Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2010, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 2. júní 2010 MIÐVIKUDAGUR 17 Embættismaður innan Vatíkansins í Róm hefur varað kaþólska presta sem hafa misnotað sóknarbörn sín kynferðislega við því að „sér- stakt helvíti“ bíði þeirra eftir dauð- ann. Prelátinn Charles Scicluna var óvenju berorður af háttsettum kaþ- ólskum kirkjunnar manni að vera, um helgina þegar hann ræddi við blaðamenn. „Það væri betra ef þær illgjörðir mannanna leiddu þá sjálfa til dauða fyrir veraldlegum dóm- stóli, frekar en að þurfa að þjást af miklu skelfilegri fordæmingu og bölvun í helvíti.“ Prelátinn sem um ræðir fer fyr- ir siðgæðisnefnd Vatíkansins og hefur meðal annars það umfangs- mikla verkefni með höndum að hafa hendur í hári kaþólskra presta sem hafa orðið uppvísir að því að misnota börn kynferðislega og af- greiða mál þeirra innan kirkjunnar. „Það væri betra að hengja myllu- stein um háls þeirra sem hafa gert á hlut barna og henda þeim út á sjó,“ sagði Scicluna um helgina eftir bænastund fyrir fórnarlömb þeirra sem hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu presta. Yfirlýsingar hans koma í kjölfar mjög berorðra lýsinga Benedikts páfa, sem á dögunum kallaði eftir því að kaþólskir prestar yrðu dregn- ir til ábyrgðar fyrir glæpi sína gegn börnum. Þetta er talið vera til marks um að kaþólska kirkjan ætli að skera upp herör gegn þöggun um þessi mál, enda hefur hún verið harðlega gagnrýnd síðustu ár fyrir að taka ekki harðar á þessum málum heldur sópa þeim undir teppið. Preláti í Vatíkaninu varar kaþólska barnaníðinga við hver örlög þeirra verði: Sérstakt helvíti bíður presta Vatíkanið Virðist ætla að taka hart á prestum sem misnota börn eftir áralanga yfirhylmingu. Vill skaðabætur Bandarísk kona hefur lögsótt Google eftir að hún fór eftir kortaleiðbein- ingum Google Maps í farsímanum sínum. Samkvæmt kortinu átti hún að ganga meðfram stórri hraðbraut í Utah þar sem engir göngustígar voru. Svo fór að bíll keyrði á hana og hún slasaðist. Hún vill fá um 12 milljónir í skaðabætur frá Google fyrir að hafa leitt hana út á brautina með þessum afleiðingum. Árásin rannsökuð Tony Blair, fyrrverandi forsætisráð- herra Bretlands sem nú starfar sem dimplómati í Miðausturlöndum, segist harma árás Ísraelsmanna á skipalest hjálparsamtaka sem var að flytja hjálpargögn til Gasa-svæðis- ins. Blair hefur krafist þess að árásin verði rannsökuð. Nítján manns féllu í árásinni sem virðist hafa verið með öllu tilefnislaus. Mannskæður stormur Hitabeltisstormurinn Agatha hefur valdið miklu tjóni í Mið-Ameríku síðustu daga, en talið er að rúmlega hundrað manns hafi látist af völdum flóða og aurskriðna í kjölfar storms- ins. Agatha fór yfir Kyrrahafið á laug- ardaginn og kom upp að Gvatemala í kjölfarið, þar sem 82 manns létust. Þá hefur einnig orðið mannfall í nágrannaríkjunum El Salvador og í Hondúras. Áfram lekur Olíulekinn á Mexíkóflóa heldur áfram að valda miklum skaða á líf- ríkinu í hafinu. Talið er að olíulekinn sé orðinn að mesta mengunarslysi í sögu Bandaríkjanna. BP-olíufélagið hefur reynt árangurslaust í margar vikur að stöðva olíulekann og talið er að ekki verði hægt að loka ventl- inum á hafsbotni fyrr en í ágúst. Mótmæli hafa farið fram í Louisiana, meðal annars í New Orleans, vegna aðgerðaleysis olíufélagsins. FÓLKI BLÆÐIR ÚT Í SJÚKRABÍLUM Ferðamenn og hjálparstarfs- menn fá yfirleitt að fara í gegnum þessar landamærastöðvar óáreitt- ir, þó að það sé ekki alltaf raunin, en eins og áður segir eru sérstak- ir passar og leyfi sem Palestínu- menn geta sótt um til að fá að fara í gegnum landamærastöðvarn- ar. Þrátt fyrir að vera með þessi leyfi eru þeir stundum stöðvaðir á landamærunum og meinaður að- gangur inn í Ísrael. Það getur farið eftir ákvörðun hvers dags fyrir sig hvort Palestínumenn með tilskil- in leyfi fái að fara í gegnum þessar landamærastöðvar. Hin síðari ár hefur það orð- ið enn mikilvægara að Palestínu- menn hafi aðgang að vinnu fyrir utan landamærin, þar sem vinnu- staðir innan landamæranna eru helstu skotmörk Ísraelshers. Til að mynda hafa 13 af 14 sápuverk- smiðjum, sem hafa verið algeng- ar innan landamæranna, verið sprengdar í loft upp. Bændur hafa einnig þurft að lifa við að upp- skera þeirra sé reglulega brennd af hermönnum, jafnvel ár eftir ár. Atvinnuástand í Palestínu er því algerlega í höndum Ísraelsmanna. Reiði Aðgerðir Ísraelsmanna á Gaza vekja upp hörð viðbrögð víða um heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.