Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2009, Blaðsíða 19
sviðsljós 11. ágúst 2009 Þriðjudagur 19
Roisin Murphy vandar Lady GaGa ekki kveðjurnar:
Írska söngkonan Roisin Murp-
hy, sem er frægust fyrir velgengni
sína með sveitinni Moloko, seg-
ir Lady GaGa hafa stolið sínum stíl.
Murphy hefur lengi verið þekkt fyrir
ýktan tískustíl, stór höfuðföt og mikla
axlapúða sem eru allt einkenni Lady
GaGa í dag.
„Hún hermdi eftir mínum stíl,“ segir
Murphy. „Ég hitti hana fyrir um ári,
áður en hún varð heimsþekkt, og mig
óraði ekki fyrir því að þetta myndi
gerast. Ekki var hún með axlapúða
þá en það var ég,“ bætir Murphy við
og er augljóslega ekki sátt við GaGa
sem margir kalla tískufrömuð. „Lady
GaGa er bara léleg stæling á mér.
Hún stal algjörlega mínu útliti. En
ég tek þó fram að hún stal ekki neðri
helmingnum af mínu útliti,“ skaut
Murphy að henni en GaGa er þekkt
fyrir að vera á brókinni einni klæða.
Hér eru nokkrar myndir af þeim vin-
konum. Dæmi nú hver fyrir sig.
Lady GaGa
Er af mörgum
talin tískutákn.
„Hún
Fyrirsætan og raunveruleikasjón-
varpsstjaran Kim Kardashian hefur
aldrei litið betur út en þessa dagana.
Hún hætti nýverið með kærastanum
sínum, Reggie Bush, og litaði hárið á sér
ljóst. Kim hefur hingað til verið þekkt
fyrir svarta lokka og breiðan bossa en
virðist nú vera að reyna losna við hvort
tveggja, því hún er hörkudugleg í rækt-
inni og hefur aldrei verið í betra formi,
að eigin sögn.
Kim er rísandi stjarna og margir líkja
frægð hennar við frægð Paris Hilton en
þær þykja frægar fyrir lítið annað en að
vera frægar. Reyndar hafa kynlífsmynd-
bönd með þeim báðum lekið á Netið.
EinhlEyp og
Eggjandi
Kim Kardashian í baðfatamyndatöku:
Hermdi
eftir mér“
Kim Kardashian
Lýsti á sér hárið, slétti
það og lengdi daginn
eftir þessa myndatöku
Roisin Murphy úr
Moloko
Segir Lady GaGa lélega
eftirhermu af sér.
Smáauglýsingasíminn er
515 5550
smaar@dv.is
AllAr AlmennAr viðgerðir á
húsbílum og ferðAvögnum
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI