Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2009, Blaðsíða 22
Edda Björg Eyjólfsdóttir leik-
kona hefur fyrir löngu sannað
hæfileika sína, bæði í leik og
söng. Edda hefur leikið fjölmörg
hlutverk á sviði, í kvikmyndum
og sjónvarpi en þekktust er hún
líklega fyrir leik sinn í Stelpun-
um á Stöð 2. Ferilinn hóf Edda
hins vegar í hlutverki Magentu í
Rocky Horror Picture Show sem
leikfélag MH setti upp við feiki-
legar vinsældir í byrjun tíunda
áratugarins. Leikkonan rifjaði
upp gamla takta úr sýningunni
þegar hún tók lagið Touch-a,
touch-a, touch-a touch me á
karaókíbarnum Ölveri í Glæsi-
bæ síðastliðið laugardagskvöld.
Um sönginn í laginu sér þó per-
sóna Janet að langmestu leyti
en heimildarmaður DV á Ölveri
segir að það hafi verið engu
líkara en að Edda hafi ekki gert
neitt annað en að syngja þetta
magnaða lag, slík var frammi-
staðan.
„Ég er í þriðja sæti núna og þarf á
stuðningi þjóðarinnar að halda til
þess að ná alla leið,“ segir Hulda
Lind Kristinsdóttir, 22 ára Reykja-
víkurmær og fyrirsæta, sem tek-
ur þátt í keppninni Miss Tourism
Queen International 2009. Keppn-
in fer fram í Kína í lok mánaðarins
en netkosningin er eins konar for-
keppni og tryggir sigurvegaranum
sæti í úrslitum keppninnar.
„Það eru margir titlar í boði og
sá stærsti er Miss Tourism Queen
International 2009,“ segir Hulda
sem er kemur meðal annars fram í
íslenska þjóðbúningnum. Hægt er
að greiða atkvæði á vefsíðu keppn-
innar, www.misstqi.com. Það er þó
ekki ókeypis heldur þarf að greiða
fyrir atkvæðin. Minnst er hægt að
kaupa 10 atkvæði á þrjá dali og
þarf því að eiga góða að til þess að
sigra í kosningunni. Eins og staðan
er núna er keppandi Taívan í fyrsta
sæti með 17.300 atkvæði, keppandi
Nýja-Sjálands í öðru með 14.600
atkvæði og svo Hulda í því þriðja
með 12.690 atkvæði.
asgeir@dv.is
ungfrú túrismi
rifjaði upp
rocky Horror
Hulda lind í þriðja sæti í netkosningu:
kanaútvarpið:
Silfurdrengurinn og gel-
mógúllinn Logi Geirsson er nú í
óðaönn að komast í stand með
liði sínu Lemgo eftir að hafa
barist við erfið meiðsli. Logi
hefur verið að taka vel á því í
ræktinni til að byggja sig upp
fyrir langt tímabil í Þýskalandi
og fékk hann um daginn verð-
laun frá líkamsræktarþjálfara
liðsins fyrir að vera skornasti
liðsmaður Lemgo. Logi hefur
verið að bralla ýmislegt með
kærustunni sinni gullfallegu,
körfuboltakonunni Ingibjörgu
Elvu Vilbergsdóttur, að und-
anförnu en um daginn skelltu
þau sér meðal annars á 70.000
manna U2-tónleika á Schalke-
vellinum í Gelsenkirken.
Logi manna
skornastur
22 þriðjudagur 11. ágúst 2009 fóLkið
„Það hefur engin útvarpsstöð opn-
að svona stórt á Íslandi,“ segir at-
hafnamaðurinn Einar Bárðarson
um útvarpsstöðina Kaninn 91,9
sem fer í loftið 1. september næst-
komandi. Að sögn Einars hefur
engin stöð farið í loftið hérlend-
is sem hefur náð til jafnmargra
landsmanna strax á fyrsta degi.
„Við stefnum að því að um 85%
landsmanna geti hlýtt á stöðina
frá fyrsta degi,“ segir Einar en stöð-
in heitir í höfuðið á kanaútvarpinu
sáluga sem Bandaríkjaher hélt úti
á eftirstríðsárunum.
Útvarpsstöðin verður send út á
Reykjanesi, höfuðborgarsvæðinu,
Akureyri og á Suðurlandi ef allt
gengur eftir. „Við verðum allavega
pottþétt á Akureyri en það er ver-
ið að skoða þetta með Suðurland-
ið,“ segir Einar sem er um þess-
ar mundir að koma upp tveimur
öflugum sendum á höfuðborgar-
svæðinu. „Það verða tveir risastór-
ir sendar á höfuðborgarsvæðinu.
Annar þeirra verður við Kálfatjörn
og hinn ekki langt frá Mosfellsbæ.
Kaninn ætti því að heyrast hátt
og skýrt um alla Reykjavík og ná-
grenni.“
Aðspurður hverjar áherslurnar
á Kananum verði er orðið „nýtt“
lykilhugtak. „Þetta verður bara að
langmestu leyti ný og fersk tón-
list og ferskir vindar. Eitthvað fyrir
ungt fólk og raun alla landsmenn.
Fólk langar bara að heyra eitthvað
nýtt.“ En hlustendur eru ekki þeir
einu sem hafa áhrif á framtíð Kan-
ans heldur einnig auglýsendur.
Það hafa margar útvarpsstöðvar
komið og farið í gegnum tíðina en
Einar er hvergi banginn. „Viðbrögð
auglýsenda hafa ekki verið síðri.
Maður er bara búinn að vera á
fundum út í eitt undanfarið. Þetta
er bara eins og að hleypa beljum
út að vori.“
Greint hefur verið frá því á
undanförnum dögum að Einar
leiti nú að hæfu útvarpsfólki til
þess að halda nafni Kanans á lofti.
Útvarpsmennirnir Jón Axel Ól-
afsson og Gunnlaugur Helgason
hafa báðir verið sterklega orðaðir
við stöðina en saman mynduðu
þeir félagar hið fræga útvarpství-
eyki Tveir með öllu.
„Þetta skýrist allt fyrr en
seinna,“ segir Einar að lokum en
hann vill ekkert gefa upp að svo
stöddu um ráðningar á stöðina
sem mun án efa blása nýju lífi í ís-
lenska útvarpsflóru.
asgeir@dv.is
Einar Bárðarson segir opnun kanans 91,9 þá stærstu í út-
varpssögunni á íslandi. stefnt er að því að um 85% þjóðar-
innar geti hlýtt á stöðina strax 1. september þegar hún fer
í loftið. einar leitar nú að útvarpsfólki en reynsluboltarnir
Jón Axel Ólafsson og Gunnlaugur Helgason hafa verið
orðaðir við stöðina.
Einar Bárðarson Er með ýmislegt
í gangi eins og vanalega
Hulda Lind Kristinsdóttir
Gengur vel í netkosningunni
á www.misstqi.com
„stærsta opnun
sögunnar“
Tveir með öllu
Ætli þeir félagar
verði saman með
þátt í Kananum?