Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 2. júní 2010 FRÉTTIR Stjórn Íslandsbanka hefur beint þeim tilmælum til þeirra fyrrver- andi starfsmanna Glitnis sem fengu kúlulán til að kaupa hlutabréf í honum að þeir setji einkahluta- félög sín í þrot. Ástæðan er meðal annars sú að annars þyrfti bankinn að hefja gagnslausar innheimtuað- gerðir gegn félögunum þegar lánin verða á gjalddaga. Í flestum tilfell- um eru engin verðmæti inni í fé- lögunum og því ekki eftir neinu að sækjast fyrir Íslandsbanka. Þessi lausn á málinu er því far- sæl fyrir báða aðila: Bankinn losn- ar við lánin úr bókum sínum með afskrift þeirra og starfsmennirnir losna við félögin af bakinu sem og umræðuna um kúlulánveitingarn- ar án nokkurs tilkostnaðar. Séð út frá hagsmunum bankans er lausn- in því líkast til sú besta sem völ er á og hinn nýi Íslandsbanki þarf ekki að glíma við umræðuna um kúlulánin næstu tvö árin þar til lán starfsmannanna verða á gjald- daga. Óhjákvæmilegri niðurstöðu í starfsmannalánamáli Glitnis og Ís- landsbanka er því flýtt um tvö ár í einhverjum tilfellum. Þjónar hagsmunum beggja Líkt og kom fram í tilkynningu frá Íslandsbanka í síðustu viku fengu níu núverandi starfsmenn Íslands- banka slík lán og snérist ákvörð- un stjórnarinnar aðeins um með- ferðina á lánunum til þeirra. Þó má reikna með því að þeir lántakendur úr starfsmannahópi Glitnis sem nú hafa látið af störfum í Íslandsbanka muni einnig gefa félög sín upp til gjaldþrotaskipta nú þegar þeir sjá að stjórn Íslandsbanka hefur beint þeim tilmælum til núverandi starfsmanna bankans. Meðal þess- ara manna eru núverandi forstjóri Skeljungs, Einar Örn Ólafsson, og Ingi Rafnar Júlíusson, sem var lykil- maður í mörgum viðskiptum bank- ans, til dæmis með Stím. Í bréfi til starfsmanna Íslands- banka sem Birna Einarsdóttir bankastjóri sendi út í síðustu viku útskýrði hún ákvörðun stjórnar- innar með eftirfarandi hætti: „Ég nefndi á starfsmannafundi í apríl að ég gerði mér grein fyrir að þetta mál hvíldi þungt á starfsmönnum bankans, og á engum jafn þungt eins og þeim sem fengu slík lán til hlutabréfakaupa í stað hefðbund- inna kauprétta sem tíðkast hjá ýms- um fyrirtækjum. Það eru mikilvæg skilaboð frá stjórn bankans að þetta mál hafi ekki áhrif á störf þessara öfl- ugu samstarfsmanna okkar inn- an bankans.“ Samkvæmt þessu voru tilmælin fyrst og fremst til að verja hagsmuni þessara níu starfs- manna. Hagsmunir þeirra fara þó saman við hagsmuni bankans og umræða um þá í fjölmiðlum kem- ur sér sömuleiðis illa fyrir bankann. Með ákvörðun stjórnarinnar má reikna með að hætt verði að ræða um starfsmannalánin í Glitni að mestu leyti. Félög starfsmannanna verða gjaldþrota og kröfurnar á hendur þeim verða afskrifaðar úr bókum bankans án þess að nokkuð fáist upp í þær. Með þessari ákvörð- un lýkur því ferli sem hófst á því fyrir hrun að verðlauna átti lykil- starfsmenn Glitnis fyrir uppgang bankans með því að veita þeim áhættulaus hlutabréfalán sem þeir gætu aðeins grætt á. Starfsmenn- irnir græddu ekki á lánunum en tapa heldur engu eftir að ákvörðun stjórnarinnar liggur fyrir. Hreinsunarstarf, segir Friðrik Friðrik Sophusson, stjórnarfor- maður Íslandsbanka, segir að þessi starfsmannalán Glitnis hafi verið á borði stjórnar bankans í um það bil ár og að unnið hafi verið lögfræði- álit þar sem þessi niðurstaða hafi verið talin ásættanlegust í stöð- unni. „Þetta er dálítið ömurleg staða fyrir þetta fólk sem á þessi félög. Það veit að félögin verða gjaldþrota því það ligga milljarða króna skuld- ir inni í þeim og eignirnar eru engar. Gjaldþrot þeirra er því óumflýjan- legt. Okkur fannst þetta bara þrifa- legast svona. Þetta er bara hreins- unarstarf,“ segir Friðrik en líkt og áður segir snýst aðgerð stjórnar- innar í raun bara um að flýta gjald- þroti félaganna. Friðrik segir að engin sjálf- skuldarábyrgð hafi verið á lánun- um til starfsmanna Glitnis og því sé ekkert að sækja til þeirra upp í lánin. Að sama skapi segir hann að starfsmennirnir hafi ekki grætt neitt á lánunum því bankinn hafi ekki greitt arð af hlutabréfunum og eigendur félaganna hafi sömu- leiðis ekki heldur greitt sér arð af þeim. „Fólkið gerði þennan gern- ing en fékk aldrei neitt út úr þessu. Nú verður þetta fólk að sætta sig við það að félög í þeirra eigu verði gerð gjaldþrota,“ segir Friðrik og bætir því við að farið verði á sama hátt með lán til félaga þeirra starfs- manna Glitnis sem starfa ekki leng- ur fyrir Íslandsbanka. Friðrik undirstrikar að með þessari ákvörðun sé stjórn Íslands- banka ekki að segja að hún sé hlynnt slíkum lánveitingum, þvert á móti séu þær afar gagnrýniverðar að mati stjórnarinnar, en að þetta sé ein leiðin til að ganga frá lánveit- ingunum í þessu tiltekna tilfelli. Ólíkar leiðir Þessi meðferð á lánunum til starfs- manna Glitnis er nokkuð ólík því hvernig slitastjórn Kaupþings hefur ákveðið að afgreiða hlutabréfalán til starfsmanna bankans. Það starfsfólk Kaupþings sem fékk lán til hlutabréfakaupa í bank- anum þarf að greiða persónuleg- ar ábyrgðir af lánunum sem nema í sumum tilfellum hundruðum millj- óna króna og í einhverjum tilfellum tugum milljóna. Þar skiptir einn- ig máli að flestir þeirra tóku lánin sjálfir en notuðu ekki eignarhalds- félög til þess. Á að giska um 50 núverandi starfsmenn Arion banka þurfa að standa skil á slíkum greiðslum en í heildina fengu um 80 starfsmenn hlutabréfalán hjá Kaupþingi. 30 þeirra hafa látið af störfum hjá bank- anum en þar á meðal eru allir æðstu stjórnendur Kaupþings sáluga. Í til- felli Kaupþingslánanna voru starfs- mennirnir hins vegar ábyrgir fyrir lánunum að hluta og því getur slita- stjórn bankans sótt hluta af lánun- um til starfsmannanna. Starfsmenn Glitnis sem fengu kúlulán ganga því skuldlausir frá lánunum en starfs- menn Kaupþings eru margir með skuldabagga á bakinu sem gæti leitt til persónulegs gjaldþrots þeirra. Þessi munur á afgreiðslu lánanna í bönkunum tveimur stafar auðvit- að fyrst og fremst af þeim ólíku að- ferðum sem notaðar voru til að veita lánin. Í tilfelli Glitnis voru lánin veitt til eignarhaldsfélaga starfsmanna og án sjálfskuldarábyrgða en í tilfelli Kaupþings voru þau veitt til starfs- mannanna sjálfra og með persónu- legum ábyrgðum. INGI F. VILHJÁLMSSON fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is „ÞETTA ER BARA HREINSUNARSTARF“ Stjórn Íslandsbanka hefur beðið þá starfsmenn bankans sem fengu kúlulán hjá Glitni að gefa félög sín upp til gjaldþrotaskipta. Þetta er gert af nokkrum ástæðum, meðal annars til að forðast tilgangslausar innheimtu- aðgerðir bankans gegn félögunum. Lán starfsmanna Glitnis fengu allt aðra meðferð en lánin til starfsmanna Kaupþings sem þeir þurfa að standa skil á að ákveðnu leyti. Gjaldþrot þeirra er því óumflýjanlegt. Hlutabréfakaup starfsmanna Glitnis í maí 2008, úr skýrslu rannsóknarnefndar: Félag Starfsmaður Lánsfjárhæð í milljónum Gnómi ehf Jóhannes Baldursson 782 AB 154 ehf Vilhelm Már Þorsteinsson 787 Strandatún ehf Rósant Már Torfason 782 Margin ehf Magnús Arnar Arngrímsson 787 Einarsmelur 18 ehf Einar Örn Ólafsson 782 HEKT ehf Eggert Þór Kristófersson 510 Langidalur ehf Magnús Pálmi Örnólfsson 519 AB 158 ehf Ingi Rafnar Júlíusson 519 Skebbi ehf Rúnar Jónsson 346 Hlutabréfakaup starfsmanna „Kæra samstarfsfólk. Nú í vikulokin langar mig að senda ykkur stuttan tölvupóst og segja ykkur frá því helsta sem hefur verið í gangi. Vikan var annasöm og byrjaði í góða veðrinu á annan í hvítasunnu. Þá vorum við með stjórn bankans í stefnumótunarvinnu í húsakynnum Bláa lónsins. Við vorum að skoða þá þætti í umhverfi bankans sem líklegastir eru til að hafa áhrif á starfsemi hans næstu 10 árin. Sú vinna gekk vel og henni verður haldið áfram í sumar og án efa munu margir koma að þeirri vinnu. Á þriðjudag og miðvikudag var svo hefðbund- inn stjórnarfundur hér á Kirkjusandi. Farið var yfir uppgjör fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins sem sýna að rekstur bankans hefur gengið vel það sem af er ári. Mikilvægir áfangar náðust í yfirferð á ýmsum áhættustýringarmálum og svo kynntu Sigurjón Hákonarson og Jón Ingi Björnsson upplýsingatæknimál við góðan orðstír. Á fundinum var jafnframt fjallað um svokölluð „kúlulán“ starfsmanna. Niðurstaða stjórnar er sú að farið verður þess á leit við viðkomandi starfsmenn að þeir gefi eignarhaldsfélög sín upp til gjaldþrotaskipta í stað þess að bíða fram að gjalddaga lánsins. Þessi lánamál verða að sjálfsögðu meðhöndluð samkvæmt almennum lánaregl- um bankans og með sama hætti og ef um viðskiptavin væri að ræða. Ég nefndi á starfsmannafundi í apríl að ég gerði mér grein fyrir að þetta mál hvíldi þungt á starfsmönnum bankans, og á engum jafn þungt eins og þeim sem fengu slík lán til hlutabréfakaupa í stað hefðbundinna kauprétta sem tíðkast hjá ýmsum fyrirtækjum. Það eru mikilvæg skilaboð frá stjórn bankans að þetta mál hafi ekki áhrif á störf þessara öflugu samstarfsmanna okkar innan bankans. Það er einnig mikilvægt að hafa í huga að þessi hlutabréfakaup voru hluti tryggða- og hvatakerfi gamla bankans og að viðkomandi starfsmenn höfðu engan fjárhagslegan ávinning af þessum hlutabréfakaupum. Það er mikilvægt að komin sé skýr niðurstaða um meðhöndlun á þessu erfiða máli. Ég óska þess að við getum nú haldið áfram og horft til framtíðar með það að sameiginlegu markmiði að byggja upp frábæran banka. Kær kveðja Birna“ Bréfið frá Birnu Þrifalegasta lausnin Friðrik Sophusson, stjórnarformaður Íslandsbanka, segir að stjórninni hafi þótt þrifalegast að beina þeim tilmælum til starfsmannanna að þeir gæfu eignarhaldsfélög sín upp til gjaldþrotaskipta út af kúlulánveiting- unum. Hann sést hér með Árna Tómassyni, formanni skilanefndar Glitnis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.