar en
áður
Sýslumannsembættin fara ekki held-
ur fram með fullum þunga í inn-
heimtuaðgerðum eins og talnagögn
geta gefið vísbendingar um. Beiðnir
hjá sýslumanninum í Reykjavík um
nauðungarsölu eru að jafnaði færri
á mánuði það sem af er ári en þær
voru að jafnaði í fyrra og árið 2007.
Aftur á móti fjölgar nauðungarsöl-
um á fasteignum hjá sýslumannin-
um í Reykjavík. Þær voru 7 að jafnaði
á mánuði árið 2006, 11 árið 2007, 13
árið 2008 og eru nú 23 á mánuði það
sem af er ári.
Þótt hið opinbera gæti meðal-
hófs í innheimtuaðgerðum um þess-
ar mundir fer sögum af því að aðrir,
svo sem bankar eða einstök fyrirtæki
geri það ekki. Þetta fæst ekki stað-
fest hjá sýslumannsembættum. Bent
er á keðjuverkun þar sem eigend-
ur smárra og stórra krafna lenda í
greiðsluvanda og neyðast til þess að
innheimta útistandandi kröfur af
meiri þunga en áður til þess að mæta
eigin skuldbindingum.
Betra að semja
Einstaklingar og fyrirtæki geta létt
sér róðurinn og komið í veg fyrir
íþyngjandi innheimtuaðgerðir með
því að hafa samband við innheimtu-
menn og kanna möguleika á að gera
greiðsluáætlun. Yfir slík atriði er
meðal annars farið á netsíðum toll-
stjóraembættisins og sýslumanns-
embættanna. Innheimtumanni rík-
issjóðs ber að fara að lögum og ekki
er víst að unnt sé að bera við að skatt-
skýrslu hafi ekki verið skilað eða að
skattálagning hafi verið kærð til þess
að sneiða hjá íþyngjandi innheimtu-
aðgerðum. Lendi einstaklingur í
vanskilum með opinber gjöld er því
ævinlega betra fyrir hann að hafa
samband og leita samninga um gerð
greiðsluáætlunar.
janúar 188
Febrúar 834
mars 752
apríl 264
maí 279
Fjárnámsbeiðnir
hjá sýslumAnnin-
um í kópAvogi 2009
Október 2008 220
nóvember 2008 172
desember 2008 61
janúar 2009 98
Febrúar 2009 50
mars 2009 47
apríl 2009 77
maí 2009 52
Fjárnám í FAsteign-
um hjá sýslmAnnin-
um í kópAvogi
Þrengingar Sýslumönnum ber
saman um að meira beri á vanskilum
hjá fólki sem til þessa hafi ævinlega
staðið í skilum. meira en tvöfalt fleiri
hafa misst íbúðir undir hamarinn það
sem af er ári en á sama tímabili í fyrra.
Innheimta Talnagögn
sýslumanna og tollstjóra
benda ekki til algerra
umskipta til hins verra.
skútumenn
enn í haldi
Jónas Árni Lúðvíksson og Pétur
Kúld Pétursson, sem grun-
aðir eru um að hafa reynt að
smygla miklu magni fíkniefna
til landsins með skútu, voru í
gær úrskurðaðir í áframhald-
andi gæsluvarðhald til 12. júní.
Mennirnir, sem eru um þrítugt,
voru handteknir á Austurlandi í
apríl og hafa setið í gæsluvarð-
haldi frá 20. apríl. Lögreglan fór
fram á framlengingu gæslu-
varðhalds vegna rannsóknar-
hagsmuna. Þeir hafa báðir kært
úrskurðinn til Hæstaréttar.
Fjórir karlar til viðbótar sitja í
gæsluvarðhaldi í tengslum við
rannsókn sama máls.
Gripnir
glóðvolgir
Tveir menn voru handteknir
aðfaranótt sunnudags þar
sem þeir voru að brjótast
inn í fyrirtæki við Gagnheiði
á Selfossi. Mennirnir voru
vopnaðir kúbeini en annar
þeirra hafði hulið andlit sitt
með lambhúshettu. Þegar
þeir urðu lögreglu varir lögðu
þeir á flótta en lögreglu-
mennirnir hlupu þá uppi.
Báðir voru mennirnir ölvaðir
og voru látnir lausir að lokn-
um yfirheyrslum.
ísland ekki leng-
ur friðsamlegast
Eftir mótmæli og ófrið á götum
úti síðastliðinn vetur hefur Ís-
land fallið úr fysta niður í fjórða
sæti yfir friðsömustu lönd ver-
aldar samkvæmt mati sem út-
gáfufélag tímaritsins Economist
gerir árlega. Friðsamlegast er nú
á Nýja-Sjálandi, en Norðurlönd-
in eru öll meðal tíu friðsömustu
landa í veröldinni. Bandaríkin
eru númer 83 og hafa færst upp
um sex sæti frá því í fyrra. Global
Peace Index sýnir jafnframt að
lítinn frið er að hafa í Írak og Af-
ganistan.