Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2010, Page 26
Komdu
í ásKrift
frjálst, óháð dagblað
512 70 80
dv.is/askrift
Um það bil sem þessi bók kom út
mætti höfundurinn, Guðni Th. Jó-
hannesson sagnfræðingur í Kast-
ljósþætti sjónvarpsins og sagði frá
bókinni og söguhetju sinni. Dag-
inn eftir sat höfundur þessara lína
á kaffistofunni í Þjóðarbókhlöð-
unni. Við næsta borð sátu fjögur
ungmenni, trúlega stúdentar (ef til
vill í sagnfræði). Þau voru að tala
um Kastljósþáttinn og skyndilega
heyrði ég að eitt þeirra sagði: „Hver
var þessi Gunnar Thoroddsen?“ Ég
sperrti eyrun og enn frekar þegar fé-
lagi spyrjandans svaraði: „Æ, þetta
var einhver karl sem var ráðherra
löngu fyrir hrun.“ Þá bætti hinn
þriðji um betur og sagði: „Þetta var
afi eða langafi þessa Guðna, hann
heitir líka svona Th.“
Ekki heyrði ég frekari orðaskipti
fólksins en þessa litlu sögu má hafa
til marks um það, hve fljótt þeir vilja
gleymast sem mikinn hluta ævinnar
eru fyrirferðarmiklir í þjóðmálaum-
ræðunni, gegna háum og valdamikl-
um embættum og voru áratug-
um saman kunnir nánast hverju
mannsbarni, a.m.k. af afspurn. Það
var Gunnar Thoroddsen og líklega
lengur og í meira mæli en flestir
samtímamenn hans. Stjórnmála- og
embættisferill hans spannaði rétta
hálfa öld, ef talið er frá því hann var
fyrst kosinn á þing árið 1934 og þar
til hann lét af þingmennsku og emb-
ætti forsætisráðherra vorið 1983.
Gunnar Thoroddsen var snemma
kappsfullur og vel að sér og vildi
hvarvetna vera fremstur í flokki.
Honum mislíkaði að sögn stórlega
þegar hann varð „aðeins“ semidúx
á stúdentsprófi en síðan lauk hann
laganámi með meiri glæsibrag en
áður hafði sést hér á landi. Gunn-
ar var fjölhæfur og margfróður og
gegndi á starfsferli sínum fjölmörg-
um háum embættum. Hann var
borgarstjóri í Reykjavík, alþingis-
maður, ráðherra oftar en einu sinni,
sendiherra, hæstaréttardómari,
prófessor í lögum og ferlinum lauk
hann sem forsætisráðherra á árun-
um 1980–1983. Mun á engan hallað
þótt sagt sé að hann hafi sem forsæt-
isráðherra notið meiri vinsælda en
aðrir menn sem það embætti hafa
skipað á Íslandi. Eina embættið sem
Gunnar sóttist eftir en hlaut ekki var
forsetaembættið. Því hefði hann þó
vafalaust gegnt með glæsibrag.
Oft gustaði hressilega um Gunn-
ar. Hann var löngum umdeildur,
ekki síst í eigin flokki, en þegar lit-
ið er yfir feril hans virðist mér sem
skipta megi honum í tvennt. Fram-
an af var hann ungur maður á upp-
leið, naut trausts og stuðnings ráða-
manna í Sjálfstæðisflokknum, var
vinsæll borgarstjóri og síðan ráð-
herra uns hann ákvað að láta af því
starfi og gerast sendiherra í Kaup-
mannahöfn. Eftir að hann tapaði í
forsetakosningum fyrir dr. Kristjáni
Eldjárn árið 1968 sneri hann aft-
ur til Íslands og hóf brátt þátttöku í
stjórnmálum á nýjan leik. Sú endur-
koma var fráleitt öllum flokksbræðr-
um hans að skapi og síðasta aldar-
fjórðunginn stóð styrr um Gunnar.
Honum tókst engu að síður að kom-
ast til æðstu metorða í íslenskum
stjórnmálum og varð forsætisráð-
herra eftir sögulega stjórnarmynd-
un í ársbyrjun 1983.
Af öllu þessu er, sem vænta má,
mikil og oft átakarík saga. Hana
segir Guðni Th. Jóhannesson með
ágætum. Hann byggir frásögn sína
að verulegu leyti á persónulegum
gögnum Gunnars sjálfs, dagbókum,
bréfum, minnisblöðum og -bókum,
sendibréfum auk þess sem hann
styðst við fjölda annarra heimilda.
Heimildagnóttin gerir það að verk-
um að höfundurinn hefur úr ýmsum
aðferðum að velja. Gunnar Thorodd-
sen var virkur þátttakandi í íslensk-
um stjórnmálum um langa hríð og
þess vegna gefur augaleið að saga
hans er samofin íslenskri stjórn-
málasögu mikinn hluta 20. aldar.
Guðni velur þá leið að segja söguna
öðru fremur frá sjónarhóli Gunnars,
en fellur ekki í þá gryfju að reyna að
segja stjórnmálasöguna í einhvers
konar heild. Engu að síður verður
hann oft að skyggnast víðar um en
í ranni söguhetjunnar, ekki síst þar
sem lýst er átökunum í Sjálfstæðis-
flokknum á 8. áratug 20. aldar.
Ævisöguritari hlýtur jafnan að
kappkosta að draga upp sem skýr-
asta mynd af söguhetju sinni, lýsa
kostum hennar og göllum, skap-
gerð, hugsjónum og áhugamálum,
einkalífi og þannig mætti áfram
telja. Þetta tekst Guðna að minni
hyggju vel, enda hefur hann að lík-
indum haft úr meiri heimildum að
moða en flestir kollegar hans hér á
landi. Lesandanum getur að vísu
ekki dulist að hann hefur á köflum
hrifist af Gunnari, en lætur þá hrifn-
ingu þó aldrei villa sér sýn til lengd-
ar. Árangurinn er sá að mannlýsing-
in er í góðu jafnvægi, lesandinn sér
glöggt hverjum kostum Gunnar var
búinn en greinir jafnframt helstu
galla hans. Sú mynd sem við mér
blasir er af miklum og mjög aðlað-
andi hæfileikamanni, sem jafnframt
var haldinn gríðarlegri metnaðar-
girnd og átti það til oftar en einu
sinni að láta tilganginn helga með-
ulin. Sú hlið hans var hins vegar allt
annað en aðlaðandi þótt oft hljóti
maður að dást að klókindum hans
við að ná settu marki.
Stjórnmálamenn hljóta jafnan
að eiga samskipti við mikinn fjölda
fólks og andstæðingar jafnt sem
samherjar hafa tíðum umtalsverð
áhrif á feril þeirra. Svo var um Gunn-
ar Thoroddsen. Í þessari bók er lítið
gert af því að lýsa kostum og göllum
samferðamanna, að einum undan-
skildum: Geir Hallgrímssyni. Þeir
Gunnar voru flokksbræður en jafn-
framt harðir keppinautar um æðstu
völd í Sjálfstæðisflokknum allan 8.
áratug liðinnar aldar. Af þeim sam-
skiptum og innanflokksátökum er
mikil saga sem sögð er býsna ræki-
lega í þessari bók. Sú frásögn bygg-
ir að verulegu leyti á persónuleg-
um gögnum Gunnars og er vægast
sagt ærið einhliða. Guðni tekur að
vísu ítrekað fram að Geir Hallgríms-
son hafi verið mikill drengskapar-
maður, stefnufastur og heiðarleg-
ur, en engu að síður er myndin sem
dregin er upp af honum sem stjórn-
málamanni heldur nöturleg. Í sam-
anburði við hinn glæsilega og mál-
snjalla andstæðing sinn verður Geir
nánast að pólitískum einfeldningi
sem aldrei sá við Gunnari og mis-
tókst flest. Þessi mynd af Geir hygg
ég að sé máluð of dökkum litum og
spurning hvort einhver verður ekki
til að reyna að rétta hlut hans.
Ævisaga Gunnars Thoroddsen
er mikil að vöxtum. Hún er almennt
vel skrifuð og læsileg en þó er því
ekki að neita að mér finnst höfund-
urinn á köflum leiðast út í fullmik-
inn sparðatíning, einkum í fyrri hlut-
anum þar sem greinir frá störfum
og ferli Gunnars áður en hann varð
borgarstjóri. Ég get til að mynda ekki
séð hvers vegna þarf að lýsa nán-
ast hverri einustu ferð sem hann
fór um landið sem erindreki Sjálf-
stæðisflokksins á yngri árum sínum.
Þarna og á nokkrum öðrum stöðum
er engu líkara en að heimildagnóttin
hafi borið söguritarann ofurliði.
Að lestri loknum hlýtur ein
spurning að leita á huga lesand-
ans: Hver var pólitísk arfleifð Gunn-
ars Thoroddsens? Þeirri spurn-
ingu reynir Guðni því miður ekki
að svara, en fróðlegt hefði verið að
sjá mat hans á söguhetjunni í ljósi
íslenskrar og erlendrar stjórnmála-
sögu 20. aldar. Lifa verk Gunnars
að einhverju leyti enn í samfélag-
inu, lét hann eitthvað eftir sig sem
lifir og hefur haft áhrif fram á okk-
ar daga, eins og t.d. Jónas frá Hriflu
gerði? Eða var þetta einn samfelldur
„performans“ í hálfa öld.
Jón Þ. Þór
26 8. desember 2010 miðvikudagur
gunnar Thoroddsen –
Ævisaga
Guðni Th.
Jóhannesson
Útgefandi: JPV.
652 blaðsíður
Fínn „performans“
Ævisaga
Guðni Th. Jóhannesson „Ævisögu-
ritari hlýtur jafnan að kappkosta að
draga upp sem skýrasta mynd af
söguhetju sinni, lýsa kostum hennar
og göllum, skapgerð, hugsjónum
og áhugamálum, einkalífi og þannig
mætti áfram telja. Þetta tekst Guðna
að minni hyggju vel.“
Svar við bréfi
Helgu
Höfundur: Bergsveinn Birgisson
Útgefandi: Bjartur
Stykkishólmsbók
iv–vii
Höfundur: Bragi Straumfjörð Jósepsson
Útgefandi: Mostrarskegg, Stykkishólmi
Ég man þig
Höfundur: Yrsa Sigurðardóttir
Útgefandi: Veröld
Fíasól og litla
ljónaránið
Höfundur: Kristín Helga Gunnarsdóttir
Teikningar : Halldór Baldursson
Útgefandi: Mál og menning
Brúður
Sigurbjörg Þrastardóttir
Útgefandi: Forlagið
Sönn íslensk sakamál:
Brasilíufanginn
Höfundur: Jóhannes Kr. Kristjánsson
Útgefandi: Sena
Þóra biskups
og raunir íslenskrar
embættismannastéttar
Sigrún Pálsdóttir
Útgefandi: Forlagið
dömusiðir
Tobba Marinós
Útgefandi: Bókafélagið
Jónína Ben
Höfundur: Sölvi Tryggvason
Útgefandi: Sena
martröð millanna
Höfundur: Óskar Hrafn Þorvaldsson
Útgefandi: JPV
Árni matt: Frá
bankahruni til
byltingar
Höfundar: Árni M. Mathiesen og
Þórhallur Jósepsson
Útgefandi: Veröld
Lífsleikni gillz
Höfundur: Egill Einarsson
Útgefandi: Bókafélagið
Stormurinn:
reynslusaga ráðherra
Höfundur: Björgvin G. Sigurðsson
Útgefandi: Nýtt land
Fyrri dómar