Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2009, Blaðsíða 12
12 þriðjudagur 22. september 2009 fréttir
Þaulsætnasti
konungur heims
á sjúkrahús
Bhumibol Adulyadej, konung-
ur Taílands og sá einvaldur í
heiminum sem lengst hefur set-
ið á valdastóli, var lagður inn á
sjúkrahús um helgina. Konung-
urinn, sem er 81 árs, hefur þrátt
fyrir titil sinn sáralítil völd því
algjört konungsveldi var lagt af
upp úr 1930.
Engu að síður nýtur kon-
ungurinn virðingar og vinsælda
meðal þorra landsmanna og í
síðasta mánuði hvatti hann til
einingar á meðal þjóðarinnar
sem glímt hefur við stjórnmála-
kreppu í um fjögur ár.
Bhumibol Adulyadej var
krýndur konungur 5. maí 1950.
Engin trygging
af hálfu Ísraels
Þrátt fyrir nýlega fullyrðingu
Dmitrys Medvedev Rússlands-
forseta þess efnis að Ísrael hafi
lofað að gera ekki árás á Íran
segir Danny Ayalon, aðstoð-
arutanríkisráðherra Ísraels, að
engin trygging sé fyrir því að
Ísrael láti ekki til skarar skríða
gegn kjarnorkuaðstöðu Írans.
Í viðtali við fréttastofu CNN
sagði Medvedev að forseti Ísra-
els, Shimon Peres, hefði sagt
honum að Ísraelsmenn hygðu
ekki á árás á Íran.
Stjórnvöld í Íran hafa ávallt
fullyrt að markmið kjarnorku-
áætlunar þeirra sé ekki að koma
sér upp kjarnorkuvopnum.
Forðast forseta
Lýbíu og Írans
Barack Obama, forseti Banda-
ríkjanna, heldur í vikunni jóm-
frúarræðu sína við allsherjar-
þing Sameinuðu þjóðanna. Í
tilkynningu frá Hvíta húsinu
segir að Obama muni funda
með Binyamin Netanyahu, for-
sætisráðherra Ísraels, og Mah-
moud Abbas, leiðtoga palest-
ínsku heimastjórnarinnar í dag.
Obama mun síðan ávarpa alls-
herjarsamkunduna á miðviku-
daginn.
Starfsmenn forsetans hafa
lagt sig í líma við að tryggja að
neyðarlegar uppákomur komi
ekki til með að skyggja á veru
Obama á þessu sviði alþjóða-
mála. Í því tilliti er sérstaklega
hugsað til Muammars Gaddafi,
forseta Lýbíu, og Mahmouds
Ahmadinejad, forseta Írans.
Nýskipaður yfirbiskup Nígeríu ómyrkur í máli um múslima:
„Fjöldaframleiða börn“
Nicholas Okoh, erkibiskup í Nígeríu,
telur að Afríka eigi undir högg að sækja
vegna íslams og múslima sem „fjölda-
framleiði“ börn með það fyrir augum
að ná undirtökum í samfélögum víða
í álfunni.
Nicholas Okoh var skipaður yfir-
biskup Nígeríu í síðustu viku og er einn
valdamesti einstaklingur innan raða
biskupakirkjunnar. Ekki er talið útilok-
að að upphafning hans auki á spennu í
samskiptum kristinna og múslima, en
biskupakirkjan hefur undanfarið reynt
að brúa bilið á milli trúarbragðanna.
Nígeríumenn eru nokkurn veginn
til helminga kristnir og múslimskir.
Um sautján milljónir tilheyra biskupa-
kirkjunni og sæta þó nokkrum ofsókn-
um í norðurhluta landsins, en annars
staðar berjast trúarbrögðin um yfir-
ráð.
Hin umdeildu orð Nicholas Okoh
féllu í predikun um íslam í Kent á
Englandi í júlí og af orðum hans mátti
ráða að Afríkuríki á borð við Úganda,
Rúanda og Kenía ættu undir högg að
sækja vegna staðfastrar sóknar mús-
lima.
„Þeir eyða miklu fé, jafnvel þar
sem þeir hafa engan söfnuð, þeir
byggja moskur, þeir byggja sjúkra-
hús, þeir byggja hvað sem er,“ sagði
Okoh erkibiskup.
Nicholas Okoh sagði að múslim-
ar segðu að samkvæmt kristinni trú
mættu karlmenn aðeins eiga eina
eiginkonu. „Hjá okkur færðu fjórar,“
sagði Okoh að múslimar segðu.
„Þetta er trúboðið sem þeir
stunda: fjöldaframleiðsla, þannig að
ef þú átt fjórar konur, fjögur börn,
sextán börn, bráðlega væri það heilt
þorp,“ sagði Okoh.
Háttsettur meðlimur múslimska
samfélagsins í Bretlandi fordæmdi
ummælin og sagði þau öfgafull og lit-
uð af múslimafælni og aðeins til þess
fallin að koma róti á samskipti fylgj-
enda trúarbragðanna í Afríku og þó
víðar væri leitað.
„Leitað að piparsveini“ Brugðið á leik á föstuhátíð múslima í Kano í Nígeríu.
Mynd AFP
Vinaleiga er vaxandi atvinnugrein í
Japan. Á vefsíðu The Guardian má
finna frásögn af einum Japana sem
er að gera það gott í vinaleigu og hef-
ur verið að færa út kvíarnar.
„Svaramaðurinn Ryuichi Ichin-
okawa stóð frammi fyrir gestunum
í brúðkaupinu, ræskti sig og talaði í
nokkrar mínútur hlýlega um brúð-
gumann og brúðina,“ segir á vefsíðu
Guardian og síðan segir sem er að
Ryuichi Ichinokawa þekki brúðhjón-
in ekki mikið betur en þjónustufólkið
í brúðkaupsveislunni.
Það kom þó ekki í veg fyrir að Ry-
uichi Ichinokawa væri viðstaddur frá
upphafi veislunnar til enda og spil-
aði stórt hlutverk í henni, sem góð-
um svaramanni sæmir.
„Frændinn“ hvetur börnin
Ryuichi Ichinokawa er einn af mörg-
um sem lagt hafa fyrir sig að taka að
sér hlutverk ættingja, vina, vinnufé-
laga, kærasta og kærustu og jafnvel
maka í Japan, enda fólk tilbúið til að
leggja mikið á sig til að verða sér ekki
til minnkunar á mannamótum.
Um síðustu helgi bætti Ryuichi
Ichinokawa enn einu hlutverkinu á
listann sinn og lék frænda systkina á
íþróttadegi sem haldinn var í skóla
einum. Ichinokawa stóð vel undir
væntingum og hvatti systkinin áfram
og tók frammistöðu þeirra upp á víd-
eó og setti svo punktinn yfir i-ið með
því að taka þátt í keppni barna og full-
orðinna.
Aðspurður sagðist hann vera
frændi systkinanna og tók jafnvel þátt
í smáspjalli áður en hann dró sig í hlé
svo lítið bar á.
Ekki er líklegt að hann sjái „frænda“
sinn og „frænku“ aftur og þaðan af
síður „systur“ sína sem er fráskilin. En
börn hennar sættu einelti í skólanum
vegna fjarveru föður þeirra.
Vaxandi starfsemi
Þremur og hálfu ári eftir að hann
hóf feril sinn sem vinur hvers sem
leigði hann hefur fyrirtæki Ryuichi
Ichinokawa vaxið og nú er hann
með þrjátíu manns í vinnu. „Fólk
vildi konur,gamalt fólk og ungt, all-
ar manngerðir, en að sjálfsögðu gat
ég ekki leikið öll þessi hlutverk,“ seg-
ir Ichinokawa í viðtali við The Guar-
dian.
Umboðsskrifstofum af þessum
toga hefur fjölgað mjög í Japan síð-
astliðin átta ár og eru nú um tíu tals-
ins. Office Agent, sem er best þekkta
umboðið, er með um eitt þúsund
manns í vinnu, sem verða að geta
sett sig í hin ýmsu hlutverk, til dæm-
is föður drengs sem glímir við erfið-
leika í skólanum.
Talið er að þessa fjölgun megi
rekja til breytinga með tilliti til sam-
félags og efnahags landsins, auk þess
sem rótgróin hefð er fyrir því í land-
inu að bera ekki á torg persónuleg
vandamál.
Undanfarið hefur sérstaklega ver-
ið sótt í að leigja gerviyfirmann og
eru viðskiptavinirnir að stærstum
hluta karlmenn sem misst hafa vinn-
una. Einnig er mikil eftirspurn eftir
„vinnufélögum“ á meðal fólks sem
ekki er nógu lengi í sama starfi til að
eignast vini. Að sjálfsögðu er fráskil-
ið fólk og einhleypt einnig stór hluti
viðskiptavina „vinaleiganna“.
Aldrei staðinn að verki
Gjaldið sem viðskiptavinir þurfa að
greiða fyrir til dæmis brúðkaups-
veislu er 15.000 jen, sem samsvara
um 20.000 krónum, en greiða þarf
sérstaklega fyrir ræðu eða karókí-
söng.
Undirbúningur starfsmanna Ry-
uichi Ichinokawa er mikilvægur og
gera þarf ráð fyrir nánast spurn-
ingum af öllum toga. Mikið ríður á
að gervivinirnir svari öllum spurn-
ingum rétt því að öðrum kosti gæti
komið upp vandræðaleg staða hjá
viðskiptavinunum, auk þess sem
orðspor umboðsskrifstofunnar gæti
beðið hnekki. Að sögn Ryuichi Ich-
inokawa hefur aldrei komist upp um
hann síðan hann hóf störf sem gervi-
vinur fyrir þremur og hálfu ári.
Þarf að bjarga ástarsambandi
Ryuichi Ichinokawa rekur umboðs-
skrifstofu sína sem aukastarf og það
var ekki fyrr en fyrir tveimur mánuð-
um sem eiginkona hans komst að því
þegar hún sá til hans á kaffihúsi þar
sem hann var í viðtali við japanskan
fréttamann.
Í næsta hlutverki Ryuichi Ichin-
okawa reiðir viðskiptavinur hans sig
á hann til að bjarga ástarsambandi
sem stendur höllum fæti. Viðskipta-
vinurinn, kona á þrítugsaldri, sem er
í fjarsambandi óttast að hinn „lag-
legi, vinsæli“ kærasti sé að missa
áhugann.
Þegar konan og kærastinn hittast
í næsta mánuði þá á jafnmyndarleg-
ur „vinur“ hennar að rekast á þau fyr-
ir tilviljun og hafa mörg orð um hve
gaman sé að hitta hana aftur. Ef allt
gengur eftir á að kvikna afbrýðisemi
hjá kærastanum og hann á að sjá
villu síns vegar.
Ryuichi Ichinokawa er þess full-
viss að hann hafi erindi sem erfiði og
segir að mesta umbunin verði að vita
að parið sé hamingjusamt á ný.
GErvivinur á 20.000
Umboðsskrifstofum sem leigja út gervivini hefur fjölgað í Japan. Hægt er að leigja vin,
ættingja, kærasta, vinnufélaga, yfirmenn og jafnvel maka. Þörfin fyrir þjónustu af
þessu tagi er rakin til mikilla breytinga, samfélagslegra og efnahagslegra, í Japan.
Ekki er líklegt að hann
sjái „frænda“ sinn og
„frænku“ aftur og það-
an af síður „systur“ sína
sem er fráskilin.
KoLbeinn Þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Á góðri stundu Ekki er gefið að „frændinn“ þekki fjölskylduna.
ys og þys á markaðstorgi Þörfin fyrir gervivini er rakin til þjóðfélagslegra
breytinga. Mynd Photos.coM