Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Blaðsíða 6
6 fréttir 8. desember 2010 miðvikudagur
Opnunartími
virka daga 12-18
laugardag 12-16
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík - 517-2040
LAGERSALA
www.xena.is
Gönguskór
St. 36-46
Verð áður 14.995
Verð nú 9.995
Þrotabú Björgólfs
fyrir dóm
Mál þrotabús Björgólfs Guðmunds-
sonar gegn Landsvaka, vörsluaðila
peningamarkaðssjóða Landsbankans,
var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær.
Málið snýst um deilur þrotabúss-
ins við Landsvaka, sem reyndi eft-
ir bankahrunið að fá 400 milljóna
króna skuldabréf sem gefið var út af
Björgólfi, og Landsvaki keypti á 400
milljónir króna árið 2005, uppgert. Til
að gera það var hluti upphæðarinnar
skuldajöfnuð á móti eignum Björgólfs
í öðrum sjóðum Landsvaka, nánar til-
tekið eignir sem Björgólfur átti í gjald-
eyrissjóði hjá Landsvaka. Fullar heimt-
ur fengust hins vegar ekki á bréfinu.
Við þetta sættir þrotabú Björgólfs
sig ekki. Eins og komið hefur fram hef-
ur Björgólfur verið úrskurðaður gjald-
þrota og nema kröfur í þrotabú hans
tæplega 100 milljörðum króna. Þar
á bæ vilja menn meina að með um-
ræddri skuldajöfnun hafi kröfuhöfum
Björgólfs verið mismunað. Þrotabú
Björgólfs vill því rifta gjörningnum.
Viðskiptablaðið greindi frá því á
dögunum að kaup Landsvaka á 400
milljóna króna skuldabréfi Björgólf
séu til rannsóknar hjá embætti sér-
staks saksóknara.
Lögreglan
á Facebook
„Við færum okkur þangað sem fólkið
er og fólkið er víst á Facebook,“ segir
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en
embættið er nú komið á Facebook.
Síðan var stofnuð á þriðjudag að sögn
Stefáns og er þegar komin með á ann-
að hundrað aðdáendur.
„Þetta er einn af þeim stöðum þar
sem fólk kemur saman og lögreglan
hefur það að markmiði að vera sýnileg
og vill efla og bæta upplýsingagjöf til
almennings. Þetta er mjög góð leið
til þess,“ segir Stefán í samtali við DV.
Aðspurður hvort þetta sé fyrsta skref-
ið í átt að netlögreglunni alræmdu
segir Stefán að þetta sé fyrst og fremst
hugsað til að miðla upplýsingum til al-
mennings. „Ef þú hefur áhuga á að ger-
ast góðkunningi lögreglunnar þá getur
þú gert það í dag, á Facebook,“ segir
Stefán og hvetur alla til að gerast góð-
kunningjar lögreglunnar á Facebook
síðunni sem hægt að nálgast með að
smella á hlekkinn hér fyrir neðan
Hafnargötu 19 • Reykjanesbæ • s: 421 4601 • www.rain.is • rain@rain.is
Ráin býður að venju upp á girnilegt
jólahlaðborð og létta jólastemmningu
með tónlist og söng fram á nótt
um helgar fyrir jólin.
Ari Jónsson og Finnbogi Kjartansson
sjá um tónlistina og fá til sín gestasöngvara
endrum og sinnum.
Borðapantanir
s. 421 4601
Útvegum
gistingu
fyrir hópa
Verð 6.950 kr. pr. m.
Hátíðarmatseðill
Jólasúpan
Sherrylöguð kóngasveppasúpa
Úrval forrétta bornir fram
Hlaðinn villibráðadiskur af ýmsu frábæru góðgæti.
Jólasteikarhlaðborð
Hamborgarahryggur,
rósmarínkryddaður lambavöðvi,
brakandi purusteik. Nauta innanlæri
og smjörsprautuð kalkúnabringa.
Meðlæti
Sykurbrúnuð jarðepli, heimalagað rauðkál,
sætarkartöflur ofnbakaðar með pecanthnetum,
smjöri og púðursykri. Gratineraðar kartöflur,
smjörsteikt grænmeti, ristaðar döðlur,
timiansósa, rauðvíns- og bernessósa.
Waldorfsalat.
Eftirréttur
Frönsk súkkulaðikaka eins og hún gerist best
með vanilluís, þeyttum rjóma og rifsberjasósu
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son, lögmaður og fjárfestir, og Katr-
ín Pétursdóttir, kennd við Lýsi, voru
í persónulegum ábyrgðum fyrir
um milljarði króna vegna lána sem
eignarhaldsfélag þeirra, Hnotskurn,
fékk hjá Glitni árið fyrir hrun, sam-
kvæmt heimildum DV. Félagið skuld-
aði rúmlega 2,7 milljarða króna í lok
árs 2007. Skuldir félagsins voru að
mestu leyti við Glitni og arftaka hans,
Íslandsbanka, en skuldir félagsins
færðust þangað yfir eftir bankahrun-
ið um haustið 2008. Líklegt má telja
að skuldin hafi verið tilkomin að
hluta vegna fjárfestingar Hnotskurn-
ar í hlutabréfum í FL Group árið 2007.
Gátu ekki borgað skuldina
Eftir því sem DV kemst næst gátu eða
vildu þau Gunnlaugur og Katrín ekki
greiða skuldina sem þau voru í per-
sónulegum ábyrgðum fyrir og leituðu
því til starfsmanna Íslandsbanka eft-
ir skuldaafskrift á meirihluta skuldar-
innar gegn því að þau myndu greiða
hluta hennar. Ekki er vitað hvern-
ig málið endaði hjá Íslandsbanka
en ljóst er að Gunnlaugur og Katrín
ætluðu sér ekki eða gátu ekki greitt
skuldina til fulls. Reikna má með að
þau hafi fengið sínu framgengt.
Lendingin í málinu hjá Gunnlaugi
og Katrínu hefur því hugsanlega ver-
ið svipuð og í afskriftarmáli Bjarna
Ármannssonar við skilanefnd Glitnis
í fyrra, sem greint hefur verið frá í DV,
en hann fékk um 800 milljónir króna
afskrifaðar gegn því að greiða bank-
anum nokkra tugi milljóna króna.
Gunnlaugur Sævar og Katrín
hafa gefið skýrslur sem vitni í rann-
sókn sérstaks saksóknara kaupum FL
Group á Tryggingamiðstöðinni árið
2007 en Hnotskurn seldi þá bréf sín
í tryggingafélaginu. Katrín sat sömu-
leiðis í stjórnum FL Group og Glitnis.
Talið að Hannes hafi komið að
lánafyrirgreiðslunni
Hnotskurn fjárfesti í hlutabréfun-
um í FL Group í kjölfar sölunnar
á bréfunum í Tryggingamiðstöð-
inni. Í minnisblaði, sem Viðskipta-
blaðið hefur meðal annars rætt og
slitastjórn Glitnis hefur lagt fyrir
dóm í New York vegna Glitnismáls-
ins, kemur fram að Hannes Smára-
son, þáverandi stjórnarformaður FL
Group, hafi haft áhrif á lánveitingar
til félagsins í september árið 2007, að
því er virðist til að liðka til fyrir við-
skiptunum með bréfin í Trygginga-
miðstöðinni. Í minnisblaðinu seg-
ir: „FL Group mun hlutast til um að
Glitnir klári samkomulag við Hnot-
skurn um losun á 250 milljónum
á morgun, en félagið (Hnotskurn)
hefur verið í viðræðum um þau við-
skipti við Glitni.“
Á forsendum þessa minnisblaðs
um lánveitingarnar til Hnotskurnar
dregur slitastjórn Glitnis þá ályktun
að Hannes Smárason hafi haft áhrif
á lánveitingar bankans til félagsins.
Í ársreikningi Hnotskurnar fyrir árið
2008 kemur fram að Hnotskurn hafi
stofnað til nýrra langtímaskulda á
árinu fyrir samtals rúmlega 4 millj-
arða króna. Á árinu 2007 voru sömu-
leiðis greiddar niður skuldir fyrir
meira en 3,5 milljarða og nærri 270
milljónir runnu til Gunnlaugs Sæv-
ars og Katrínar í formi arðs.
Lýsi keypt af Gunnlaugi og
Katrínu
Ekki er vitað hvaðan peningarnir
komu sem hugsanlega voru notaðir
til að losa Gunnlaug og Katrínu und-
an persónulegu ábyrgðunum hjá Ís-
landsbanka.
Í hruninu haustið 2008, nán-
ar tiltekið þann 7. október, seldu
Gunnlaugur Sævar og Katrín hins
vegar fyrirtæki sem þau áttu um 83
prósenta hlut í, Lýsi, til Guðbjarg-
ar Matthíasdóttur, á 235 milljón-
ir króna. Stöð 2 greindi fyrst fjöl-
miðla frá þessari sölu í byrjun ársins.
Sömuleiðis má rekja sölu þeirra á
hlutabréfunum í Tryggingamið-
stöðinni til sölu Guðbjargar á sínum
bréfum í tryggingafélaginu. Ástæð-
an fyrir því að Gunnlaugur og Katrín
seldu Lýsi er væntanlega sú að þegar
þarna var komið sögu var fyrirtæk-
ið mjög skuldsett og var eiginfjár-
staða félagsins neikvæð um milljarð
króna.
Lýsi virðist hins vegar hafa verið
töluvert meira virði en 235 milljóna
króna þar sem rekstrartekjur félags-
ins námu nærri fjórum milljörðum
króna árið 2008 og rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir var nærri 600 milljónir
króna. Guðbjörg tók skammtímalán
fyrir Lýsi sem búið er að greiða niður
samkvæmt ársreikningi félags henn-
ar, Ívars ehf., fyrir árið 2009. Ívar er
skuldlaust í dag ef frá er talin nærri
65 milljóna skuld við tengdan aðila.
Líklegt má telja að uppgjör þeirra
Gunnlaugs Sævars og Katrínar á per-
sónulegu ábyrgðunum tengist við-
skiptunum með Lýsi með einum eða
öðrum hætti.
Í ÁBYRGÐ FYRiR
MiLLJARÐi kRónA
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson og Katrín Pétursdóttir í Lýsi voru í persónulegum
ábyrgðum vegna skulda sinna við Glitni. Ekkert bendir til að ábyrgðirnar hafi verið
greiddar. Þau fengu lánafyrirgreiðslu til að kaupa hlutabréf í FL Group.
inGi f. viLHjáLmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
FL Group mun hlutast til um að
Glitnir klári samkomu-
lag við Hnotskurn um
losun á 250 milljónum
á morgun, en félagið
(Hnotskurn) hefur verið
í viðræðum um þau við-
skipti við Glitni.
Tengist kannski Lýsi Hugsanlegterað
meðferðináskuldamálumHnotskurnar
tengistsölunniáfyrirtækinuLýsi,sem
KatrínPétursdóttirergjarnankenndvið,
tilGuðbjargarMatthíasdóttur.
var í ábyrgðum
GunnlaugurSævar
Gunnlaugssonvar
ípersónulegum
ábyrgðumfyrirhluta
skuldaHnotskurnar
viðGlitni.Gunnlaugur
ereinnafnánustu
aðstoðarmönnum
GuðbjargarMatthías-
dóttur,kvótaeiganda
ogaðalaeiganda
Morgunblaðsins.